Álit siðanefndar ráðgefandi og „Alþingi getur því í raun mjög lítið gert“

For­dæma­laust ástand er komið upp þar sem siða­nefnd Alþingis hefur verið kölluð saman vegna Klaust­urs­máls­ins, að mati stjórn­mála­fræð­ings. Alþingi hefur ekk­ert vald til að víkja þing­mönnum, sama þó álit nefnd­ar­innar verði þeim óhag­stætt.

Álit siðanefndar ráðgefandi og „Alþingi getur því í raun mjög lítið gert“
Alþingi í gær Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, bað í gær þjóð­ina afsök­unar á fram­ferði þing­mann­anna sem náð­ust á upp­töku. Mynd: Pressphotos

Álit siða­nefndar Alþingis er ein­ungis ráð­gef­andi og þingið hefur ekk­ert vald til þess að víkja þing­mönnum úr sæti ef álitið er þeim óhag­stætt. Þetta segir Ólafur Harð­ar­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, við Morg­un­blaðið í dag.

For­sætis­nefnd Alþingis hefur vísað máli þing­mann­anna sem náð­ust á upp­töku á Klaustri bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn til siða­nefndar Alþingis. Siða­nefnd­ina skipa Ásta Ragn­heiður Jóhann­es­dóttir, for­maður og fyrr­ver­andi for­seti Alþingis, Haf­steinn Þór Hauksson, dós­ent við laga­deild Háskóla Íslands, og Salvör Nordal, doktor í heim­speki og umboðs­maður barna.

Ólafur segir þetta for­dæma­laust ástand þar sem svona mál hefur ekki komið upp áður. „Það er þó ekki að sjá að hægt verði að gera mikið með það álit,“ segir hann. „Þetta er bara ráð­gef­andi álit og þótt það verði þeim mjög óhag­stætt breytir það ekki því að það eru þing­menn­irnir sjálfir sem ákveða hvort þeir segja af sér eða ekki.“

Siða­nefndin var skipuð í febr­úar í fyrra, en þings­á­lyktun um siða­reglur Alþingis hafði verið sam­þykkt ári fyrr. „Alþingi getur því í raun mjög lítið gert,“ segir Ólafur. „En ef úrskurður siða­nefndar verður umræddum þing­mönnum óhag­stæður er það auð­vitað áfell­is­dómur yfir þeim. Það mun þó ekki hafa neinar beinar afleið­ingar varð­andi stöðu þeirra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár