Vilja verja intersex fólk gegn hatursorðræðu og glæpum

Una Hild­ar­dóttir, vara­þing­maður Vinstri grænna, leggur til að refsi­vert verði að mis­muna fólki vegna með­fædds breyti­leika á líf­fræði­legum kynein­kennum.

Vilja verja intersex fólk gegn hatursorðræðu og glæpum
Una Hild­ar­dóttir Vill verja inter­sex­fólk gegn hat­urs­orð­ræðu.

Breyta þarf almennum hegn­ing­ar­lögum þannig að inter­sex fólk sé varið gegn mis­munun og hat­urs­orð­ræðu. Þetta er mat sex þing­manna Vinstri grænna, sem hafa lagt fram frum­varp þess efnis á Alþingi.

Una Hild­ar­dóttir, vara­þing­maður Vinstri grænna, er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Samkvæmt því verður orð­unum „kyntján­ing“ og „kynein­kenni“ bætt við þá grein lag­anna sem snýr að við­ur­lögum við mis­munun gagn­vart fólki í atvinnu­rekstri og þjón­ustu­starf­semi og þá grein sem varðar hat­urs­orð­ræðu.

Ólíkt hug­tökum eins og trans og kynsegin, sem snúa að kyn­vit­und fólk, vísar inter­sex til með­fædds breyti­leika á líf­fræði­legum kynein­kennum. Þegar kemur að inter­sex fólki er ekki ljóst við fæð­ingu hvort líf­fræði­leg ein­kenni bendi til karl­kyns eða kven­kyn mann­eskju.

„Verði frum­varpið sam­þykkt er rétt­indum inter­sex ein­stak­linga veitt aukin vernd og í því felst skýr yfir­lýs­ing um að þeir njóti verndar á við aðra sem þurfa á sér­stakri vernd að halda gegn m.a. hat­urs­orð­ræðu og glæpum,“ segir í frum­varp­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár