Vigdís segist þurfa að melta ummæli samflokksmanna sinna

Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, ætlar að njóta þess að mæta á 1. des­em­ber fagnað í þing­hús­inu í kvöld. Hún ætli að taka afstöðu til umræð­unnar á morgun.

Vigdís segist þurfa að melta ummæli samflokksmanna sinna
Segjast ekki búnar að kynna sér málið Bæði Vigdís og Una María segja að þær hafi ekki gefið sér tíma til að kynna sér ummæli sam­flokks­manna sinna til hlítar.

Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, seg­ist ætla að njóta dags­ins í árlegum fagn­aði fyrr­ver­andi þing­manna í Alþing­is­hús­inu. Hún þurfi að melta ummæli sam­flokks­manna sinna og hyggst taka afstöðu til þeirra á morgun. Una María Ósk­ars­dóttir, for­maður kjör­dæm­is­fé­lags Mið­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, segir að um sé að ræða „mjög óheppi­legar aðstæður þarna á ein­hverjum bar í Reykja­vík.“

Vigdís seg­ist ekki hafa haft tóm til að ná áttum í umræð­unni. „Alveg hreint út sagt þá er ég ekki búin að ná almenni­lega utan um þetta. Ég er að hugsa um að gefa mér dag­inn í dag til að hugsa málið og sjá hvernig mál þró­ast. Það eru alltaf að koma meiri og meiri upp­lýs­ingar fram. Daginn í dag ætla ég að nota til að njóta þess að mæta í Alþing­is­húsið og taka þátt í árlegum 1. des­em­ber fagn­aði fyrr­ver­andi þing­manna og núver­andi þing­manna. Ég þarf bara aðeins að melta þetta.“

Spurð hvort hún telji ástæðu til að málið verði tekið til umræðu á vett­t­vangi flokks­ins segir Vigdís að sú krafa hljóti að koma frá gras­rót flokks­ins, henni þyki það í það minnsta lík­legt. „Við verðum þá að verða við því og ræða þessi mál.“

Una María Ósk­ars­dóttir, for­maður kjör­dæma­ráðs Mið­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, sagði þegar Stundin náði sam­bandi við hana að hún væri ekki búin að gefa sér tíma til að fara yfir umræð­una. Una María er fyrr­ver­andi for­maður Lands­sam­bands Fram­sókn­ar­kvenna og spurð hvort hún henni þætti orð­notkun sam­flokks­manna sinna um konur ekki óvið­eig­andi ját­aði Una því þó. „Fólk á auð­vitað ekki að tala svona en ég þarf bara að lesa þetta betur til að átta mig á sam­heng­inu. Kom ekki fram að þetta hefði heyrst illa?“

Blaða­maður benti þá á að ekki þyrfti að velkj­ast í vafa um að Bergþór Ólason hefði farið mjög ljótum orðum um Ingu Sæland. „Já, hann er nú búinn að biðj­ast afsök­unar á því. Þetta eru mjög óheppi­legar aðstæður þarna á ein­hverjum bar í Reykja­vík. Auðvitað sjá allir að þetta er mjög skrýtin umræða og þó maður svo sem viti að fólk geti látið ýmis­legt flakka, sem að er auð­vitað sumt kannski sagt í gríni, að þegar það er komið í stærra sam­hengi þá kemur það alls ekki vel út og menn eiga ekki að tala þannig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár