Anna Kolbrún þóttist vera þroskaþjálfi og hefur verið tilkynnt til landlæknis

„Þroska­þjálfa­fé­lagið harmar að starfs­heitið þroska­þjálfi hafi verið mis­notað með þessum hætti,“ segir í til­kynn­ingu frá félag­inu.

Anna Kolbrún þóttist vera þroskaþjálfi og hefur verið tilkynnt til landlæknis

A

nna Kolbrún Árna­dóttir, þing­maður Mið­flokks­ins, kall­aði sig þroska­þjálfa á Alþing­isvefnum án þess að hafa hlotið menntun sem þroska­þjálfi né fengið starfs­leyfi frá land­lækni. Þetta kemur  fram í yfir­lýs­ingu frá Þroska­þjálfa­fé­lagi Íslands sem hefur til­kynnt brot Önnu til land­lækn­is­emb­ætt­is­ins.

Anna Kolbrún er einn þeirra þing­manna sem hitt­ust á Klaustri bar þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn og létu gamm­inn geysa. Stundin, DV og Kvenna­blaðið hafa fjallað ítar­lega um sam­skiptin sem náð­ust á hljóð­upp­töku.

„Alþing­is­mað­ur­inn Anna Kolbrún Árna­dóttir hefur kallað sig þroska­þjálfa í ævi­á­gripi sínu á vef Alþingis. Þetta er ekki rétt. ÞÍ hefur stað­fest­ingu frá Land­lækn­is­emb­ætt­inu um að þing­mað­ur­inn hafi hvorki hlotið menntun sem þroska­þjálfi né fengið starfs­leyfi frá emb­ætt­inu,“ segir í yfir­lýs­ingu Þroska­þjálfa­fé­lags Íslands sem send var fjöl­miðlum í kvöld. Fram kemur að ævi­á­gripi þing­manns­ins á vef Alþingis hafi nú verið breytt og  starfs­heitið þroska­þjálfi sé ekki lengur nefnt þar.

Þroska­þjálfa­fé­lagið áréttar að starfs­heitið þroska­þjálfi er lög­verndað. Samkvæmt íslenskum lögum mega þeir einir nota þetta starfs­heiti sem hlotið hafa til þess menntun, þ.e. þroska­þjálfa­nám sem er fjög­urra ára háskóla­nám, og fengið starfs­leyfi frá Land­lækn­is­emb­ætt­inu. 

„Þroska­þjálfa­fé­lagið harmar að starfs­heitið þroska­þjálfi hafi verið mis­notað með þessum hætti enda þótt starfs­heitið sé ekki lengur að finna í ævi­á­gripi þing­manns­ins. Félagið hefur þegar til­kynnt brotið til Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins sem er eft­ir­lits­að­ili sam­kvæmt lögum um heil­brigði­starfs­menn. Í lög­unum kemur fram að þeim sem ekki hefur gilt leyfi land­læknis er óheim­ilt að nota lög­gilt starfs­heiti eða starfa sem heil­brigð­is­starfs­maður. Brot gegn ákvæðum laga um heil­brigð­is­starfs­menn og reglna sem settar eru á grund­velli þeirra varða sektum eða fang­elsi allt að þremur árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár