Hafró að ljúka greiningu á uppruna níu eldislaxa sem sluppu úr sjókvíum

Haf­rann­sókna­stofnun erfða­greinir níu eld­is­laxa sem sloppið hafa úr sjó­kvíum og veiðst í ferskvatni. Engir eld­is­laxar merktir þrátt fyrir að lög kveði á um það.

Hafró að ljúka greiningu  á uppruna  níu eldislaxa sem sluppu úr sjókvíum
Kom langt að Þessi eld­is­lax, hrygna, veidd­ist á Vatns­dalsá síð­ast­liðið sumar og hefur komið nokkuð langt að þar sem ekk­ert sjó­kvía­eldi er í Skaga­firði eða Húnaflóa. Mynd: Hafrannsóknarstofnun

Haf­rann­sókna­stofnun er við það að ljúka grein­ingu á upp­runa níu eld­is­laxa sem veiðst hafa í villtri nátt­úru Íslands. Um er að ræða DNA-erfða­grein­ingu sem hefur það að mark­miði að kom­ast að því hvaðan, frá hvaða fyr­ir­tæki, umræddir eld­is­laxar sluppu. Þetta segir Guðni Guð­bergs­son, sviðs­stjóri rann­sókna á ferskvatns­fiskum hjá Haf­rann­sókna­stofnun. Meðal ann­ars er um að ræða hrygnu sem veidd­ist síð­sum­ars í fyrra í Vatns­dalsá á Norð­ur­landi en tals­vert var fjallað um þann fisk í fjöl­miðlum. 

Guðni segir að til hafi staðið að ljúka grein­ing­unni á löx­unum fyrir lok þessa árs. „Það er búið að vera að vinna í því að greina hverjir for­eldrar þess­ara fiska voru. Það er vitað af hvaða upp­runa fisk­arnir eru en skrefið sem er eftir er að greina hvert hver fiskur fór, í hvaða eld­is­kví. Þannig að það er ekki búið að rekja þetta alveg alla leið,“ segir Guðni en með þessum hætti er hægt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

FréttirLaxeldi

SFS gagn­rýnir breyt­ingu á gjafa­kvóta í lax­eldi og talar um hann eins og eign

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi hafa skilað gagn­rýnni umsögn um laga­frum­varp mat­væla­ráð­herra um lagar­eldi. Einn af rauðu þráðunum hjá SFS er að rekstr­ar­leyfin í grein­inni séu eign lax­eld­is­fyr­ir­tækj­anna og að ef breyta eigi hug­mynd­inni um ótíma­bundin leyfi í frum­varp­inu þurfi að draga úr og milda margt annað í því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu