Gagnrýnir fyrirtæki fyrir að brjóta á réttindum úkraínskra starfsmanna

Þor­steinn Hartwig Ein­ars­son, húsa­smíða­meist­ari hjá bygg­inga­fyr­ir­tæk­inu VHM, segir bygg­inga­vöru­fyr­ir­tækið Bergós hafa leigt út úkra­ínska starfs­menn sem fengu borgað undir lág­marks­launum. For­svars­menn Bergós hafna því að þeir hafi leigt út starfs­menn þrátt fyrir gögn sem sýna fram á annað. Vinnu­mála­stofnun er með fyr­ir­tækið til skoð­unar.

Þorsteinn Hartwig Einarsson, húsasmíðameistari hjá byggingafyrirtækinu VHM, leigði út starfsmenn í gegnum fyrirtækið Bergós en komst síðar að því að þeir fengju greitt langt undir lágmarkslaunum.
Þor­steinn Hartwig Ein­ars­son, húsa­smíða­meist­ari hjá bygg­inga­fyr­ir­tæk­inu VHM, leigði út starfs­menn í gegnum fyr­ir­tækið Bergós en komst síðar að því að þeir fengju greitt langt undir lág­marks­launum. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Mér er illa við að verið sé að stunda vinnu­starf­semi með þessu móti,“ segir Þor­steinn Hartwig Ein­ars­son, húsa­smíða­meist­ari hjá bygg­inga­fyr­ir­tæk­inu VHM, sem komst að því að starfs­menn sem hann leigði fyrir bygg­ing­ar­verk­efni í gegnum fyr­ir­tækið Bergós, fengu greitt langt undir þeim lág­marks­launum sem kveðið er á um í íslenskum kjara­samn­ingum. Að sögn Þor­steins komu umræddir starfs­menn frá Úkraínu, sem er utan Schengen, og voru þeir hér á landi sem ferða­menn þrjá mán­uði í senn. Þá var eng­inn þeirra með íslenska kenni­tölu og fengu þeir að eigin sögn greitt fyrir vinnu sína í heima­landi sínu. Þor­steinn segir ljóst að brotið hafi verið á rétt­indum mann­anna. 

Sendu reikn­ing fyrir vinnu­stundumSigurður Bragi Sig­urðs­son, eig­andi Bergós og Fann­t­ó­fells, seg­ist ekki kann­ast við það að fyr­ir­tæki í hans eigu hafi leigt út starfs­menn. Bergós sendi reikn­ing á Þorstein fyrir vinnu­stundum starfs­mann­anna.
…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár