Fréttamenn RÚV: Jón Baldvin ber fram „hálfsannleik, róg og hreinar lygar“

Helgi Seljan og Sigmar Guð­munds­son svara grein Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar þar sem frétta­flutn­ingur þeirra var gagn­rýndur. „Höfum í huga að það var Jón Baldvin sem fyrstur hóf umræðu um veik­indi dóttur sinnar opin­ber­lega,“ skrifa þeir.

Helgi Seljan og Sigmar Guð­munds­son, frétta­menn RÚV, skrifa grein í Morg­un­blaðið í dag þar sem þeir svara grein Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar frá því í gær um veik­indi Aldísar Schram, dóttur hans. Höfðu þeir tekið við­tal við hana fyrir Morg­un­út­varpið á Rás 2. „Viðtalið við hana átti því fullt erindi við almenn­ing og von­andi er sá tími lið­inn að hægt sé að afgreiða upp­lifun þeirra sem glíma við and­leg veik­indi sem óráðs­hjal,“ skrifa þeir.

„Sjaldan hefur birst grein í fjöl­miðli með jafn öfug­snúnum titli og hér í Morg­un­blað­inu í gær,“ segir í grein þeirra. „Höfundur er Jón Baldvin Hanni­bals­son sem ber hálf­sann­leik, róg og hreinar lygar á borð fyrir les­endur undir yfir­skrift­inni „sann­leik­ur­inn er sagna bestur“.“

Sjö konur hafa stigið fram undir nafni og sakað Jón Baldvin um kyn­ferð­is­legra áreitni. Alls hafa 23 konur birt sögur sínar á vef­síðu og halda frá­sagnir áfram að ber­ast í sér­stökum MeToo hópi kvenn­anna á Facebook. Jón Baldvin hefur ítrekað sagt að sög­urnar eigi allar rætur að rekja til veik­inda dóttur sinnar.

„Höfum í huga að það var Jón Baldvin sem fyrstur hóf umræðu um veik­indi dóttur sinnar opin­ber­lega,“ skrifa Helgi og Sigmar. „Í fram­haldi af þess­ari opin­beru umræðu um mál Aldísar hafa læknar útskýrt að geð­hvörf lýsa sér alls ekki þannig að sjúk­ling­ur­inn sé með óráði, rang­hug­myndir og ómark­tækur með öllu. Þvert á móti er fólk fylli­lega tengt við raun­veru­leik­ann nema rétt þegar mikil manía brýst fram en hún stendur venju­lega stutt yfir.“

Benda þeir enn­fremur á að ásak­anir Aldísar um meint kyn­ferð­is­brot Jóns Baldvins, sem hún hefur haldið á lofti í ára­tugi, hafa verið stað­festar af kon­unum sjálfum.

Aldís var sex sinnum nauð­ung­ar­vi­stuð á geð­deild Land­spít­al­ans. Hefur hún borið föður sinn þeim sökum að hafa farið fram á nauð­ung­ar­vistun í kjöl­far ásak­ana um kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi. Hann hefur hafnað því. Fjórar beiðnir um nauð­ung­ar­vistun bár­ust frá honum á meðan hann var erlendis að störfum sem sendi­herra. 

„Frétta­menn eru ekki ábyrgir fyrir orðum við­mæl­enda sinna, en það hefði verið frá­leitt með öllu að birta ekki gögn sem sýna svart á hvítu að Jón Baldvin gefur beiðni sinni sem for­eldri um að svipta dóttur sína frelsi aukið vægi með því að skrifa undir sem sendi­herra. Það er því hafið yfir vafa að hann reyndi að mis­nota aðstöðu sína hvað þetta varðar en það var hins vegar hvergi full­yrt af und­ir­rit­uðum að læknar og heil­brigð­is­starfs­fólk hefðu gefið afslátt af sinni fag­mennsku þrátt fyrir til­raunir Jóns,“ skrifa Helgi og Sigmar.

Loks segja þeir að sumt í grein Jóns Baldvins sé ekki ein­ungis rangt, heldur einnig yfir­máta ósmekk­legt. Nefna þeir orð hans um að Trygg­inga­stofnun rík­is­ins ætti að end­ur­skoða örorku­mat Aldísar og bætur, fyrst hún sé nú heil heilsu. Aldís birti í kjöl­far grein­ar­innar vott­orð frá stofn­un­inni sem sýnir að hún sé ekki með örorku­mat.

„Rétt er að hafa í huga að um örorku­bætur var ekk­ert rætt í þessu við­tali og und­ir­rit­aðir hafa enga hug­mund um hvort Aldís fær slíkar bætur,“ skrifa Helgi og Sigmar. „Að sjálf­sögðu spyrjum við hvorki Aldísi né Trygg­inga­stofnun um þetta að fyrra bragði. Þó það nú væri. Þetta eru afar við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar sem Aldís ein hefur rétt á að opin­bera og verður að telj­ast fáheyrt að faðir opni slíka umræðu um dóttur sína, jafn­vel þótt í nauð­vörn sé. Að hverju er verið að ýja? Að Aldís hafi verið að blekkja Trygg­inga­stofnun í því skyni að fá örorku­bætur?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár