Alþingi hefur engar upplýsingar um bílferðir Klaustursþingmanna

Engar upp­tökur eru til úr Alþing­is­hús­inu eða bíla­stæða­húsi þess frá kvöld­inu sem sex þing­menn sátu við drykkju á Klaustri bar. Alþingi getur ekki veitt upp­lýs­ingar um hvort þing­menn keyrðu heim eftir sam­sætið.

Alþingi hefur engar upplýsingar um bílferðir Klaustursþingmanna

Skrif­stofa Alþingis getur hvorki né myndi afhenda upp­tökur úr Alþing­is­hús­inu til að stað­festa hvort þing­menn­irnir í Klaust­urs­mál­inu hafi keyrt heim að kvöld­inu loknu eða ekki. Þetta kemur fram í svari Helga Bern­ód­us­sonar, skrif­stofu­stjóra Alþingis, við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Gunnar Bragi Sveins­son, Bergþór Ólason og Anna Kolbrún Árna­dóttir, þing­menn Mið­flokks­ins, voru á Klaustri bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn og ræddu við Ólaf Ísleifs­son og Karl Gauta Hjalta­son, þing­menn Flokks fólks­ins, um að ganga í Mið­flokk­inn. Orða­skiptin voru mjög hávær, áttu sér stað í vitna við­ur­vist og náð­ust að hluta á upp­töku, sem Stundin hefur undir höndum.

Ljóst er á upp­tök­unni að tals­vert magn af áfengi var haft um hönd þessa kvöld­stund. Stundin beindi því fyr­ir­spurn til skrif­stofu Alþingis um hvort ferðir þing­manna til og frá þing­hús­inu og bíla­kjall­ara þess væru til á upp­töku eða skráðar með ein­hverjum hætti.

„Það er ekki fylgst með því hvenær og hvernig …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár