Sigmundur Davíð segir Steingrím J. ætla að svala hefndarþorsta í sinn garð

Sú máls­með­ferð sem Stein­grímur J. Sig­fús­son hefur kynnt í Klaust­urs­mál­inu jafn­ast á við póli­tísk rétt­ar­höld að mati Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar. Segir Klaust­urs­þing­menn­ina þegar hafa þolað grimmi­lega refs­ingu.

Sigmundur Davíð segir Steingrím J. ætla að svala hefndarþorsta í sinn garð
Segir Stein­grím vilja ná fram hefndum Sig­mundur Davíð telur að Stein­grímur J. sé í hefnd­ar­leið­angri gegn sér. Mynd: Pressphotos.biz - (Geirix)

Sú máls­með­ferð sem Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, hefur kynnt vegna Klaust­urs­máls­ins eru póli­tísk rétt­ar­höld, til þess gerð að ná fram hefndum gegn Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni. Engin lög hafi verið brotin en nú hygg­ist Stein­grímur brjóta lög og þing­sköp Alþingis í þessum hefnd­ar­leið­angri sínum.

Þessu heldur Sig­mundur Davíð fram í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag. Þar fer hann í löngu máli yfir það hvernig hann telur að fram­ganga Stein­gríms þegar kemur að með­ferð Klaust­urs­máls­ins sé á pari við póli­tísk rétt­ar­höld, sem birt­ist nú í því að Stein­grímur hygg­ist breyta ein­hliða og aft­ur­virkt lögum til að ná fyr­ir­fram gef­inni nið­ur­stöðu. Vísar Sig­mundur þar til áforma Stein­gríms um að kosin verði ný, eða auka, for­sætis­nefnd Alþingis til að afgreiða Klaust­urs­málið á þeim grund­velli að sitj­andi for­sætis­nefnd sé van­hæf í mál­inu. Sú for­sætis­nefnd gæti þá vísað Klaust­ur­mál­inu til siða­nefndar Alþingis.

„Viðhorf Stein­gríms til mín er vel þekkt. Hann telur sig eiga harma að hefna og leit­ast nú við að nýta stöðu sína í þeim til­gangi.“ 

„Þetta stang­ast á við lög um þing­sköp á svo víð­tækan hátt að hægt væri að skrifa heila grein bara um það. Eins og fram kom að ofan telst siða­nefndin van­hæf, ver­andi und­ir­nefnd for­sætis­nefndar. Öllum má þá vera ljóst að sér­stök und­ir­nefnd van­hæfrar for­sætis­nefndar valin af van­hæfu fólki í trássi við lög til að afgreiða mál með fyrir fram ákveðnum hætti væri sjálf van­hæf. Þá skiptir engu máli þótt þeir sem létu hafa sig út í slíkt segð­ust ætla að leggja eigið mat á málið. For­send­urnar lægju fyrir, umboðið væri í and­stöðu við lög og van­hæfi hinnar nýju und­ir­nefndar aug­ljóst,“ skrifar Sig­mundur.

Segir Steingrím telja sig eiga harma að hefna gegn sér

Sig­mundur segir engin lög hafa verið brotin í Klaust­ur­mál­inu, sem hann kýs að kalla hler­un­ar­málið, önnur en þau að orða­skipti hans sjálfs, þriggja þing­manna Mið­flokks­ins og tveggja þáver­andi þing­manna Flokks fólks­ins hafi verið tekin upp. Segir Sig­mundur að með því hafi verið „brotin mann­rétt­indi þeirra sem teknir voru upp og þeirra sem talað var um.“ Þeir sem sátu að sum­bli á Klaustri umrætt kvöld og höfðu margs­konar ósið­legt orð­færi uppi hafi ekki gerst sakir um neitt annað en einmitt það, að hafa upp dóna­leg orð í einka­sam­tali. Segir Sig­mundur að fyrir vikið hafi þeira liðið sál­arkvalir og „þegar þolað grimmi­legri refs­ingu en nokkur dóm­stóll myndi telja við­eig­andi.“

Fram­ferði Stein­gríms segir Sig­mundur að sé ein­stakt í sögu Alþingis. Margir hafi haft efa­semdir um hversu heppi­legur hann væri til að gegna hlut­verki for­seta Alþingis og með þess­ari fram­göngu hafi hann rennt stoðum undir þær efa­semdir með afger­andi hætt. „Viðhorf Stein­gríms til mín er vel þekkt. Hann telur sig eiga harma að hefna og leit­ast nú við að nýta stöðu sína í þeim til­gangi. Þó blasir við að ekk­ert af því sem ég sagði í einka­sam­tali sem tekið var upp með ólög­mætum hætti jafn­ast á við fjöl­margt sem þing­for­set­inn sjálfur hefur sagt og gert opin­ber­lega að yfir­lögðu ráði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár