Félagsmálaráðherra: Alþingi vill ekki taka afstöðu til birtingar upplýsinga

Ásmundur Einar Daðason seg­ist ekki geta svarað fyr­ir­spurn um kaup­endur fulln­ustu­eigna Íbúða­lána­sjóðs. Ástæðan sé sú að Alþingi telji sig ekki geta „tekið afstöðu til þess hvaða upp­lýs­ingar séu birtar á vef þess eða tekið ábyrgð á slíkri birt­ingu“.

Félagsmálaráðherra: Alþingi vill ekki taka afstöðu til birtingar upplýsinga

Per­sónu­vernd telur að það sé í verka­hring Alþingis að ákveða hvort upp­lýs­ingar um kaup­endur fulln­ustu­eigna Íbúða­lána­sjóðs verði birtar opin­ber­lega en Alþingi vill ekki taka afstöðu til máls­ins. Þetta segir Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra í svari við fyr­ir­spurn Þor­steins Sæmunds­sonar þing­manns Mið­flokks­ins um málið.

Fulln­ustu­eignir eru þær eignir Íbúða­lána­sjóðs sem sjóð­ur­inn hefur tekið yfir á nauð­ung­ar­upp­boði vegna greiðslu­falls lán­taka, en fyr­ir­spurn Þor­steins tekur til kaup­enda á árunum 2008 til 2017. „Fyrir liggur því að ráð­herra er heim­ilt að afhenda þing­inu umbeðnar upp­lýs­ingar,“ segir í svari ráð­herra. „Hins vegar felur slík afhend­ing í sér birt­ingu á vef þings­ins sem telst opin­ber birt­ing, birt­ing fyrir almenn­ingi, en afstaða Per­sónu­verndar var sú að slík birt­ing væri atriði sem þingið þyrfti að taka afstöðu til. Alþingi hefur hins vegar ekki viljað taka afstöðu til opin­berrar birt­ingar umræddra upp­lýs­inga og vísar til þeirrar vinnu­reglu sinnar að svör við fyr­ir­spurnum til ráð­herra séu birtar á vef þings­ins og það geti ekki tekið afstöðu til þess hvaða upp­lýs­ingar séu birtar á vef þess eða tekið ábyrgð á slíkri birt­ingu.“

Ásmundur Einar Daðasonfélags­mála­ráð­herra

Fram kemur að félags­mála­ráðu­neytið hafi óskað eftir ítar­legra áliti Per­sónu­verndar en fengið þau svör að afhend­ing per­sónu­upp­lýs­inga frá ráð­herra til Alþingis og birt­ing upp­lýs­ing­anna á vef Alþingis teld­ust „tvær aðskildar vinnslu­að­gerðir í skiln­ingi per­sónu­vernd­ar­laga“.

Í sam­ræmi við 6. tölul. 3. gr. laga nr. 90/2018, um per­sónu­vernd og vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga, væri félags­mála­ráðu­neytið ábyrgð­ar­að­ili afhend­ingar upp­lýs­ing­anna til Alþingis en Alþingi ábyrgð­ar­að­ili birt­ing­ar­innar. Per­sónu­vernd myndi þurfa að veita sér­stakt álit til Alþingis um opin­bera birt­ingu upp­lýs­ing­anna, óskaði þingið þess. „Ekki liggur því fyrir álit stofn­un­ar­innar um opin­bera birt­ingu upp­lýs­ing­anna, en fyrir liggur að afhendi ráð­herra upp­lýs­ing­arnar muni Alþingi birta þær opin­ber­lega án tafar,“ segir í svar­inu.

Ráðherra telur sig því ekki geta afhent Alþingi upp­lýs­ing­arnar en tekur fram að ekk­ert sé því til fyr­ir­stöðu af hálfu ráðu­neyt­is­ins að afhenda þær án opin­berrar birt­ingar, svo sem á vett­vangi þing­nefnda. Þá er greint frá því að ráð­herra hafi beint þeim til­mælum til Íbúða­lána­sjóðs að umræddar upp­lýs­ingar verði birtar opin­ber­lega á vef sjóðs­ins að fengnu áliti frá Per­sónu­vernd. „Ráðu­neyt­inu er kunn­ugt um að sjóð­ur­inn hafi þegar sent Per­sónu­vernd erindi þar sem álits­ins er óskað og standa vænt­ingar til þess að nið­ur­staða kom­ist í það mál sem allra fyrst og mögu­legt verði að ljúka máli þessu á far­sælan hátt.“  

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stjórnsýsla

Umboðsmaður taldi forræðið liggja hjá stjórnvaldinu en ekki ríkislögmanni
FréttirStjórnsýsla

Umboðs­maður taldi for­ræðið liggja hjá stjórn­vald­inu en ekki rík­is­lög­manni

Ákvörð­un­ar­vald um hvort bóta­skylda sé við­ur­kennd liggur hjá því stjórn­valdi sem bóta­kröfu er beint að og stjórn­völd hafa for­ræði á kröfu­gerð, rök­semdum og ágrein­ings­at­riðum þegar mál fara fyrir dóm­stóla. Þetta er afstaða umboðs­manns Alþingis sam­kvæmt ábend­inga­bréfi sem hann sendi heil­brigð­is­ráð­herra árið 2014, en for­sæt­is­ráðu­neytið gaf út yfir­lýs­ingu á föstu­dag þar sem fram kom að rík­is­lög­maður hefði „almennt for­ræði á kröfu­gerð og fram­setn­ingu hennar“.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár