Bergþór situr áfram: „Ósmekklegt en meiningarlaust raus yfir glasi, sem engan særði“

Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, hyggst halda áfram á þingi. Hann var einn þeirra þing­manna sem mátti heyra á Klaust­urs­upp­tök­unum tala með niðr­andi hætti um kven­fólk. „Mér fannst vont að fjöl­miðlar teldu sjálf­sagt að birta slíkt drykkju­raus opin­ber­lega,“ skrifar hann.

Bergþór situr áfram: „Ósmekklegt en meiningarlaust raus yfir glasi, sem engan særði“

Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, til­kynnir í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu að hann hygg­ist sitja áfram á Alþingi. Bergþór fór í launa­laust leyfi frá þing­störfum í byrjun des­em­ber eftir að Klaust­urs­upp­tök­urnar voru gerðar opin­berar.

Í grein­inni segir Bergþór að hann hafi komið sjálfum sér illi­lega á óvart með orðum sínum sem tekin voru upp á hljóð­upp­töku á Klaustri bar. „Ég hef talað við áfeng­is­ráð­gjafa og leitað aðstoðar sál­fræð­ings og ég hef átt löng og hisp­urs­laus sam­töl við þá sem lengi hafa þekkt mig,“ skrifar Bergþór. „Ég er miður mín yfir mörgu sem ég sagði þetta kvöld og sér­stak­lega yfir því að orð mín hafi orðið til þess að særa fólk, sem ég hef aldrei viljað særa, en varð skilj­an­lega sárt þegar upp­taka af sam­tal­inu var spiluð fyrir alþjóð.“

Í grein­inni leggur Bergþór áherslu á að orð hans hafi ekki sært neinn fyrr en fjöl­miðlar tóku að skrifa fréttir og birta upp­tök­urnar. „Ég ber ábyrgð á eigin orðum og finnst virki­lega leið­in­legt að hafa látið þau verstu þeirra falla. Í okkar fámenna hópi á veit­inga­hús­inu voru þessi orð ósmekk­legt en mein­ing­ar­laust raus yfir glasi, sem engan særði. Það var ekki okkar ákvörðun að þau skyldu borin á borð fyrir alla þjóð­ina,“ skrifar hann.

Þá beinir Bergþór spjótum sínum að fjöl­miðlum og Báru Hall­dórs­dóttur, upp­ljóstr­ara í mál­inu. „Margt kom illi­lega við mig í þessu. Mér fannst vond þróun að legið væri á hleri þegar annað fólk talar saman á veit­inga­húsum. Mér fannst vont að fjöl­miðlar teldu sjálf­sagt að birta slíkt drykkju­raus opin­ber­lega og eig­in­lega enn verra hversu margir voru ánægðir með hvorttveggja. En verst af öllu fannst mér að heyra í sjálfum mér,“ skrifar Bergþór.

Segist hann hafa margt við upp­tök­una og við­brögð við henni að athuga. „Mér finnst líka mjög athygl­is­vert hversu hart hefur verið barist gegn því að við, sem vorum hleruð, fáum aðgang að gögnum sem eru til og geta lík­lega sýnt hvernig var í raun staðið að því að hlera sam­tal okkar. En ekk­ert af þessu finnst mér þó eins slæmt og sumt af því sem ég sjálfur hef sagt þetta kvöld. 

Upptakan var að vísu ólög­mæt, hún virð­ist klippt saman og margt í frétta­flutn­ingi af tali okkar og talsmáta hefur verið tekið úr sam­hengi, en í mínum huga er aðal­at­riðið að margt af því sem ég hef greini­lega sagt þetta kvöld er að mínu mati til skammar, ekki aðeins sleggju­dómar og fárán­legar hug­leið­ingar heldur einnig stundum með orð­bragði sem kemur mér mjög illi­lega á óvart að ég hafi notað,“ skrifar Bergþór.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár