Brutu þingskapalög með drykkju á vinnutíma

Fjórir þing­menn Mið­flokks­ins brutu þing­skap­a­lög með því að víkja af þing­fundi til að fara á bar­inn. Þingmenn þurfa að velja og hafna við­veru, segir skrif­stofu­stjóri Alþingis.

Brutu þingskapalög með drykkju á vinnutíma

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Gunnar Bragi Sveins­son, Bergþór Ólason og Anna Kolbrún Árna­dóttir, þing­menn Mið­flokks­ins, brutu lög um þing­sköp með því að fara á Klaustur bar 20. nóv­em­ber.

Stundin hefur undir höndum upp­töku af sam­skiptum þeirra, en þing­menn­irnir voru háværir og vakti hegðun þeirra athygli í vitna við­ur­vist.

Þennan dag var þing­fundi slitið kl. 21:36. Þing­menn­irnir mættu á bar­inn rétt eftir að umræðum um fjár­lög lauk kl. 20:39, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. Þá átti enn eftir að ræða tvö mál, vöru­gjöld af öku­tækjum og auka­tekjur rík­is­sjóðs.

Í 65. grein laga um þing­sköp segir: „Skylt er þing­mönnum að sækja alla þing­fundi nema nauð­syn banni. Forföll skal til­kynna for­seta svo fljótt sem unnt er og metur hann nauð­syn­ina.“

Enginn umræddra þing­manna hafði leyfi þennan dag, sam­kvæmt vef Alþingis. Á upp­tök­unni og ljós­mynd, sem heim­ild­ar­maður Stund­ar­innar sendi með þeim, má heyra og sjá að áfengir drykkir voru hafðir um hönd.

Ekki alltaf fullskipað í þingsalnum

Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, segir engin við­ur­lög vera við brotum á þing­skap­a­lögum með þessum hætti. Mæting þing­manna á þing­fundi sé með ýmsu móti. „Það er nú allur gangur á því hvernig þetta er fram­kvæmt,“ segir Helgi. „Það er ekki alltaf full­skipað í þingsalnum. Sér­stak­lega þegar líður á kvöld hafa menn látið nefnd­ar­menn fyrst og fremst um umræð­una.“

Helgi segir fram­kvæmd þessa ekki alltaf vera sam­kvæmt bók­staf lag­anna. Þingmenn séu oft áfram í þing­hús­inu, til dæmis í þing­flokks­her­bergjum eða á kaffi­stofu eftir atvikum. „Svo verða menn í þessu starfi svo­lítið að velja og hafna. Þegar mikið erum að vera eru auð­vitað lang­flestir inni í þing­sal. Allir sjá þegar sýnt er úr salnum er ekki skipað í hvert sæti,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár