Aldís Schram ekki með örorkumat

„Enn ein lygi Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar hrakin“ skrifar Aldís Schram dóttir hans og birtir vott­orð frá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins.

Aldís Schram, dóttir Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar, birtir vott­orð frá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins á Facebook síðu sinni í dag. Í því kemur fram að hún sé ekki með örorku­mat frá stofn­un­inni.

Sjö konur hafa stigið fram undir nafni og sakað Jón Baldvin um kyn­ferð­is­legra áreitni. Alls hafa 23 konur birt sögur sínar á vef­síðu og halda frá­sagnir áfram að ber­ast í sér­stökum MeToo hópi kvenn­anna á Facebook. Jón Baldvin hefur ítrekað sagt að sög­urnar eigi allar rætur að rekja til veik­inda dóttur sinnar. Hefur Aldís birt vott­orð sál­fræð­ings sem segir hana ekki sýna merki geð­hvarfa­sýki, en ein­kenni áfallastreitu. Birti hún sömu­leiðis vott­orð heim­il­is­læknis um að í við­tölum við hann hefðu ekki  komið fram ein­kenni geð­sjúk­dóma.

Aldís var sex sinnum nauð­ung­ar­vi­stuð á geð­deild Land­spít­al­ans. Hefur hún borið föður sinn þeim sökum að hafa farið fram á nauð­ung­ar­vistun í kjöl­far ásak­ana um kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi. Hann hefur hafnað því. Fjórar beiðnir um nauð­ung­ar­vistun bár­ust frá honum á meðan hann var erlendis að störfum sem sendi­herra. 

Jón Baldvin skrif­aði grein í Morg­un­blaðið í dag þar sem hann fjall­aði ítar­lega um meint veik­indi Aldísar og umfjöllun Sigmars Guð­munds­sonar á RÚV um hans mál. „Ef það er satt, sem Sigmar hefur eftir Aldísi í við­tal­inu, að hún sé rang­lega greind með geð­hvarfa­sýki, ber þá ekki Trygg­inga­stofnun rík­is­ins, sem að fengnu áliti sér­fræð­inga Land­spít­al­ans hefur skil­greint Aldísi sem „geð­fatl­aða“, að end­ur­skoða þá máls­með­ferð og þar með greiðslu örorku­bóta, sem byggðar eru á þessu mati?“

„Enn ein lygi Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar hrakin,“ skrifar Aldís. „Jón Baldvin Hanni­bals­son ku skv. nýj­ustu fréttum halda því fram að ég sé á orörku­bótum - sem er sann­an­lega rang­hug­mynd hans meðf. skjali trygg­ing­ar­stofn­unar sam­kvæmt.“

Skjalið er dag­sett í dag, 7. febr­úar. „Það vott­ast hér með, að Aldís Schram [...] er ekki með örorku­mat frá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins,“ segir í skjal­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár