Önnur rang­færsla í feril­skránni: Fé­lag sér­kennara segir ekki rétt að Anna Kol­brún hafi verið rit­stjóri Glæða

Í gær sendi Félag þroska­þjálfa á Íslandi út yfir­lýs­ingu þar sem fram kom að Anna Kolbrún Árna­dóttir, þing­kona Mið­flokks­ins, hefði hvorki hlotið til­skylda menntun né fengið starfs­leyfi frá land­lækni þótt hún titl­aði sig þroska­þjálfa í fer­il­skrá. Nú stað­festir Félag sér­kenn­ara á Íslandi að Anna Kolbrún hafi aldrei verið rit­stjóri Glæða þrátt fyrir að titla sig þannig.

Önnur rang­færsla í feril­skránni: Fé­lag sér­kennara segir ekki rétt að Anna Kol­brún hafi verið rit­stjóri Glæða

Anna Kolbrún Árna­dóttir, þing­maður Mið­flokks­ins, hefur aldrei verið rit­stjóri Glæða, fag­tíma­rits sér­kenn­ara, þótt hún haldi því fram á vef Alþingis.

Þetta stað­festir Sædís Ósk Harð­ar­dóttir, for­maður Félags sér­kenn­ara á Íslandi í sam­tali við Stundina. 

Hið rétta er að árin 2011 og 2012 átti Anna Kolbrún sæti í rit­nefnd blaðs­ins ásamt fjórum öðrum. Hermína Gunn­þórs­dóttir var þá rit­stjóri Glæða.

Anna Kolbrún er einn þeirra þing­manna sem hitt­ust á Klaustri bar þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn og létu gamm­inn geysa. Stundin, DV og Kvenna­blaðið hafa fjallað ítar­lega um sam­skiptin sem náð­ust á hljóð­upp­töku.

Þetta er ekki eina rang­færslan sem er að finna í fer­il­skrá Önnu Kol­brúnar á vef Alþingis. Í gær sendi Félag þroska­þjálfa á Íslandi út yfir­lýs­ingu þar sem félagið gerði athuga­semd við að Anna Kolbrún hefði kallað sig þroska­þjálfa á þing­vefnum. 

„ÞÍ hefur stað­fest­ingu frá Land­lækn­is­emb­ætt­inu um að þing­mað­ur­inn hafi hvorki hlotið menntun sem þroska­þjálfi né fengið starfs­leyfi frá emb­ætt­inu,“ segir í yfir­lýs­ing­unni þar sem félagið áréttar að þroska­þjálfi er lög­verndað starfs­heiti.

Hefur Þroska­þjálfa­fé­lag Íslands til­kynnt brotið til land­lækn­is­emb­ætt­is­ins, en brot gegn ákvæðum laga um heil­brigð­is­starfs­menn og reglna sem settar eru á grund­velli þeirra varða sektum eða fang­elsi allt að þremur árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu