Stærstu fréttir ársins 2018 (sem við losnum ekki við í bráð)

Enn eitt magn­aða árið er að baki, með fyr­ir­heit um fram­hald atburða á nýju ári.

Stærstu fréttir ársins 2018 (sem við losnum ekki við í bráð)
Trump og Pútín Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur verið vin­veittur Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seta. Óhætt er að segja að þar sé um að ræða umtal­að­asta sam­band árs­ins. Mynd: Shutterstock

Það var skammt stórra högga á milli í erlendum fréttum á árinu sem er að líða og mörg mál enn óupp­gerð. Nokkrar stærstu fréttir árs­ins 2018 munu því senni­lega halda áfram að vera ofar­lega á baugi á kom­andi ári.

Rússar, Rússar alls staðar!

Rússar fóru víða á árinu og þótt­ust margir sjá áhrifa þeirra gæta á hinum og þessum stöðum. Rúss­neskir útsend­arar sæta nú meðal ann­ars rann­sókn fyrir að hag­ræða banda­rískum for­seta­kosn­ing­unum, eitra fyrir njósn­urum á breskri grundu, stunda umfangs­miklar tölvu­árásir og svo mætti lengi telja.

Nú síð­ast þurftu ráða­menn í Kreml að verj­ast ásök­unum um að þeir stæðu að baki mót­mæl­unum í Frakk­landi sem kennd eru við gul vesti. Rússa­grýlan lifir góðu lífi sama hvort afskipti Rússa eru í raun mikil eða engin.

Gulv­estungarGulu vestin eru ein­kenniskilæðn­aður mót­mæl­enda sem vildu stöðva hækkun elds­neyt­is­gjalds, en einnig losna við Macron Frakk­lands­for­seta.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár