Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 6 árum.

Anna Kolbrún þóttist vera þroskaþjálfi og hefur verið tilkynnt til landlæknis

„Þroska­þjálf­a­fé­lag­ið harm­ar að starfs­heit­ið þroska­þjálfi hafi ver­ið mis­not­að með þess­um hætti,“ seg­ir í til­kynn­ingu frá fé­lag­inu.

Anna Kolbrún þóttist vera þroskaþjálfi og hefur verið tilkynnt til landlæknis

A

nna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins, kallaði sig þroskaþjálfa á Alþingisvefnum án þess að hafa hlotið menntun sem þroskaþjálfi né fengið starfsleyfi frá landlækni. Þetta kemur  fram í yfirlýsingu frá Þroskaþjálfafélagi Íslands sem hefur tilkynnt brot Önnu til landlæknisembættisins.

Anna Kolbrún er einn þeirra þingmanna sem hittust á Klaustri bar þann 20. nóvember síðastliðinn og létu gamminn geysa. Stundin, DV og Kvennablaðið hafa fjallað ítarlega um samskiptin sem náðust á hljóðupptöku.

„Alþingismaðurinn Anna Kolbrún Árnadóttir hefur kallað sig þroskaþjálfa í æviágripi sínu á vef Alþingis. Þetta er ekki rétt. ÞÍ hefur staðfestingu frá Landlæknisembættinu um að þingmaðurinn hafi hvorki hlotið menntun sem þroskaþjálfi né fengið starfsleyfi frá embættinu,“ segir í yfirlýsingu Þroskaþjálfafélags Íslands sem send var fjölmiðlum í kvöld. Fram kemur að æviágripi þingmannsins á vef Alþingis hafi nú verið breytt og  starfsheitið þroskaþjálfi sé ekki lengur nefnt þar.

Þroskaþjálfafélagið áréttar að starfsheitið þroskaþjálfi er lögverndað. Samkvæmt íslenskum lögum mega þeir einir nota þetta starfsheiti sem hlotið hafa til þess menntun, þ.e. þroskaþjálfanám sem er fjögurra ára háskólanám, og fengið starfsleyfi frá Landlæknisembættinu. 

„Þroskaþjálfafélagið harmar að starfsheitið þroskaþjálfi hafi verið misnotað með þessum hætti enda þótt starfsheitið sé ekki lengur að finna í æviágripi þingmannsins. Félagið hefur þegar tilkynnt brotið til Landlæknisembættisins sem er eftirlitsaðili samkvæmt lögum um heilbrigðistarfsmenn. Í lögunum kemur fram að þeim sem ekki hefur gilt leyfi landlæknis er óheimilt að nota löggilt starfsheiti eða starfa sem heilbrigðisstarfsmaður. Brot gegn ákvæðum laga um heilbrigðisstarfsmenn og reglna sem settar eru á grundvelli þeirra varða sektum eða fangelsi allt að þremur árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Berg­þór gerð­ur að nefnd­ar­for­manni með tveim­ur at­kvæð­um – Full­trú­ar annarra flokka sátu hjá

Berg­þór Óla­son klæmd­ist og út­húð­aði stjórn­mála­kon­um á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typp­ið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn um­hverf­is- og sam­göngu­nefnd­ar hon­um for­mennsku með hjá­setu í at­kvæða­greiðslu, en að­eins Berg­þór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu at­kvæði með því að hann yrði formað­ur.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ing­ar Berg­þórs og Gunn­ars Braga á um­mæl­um um Al­bertínu skiptu ekki máli

Eft­ir að siðanefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að um­mæli Gunn­ars Braga og Berg­þórs Óla­son­ar um Al­bertínu Frið­björgu Elías­dótt­ur og MeT­oo væru brot á siða­regl­um sögð­ust þing­menn­irn­ir hafa ver­ið að lýsa erfiðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kem­ur lýsingu BÓ og GBS á sam­skipt­um þeirra við Al­bertínu Frið­björgu Elías­dótt­ur, sbr. kafli 2.5., verð­ur ekki séð að lýsing­ar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxt­um,“ seg­ir for­sæt­is­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Hann var búinn að öskra á hjálp
2
Viðtal

Hann var bú­inn að öskra á hjálp

Hjalti Snær Árna­son hvarf laug­ar­dag­inn 22. mars. For­eldr­ar hans lásu fyrst um það í frétt­um að hans væri leit­að í sjón­um, fyr­ir það héldu þau að hann væri bara í göngu­túr. En hann hafði lið­ið sál­ar­kval­ir, það vissu þau. Móð­ir Hjalta, Gerð­ur Ósk Hjalta­dótt­ir, lýs­ir því hvernig ein­hverf­ur son­ur henn­ar gekk á veggi allt sitt líf, og hvernig hann veikt­ist svo mik­ið and­lega að þau voru byrj­uð að syrgja hann löngu áð­ur en hann var dá­inn.

Mest lesið í mánuðinum

Hann var búinn að öskra á hjálp
4
Viðtal

Hann var bú­inn að öskra á hjálp

Hjalti Snær Árna­son hvarf laug­ar­dag­inn 22. mars. For­eldr­ar hans lásu fyrst um það í frétt­um að hans væri leit­að í sjón­um, fyr­ir það héldu þau að hann væri bara í göngu­túr. En hann hafði lið­ið sál­ar­kval­ir, það vissu þau. Móð­ir Hjalta, Gerð­ur Ósk Hjalta­dótt­ir, lýs­ir því hvernig ein­hverf­ur son­ur henn­ar gekk á veggi allt sitt líf, og hvernig hann veikt­ist svo mik­ið and­lega að þau voru byrj­uð að syrgja hann löngu áð­ur en hann var dá­inn.
Forsprakki útifundar játaði fjárdrátt á leikskólanum Klettaborg
5
Fréttir

Forsprakki úti­fund­ar ját­aði fjár­drátt á leik­skól­an­um Kletta­borg

Sig­fús Að­al­steins­son, stofn­andi hóps­ins Ís­land - þvert á flokka, sem stend­ur fyr­ir úti­fund­um um hæl­is­leit­end­ur, ját­aði á sig fjár­drátt frá leik­skól­an­um Kletta­borg þeg­ar hann var for­stöðu­mað­ur þar. Hann vill ekki dæma hvort brot af því tagi séu nógu al­var­leg til að inn­flytj­end­ur sem gerð­ust sek­ir um þau ætti að senda úr landi.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár