Gunnar Bragi snýr aftur á þing til að svara Steingrími

Gunnar Bragi Sveins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, snýr aftur á þing í dag til að bregð­ast við „fram­göngu“ for­seta Alþingis. Bergþór Ólason seg­ist snúa aftur fyrr en hann ætl­aði vegna ágjafar í sinn garð og póli­tískra hjaðn­inga­víga.

Gunnar Bragi snýr aftur á þing til að svara Steingrími

Gunnar Bragi Sveins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, snýr aftur á Alþingi í dag eftir launa­laust frí í kjöl­far þess að Klaust­urs­upp­tök­urnar voru gerðar opin­berar. Þetta til­kynnti Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, við upp­haf þing­fundar rétt í þessu.

„Fyrstu dagar þing­funda á nýju ári, og fram­ganga for­seta Alþingis að und­an­förnu, er með þeim hætti að annað er óhjá­kvæmi­legt en að nýta sér allan rétt til þess að vera inni á þeim leik­velli þar sem að mér er sótt og svara fyrir mig á þeim vett­vangi en ekki utan hans,“ segir Gunnar Bragi í yfir­lýs­ingu sem Frétta­blaðið birti í dag. „Þess vegna mæti ég á nýjan leik til starfa minna á Alþingi í dag.“

Bergþór Ólason, sem var með Gunnari Braga á Klaustri bar, seg­ist snúa aftur á þing fyrr en hann ætl­aði þar sem spjót standi á honum á Alþingi. Telur hann sig þurfa að verj­ast póli­tískum hjaðn­inga­vígum og von­ast til að aðrir þing­menn muni leggja sitt af mörkum með sér til að gera þing­störf mál­efna­leg en ekki per­sónu­leg.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Bergþór sendi fjöl­miðlum rétt í þessu. Í grein í Morg­un­blað­inu í dag sagði hann Klaust­urs­upp­tök­urnar ólög­mætar og umfjöllun fjöl­miðla um þær hafa orðið til að særa fólk, sem ann­ars hefðu ekki komið til eyrna þeirra sem talað var um. Á upp­tök­unum má heyra Bergþór og Gunnar Braga segja grófa hluti um kven­kyns stjórn­mála­menn.

Tilkynning Gunnars Braga í heild:

Í kjöl­far óvið­eig­andi og sær­andi orða og ólög­mætrar upp­töku á þeim þá tók ég þá ákvörðun að taka mér launa­laust leyfi frá þing­störfum eftir að hler­un­ar­málið umtal­aða komst í hámæli. Ég vildi skoða hug minn, safna kröftum og ræða síðan við bak­land mitt. Ég iðr­ast og hef beðist fyr­ir­gefn­ingar á orðum mínum og geri það enn á ný.

Ég hef leitað ráð­gjafar og um leið notið mik­ils skiln­ings og stuðn­ings ætt­ingja, vina og félaga innan flokks og utan. Þakka ég þeim hvatn­ing­una og traustið.

Mið­flokk­ur­inn gaf mér það svig­rúm sem ég óskaði eftir og hvorki hvatti mig né latti til að flýta end­ur­komu minni. Vel má skilja það hlut­leysi sem vís­bend­ingu um að hvorki ég né aðrir væru ómissandi fyrir flokk­inn og undir það tek ég heils­hugar. Ég var á hinn bóg­inn kos­inn til starfa á Alþingi af fjölda fólks og gagn­vart því ber ég ríkar skyldur. Þær vildi ég að sjálf­sögðu rækja á nýjan leik í fyll­ingu tím­ans. Þakka ég þeim fjöl­mörgu stuðn­ings­mönnum sem hafa sett sig í sam­band við mig og minnt mig á þessar skyldur mínar og hvatt mig til starfa.

Stund­unum eru ákvarð­anir nán­ast teknar fyrir mann. Fremur óvænt – en samt ekki - blasir svarið við því hvenær rétt sé að snúa til baka. Fyrstu dagar þing­funda á nýju ári, og fram­ganga for­seta Alþingis að und­an­förnu, er með þeim hætti að annað er óhjá­kvæmi­legt en að nýta sér allan rétt til þess að vera inni á þeim leik­velli þar sem að mér er sótt og svara fyrir mig á þeim vett­vangi en ekki utan hans. Þess vegna mæti ég á nýjan leik til starfa minna á Alþingi í dag.

Tilkynning Bergþórs í heild:

Í kjöl­far óvar­legra orða minna, ólög­mætrar upp­töku á þeim, fjöl­miðlaum­fjöll­unar og vand­læt­ingar í sam­fé­lag­inu tók ég þá ákvörðun að taka mér leyfi frá þing­störfum , íhuga stöðu mína og hvernig ég gæti safnað vopnum mínum, end­ur­heimt traust kjós­enda og haldið áfram þeim störfum sem ég var kjör­inn til.

Endurmat af þessu tagi þarf sinn tíma og hann ætl­aði ég að taka mér. Í ljósi þeirra spjóta sem á mér stóðu strax á fyrstu dögum Alþingis, eftir að það kom saman á nýju ári, tel ég hins vegar óhjá­kvæmi­legt að flýta för minni og taka mér stöðu þar sem ég get í senn varist ágjöf­inni og haldið áfram að sinna þeim verk­efnum sem mér hefur verið trúað fyrir.

Mik­il­vægt er að störf Alþingis kom­ist í eðli­legan far­veg sem allra fyrst í stað póli­tískra hjaðn­inga­víga enda þótt sumum þyki sókn­ar­færi á þeim vett­vangi. Ég mun leggja mitt af mörkum til þess að þing­störfin verði mál­efna­leg en ekki per­sónu­leg á vik­unum og mán­uð­unum sem framundan eru. Vonandi er að aðrir muni leggja sig fram um slíkt hið sama.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár