Ísafoldarprentsmiðja segir upp átta starfsmönnum

Ástæðan sögð hag­ræð­ing­ar­að­gerðir hjá fyr­ir­tæk­inu. Kristþór Gunn­ars­son fram­kvæmda­stjóri segir upp­sagn­irnar ekki vera vegna sam­dráttar hjá við­skipta­vinum. Frétta­blaðið er langstærsti aðil­inn sem Ísa­fold­ar­prent­smiðja þjónar.

Ísafoldarprentsmiðja segir upp átta starfsmönnum
Fækka í hag­ræð­ing­ar­skyni Upp­sagnir átta starfs­manna Ísa­fold­ar­prent­smiðju eru ekki sagðar vera vegna þess að neinn af við­skipta­vinum prent­smiðj­unnar hafi dregið saman seglin.

Átta starfs­menn Ísa­fold­ar­prent­smiðju fengu upp­sagn­ar­bréf nú um ára­mótin. Um er að ræða ríf­lega tíu pró­sent allra starfs­manna prent­smiðj­unnar en sam­kvæmt heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins vinna þar um 60 manns. Ástæðan er, að sögn Krist­þórs Gunn­ars­sonar fram­kvæmda­stjóra, hag­ræð­ing­ar­að­gerðir.

Starfs­menn­irnir sem um ræðir vinna flestir eða allir í blaða­prent­un­ar­deild prent­smiðj­unnar. „Við erum að breyta vakta­kerf­inu þannig að það henti betur fram­leiðsl­unni eins og hún er núna. Við sögðum upp þessum átta en svo er ekki víst að við þurfum að segja þeim upp end­an­lega. Við von­umst til að geta end­ur­ráðið þessa starfs­menn alla en það verður bara að koma í ljós,“ segir Kristþór.

Aðspurður hvort ástæðan fyrir hag­ræð­ing­ar­að­gerð­unum og þar með upp­sögn­unum væri að ein­hverjir þeirra aðila sem láta prenta sitt efni hjá Ísa­fold­ar­prent­smiðju væru að draga saman seglin í prentun svar­aði Kristþór því til að svo væri ekki. Frétt­blaðið er stærsti við­skipta­vinur Ísa­fold­ar­prent­smiðju og orðrómur hefur verið uppi um að blaðið skuldi prent­smiðj­unni ótil­greindar fjár­hæðir umfram það sem venja er. Spurður hvort að eitt­hvað sé hæft í því sagði Kristþór að hann gæti hvorki né vildi svara því. „Ég svara því ekki, það er bara trún­að­ar­mál á milli okkar og okkar við­skipta­vina hver staðan er hjá þeim hverju sinni.“ Spurður enn frekar hvort að ástæðan fyrir hag­ræð­ing­að­gerð­unum hjá prent­smiðj­unni mætti rekja til mögu­legra skulda Frétta­blað­ins eða breyt­inga þess á við­skiptum við prent­smiðj­una vildi Kristþór ekki heldur svara því.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár