„Algjörlega út úr kortinu að háskólinn komi fram með þessum hætti gagnvart undirokuðum og jaðarsettum hópi“

Auður Magndís Auð­ar­dóttir, stunda­kenn­ari og dokt­or­snemi við Háskóla Íslands, segir skól­ann gera lítið úr eigin þekk­ing­ar­fram­leiðslu með því að stunda tann­grein­ingar á fylgd­ar­lausum börnum. Dokt­or­snemar og starfs­menn við mennta­vís­inda­svið hafa bæst í hóp þeirra sem gagn­rýna sam­starf skól­ans við Útlend­inga­stofnun harð­lega.

„Algjörlega út úr kortinu að háskólinn komi fram með þessum hætti gagnvart undirokuðum og jaðarsettum hópi“

Háskóli Íslands tekur afstöðu gegn mann­rétt­indum und­ir­ok­aðs hóps og fer gegn þeirri þekk­ingu sem skap­ast hefur innan veggja skól­ans með því að ann­ast tann­grein­ingar á fylgd­ar­lausum börnum fyrir Útlend­inga­stofnun. Á meðan fræði­menn við skól­ann vita full­vel hversu vafasöm vís­indi það séu að úrskurða um aldur við­kom­andi ein­stak­linga með því að rann­saka enda­jaxl­ana á þeim, gerir skól­inn Útlend­inga­stofnun kleift að byggja ákvarð­anir sínar áfram á þessum vís­indum. Háskóli Íslands gefur þannig slæmt for­dæmi og gerir lítið úr eigin þekk­ing­ar­fram­leiðslu auk þess sem hann leggur blessun sína yfir aðferð sem hefur verið gagn­rýnd harð­lega af helstu mann­rétt­inda­sam­tökum heims.

Þetta segir Auður Magndís Auð­ar­dóttir, dokt­or­snemi í félags­fræði mennt­unar og stunda­kenn­ari við Háskóla Íslands, en hún er ein þeirra 49 starfs­manna og dokt­or­snema á Mennta­vís­inda­sviði Háskóla Íslands sem skrif­uðu í gær, þriðju­dag, undir yfir­lýs­ingu þar sem tann­grein­ingum á hæl­is­leit­endum er harð­lega mót­mælt og stjórn­endur skól­ans hvattir til að láta af samn­ings­gerð við Útlend­inga­stofnun um slíka starf­semi innan veggja skól­ans.

Auður, sem tekur fram að hún tjái sig ekki fyrir hönd hóps­ins í heild sinni, segir það skjóta skökku við að háskól­inn ann­ist röntgen­rann­sóknir á tönnum fylgd­ar­lausra barna á sama tíma og rann­sóknir fræði­manna innan skól­ans sýni fram á mik­il­vægi þess að börn og ungt fólk almennt fái sér­stakt aðhald, stuðn­ing og tæki­færi til að þroskast. Auður Magndís bendir á að það sé við­ur­kennt innan mennta- og upp­eld­is­fræð­innar að barn verði ekki full­orðið á einum degi. „Við vitum það alveg, og það vita það allir sem eru yfir höfuð mann­eskjur og hafa lifað, að þú ert ekki barn einn dag­inn og full­orð­inn þann næsta.“

Háskólinn verði að taka afstöðu

Fagfólk í mennta­vís­indum benti á sam­fé­lags­legt hlut­verk mennta­stofn­ana í yfir­lýs­ingu sinni. Sem slíkri stofnun beri Háskóla Íslands að vernda og styðja ung­menni sem hingað koma í leit að örugg­ara lífi. „Háskólar hafa sem mennta­stofn­anir sér­stakt hlut­verk og tæki­færi til að upp­fóstra og búa til gott sam­fé­lag. Þess vegna finnst mér algjör­lega út úr kort­inu að háskól­inn komi fram með þessum hætti gagn­vart svo und­ir­ok­uðum og jað­ar­settum þjóð­fé­lags­hópi,“ segir Auður Magndís í sam­tali við Stundina.

Háskólar séu ekki hlut­lausar stofn­anir í ein­hverju tóma­rúmi algjör­lega ótengdar öðrum valdastrúkt­úrum sam­fé­lags­ins. Því þurfi háskól­inn að skil­greina og rækta sitt sam­fé­lags­lega hlut­verk með með­vit­und um hin ólíku valda­kerfi sam­fé­lags­ins. „Þess vegna finnst mér að háskól­inn verði absalút að taka virka afstöðu með mann­rétt­indum, í til­felli þessa hóps, sem er ungur, mjög jað­ar­settur og á flótta,“ segir Auður Magndís.

„Þess vegna finnst mér algjör­lega út úr kort­inu að háskól­inn sé að koma fram með þessum hætti gagn­vart svo und­ir­ok­uðum og jað­ar­settum þjóð­fé­lags­hópi“ 

Sé val­kvættJón Atli Bene­dikts­son rektor Háskóla Íslands, hefur sagt að tann­grein­ingar séu val­kvæðar en það getur haft alvar­legar afleið­ingar fyrir hæl­is­um­sókn umsækj­anda neiti hann að fara í slíka grein­ingu.

Stundin greindi frá því þann 26. sept­em­ber síð­ast­lið­inn að Útlend­inga­stofnun og háskól­inn ynnu að gerð þjón­ustu­samn­ings um ald­urs­grein­ingar á tönnum hæl­is­leit­enda. Stúd­enta­ráð Háskóla Íslands ályktaði gegn samn­ings­gerð­inni og taldi hana sið­ferði­lega óverj­andi. Þann 7. nóv­em­ber lýstu svo Lands­sam­tök íslenskra stúd­enta yfir stuðn­ingi allra stúd­enta á Íslandi og íslenskra stúd­enta erlendis við afstöðu Stúd­enta­ráðs. 

Mikilvægt að verja mannhelgi ungmenna

Gagn­rýnin frá starfs­mönnum og dokt­or­snemum af Mennta­vís­inda­sviði bæt­ist þannig við þá gagn­rýni sem þegar er komin fram frá nem­endum við skól­ann, og er sam­hljóða henni í meg­in­at­riðum. Benda þeir meðal ann­ars á að fræði­menn innan Háskóla Íslands hafi hluta lífs­við­ur­væris síns af rann­sóknum sem snúa að aðstæðum þessa við­kvæma hóps „og því er enn mik­il­væg­ara en ella að stofn­unin sem slík taki skýra afstöðu með rétt­indum og mann­helgi ung­menn­anna. Annað er sið­ferð­is­lega óverj­andi.“

Í þessu sam­hengi segir Auður að Háskóla Íslands skuldi þessum við­kvæma hópi fólks stuðn­ing og sam­stöðu með mann­rétt­indum þeirra. Hæl­is­leit­endur og fólk á flótta veiti rann­sak­endum við háskól­ann aðgengi að lífi sínu með marg­vís­legum hætti þegar kemur að hvers kyns rann­sóknum og þess vegna sé ákveð­inn tví­skinn­ungur fólg­inn í því að snúa baki við mann­rétt­indum þeirra með þessum hætti.

„Þú getur ekki beðið um það með hægri hend­inni að fólk veiti þér þekk­ingu og tæki­færi til að stunda rann­sóknir sem skapa þér tekjur, en snúið þér svo við og beitt vinstri hend­inni til þess að láta skoða enda­jaxl­ana á þessu sama fólki svo hægt sé að senda það úr landi. Þetta er bara ekki bjóð­andi.“

„Óviðeigandi og ósiðlegar“ 

Ald­urs­grein­ingar sem byggja á lík­ams­rann­sóknum á borð við röntgen­mynda­tökur af tönnum eru afar umdeildar enda eru tann­læknar ósam­mála um áreið­an­leika og vís­inda­legt gildi slíkra rann­sókna. Tann­lækna­sam­tök Bret­lands hafa sagt þær „óvið­eig­andi og ósið­legar“ þar sem þær geti aldrei gefið nákvæmar upp­lýs­ingar um aldur, auk þess sem alþjóð­legar stofn­anir og mann­rétt­inda­sam­tök á borð við Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna, Evr­ópu­ráðið, ECRE (e. European Council of Refugees and Exiles) og Barna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNICEF), hafa gagn­rýnt þær harð­lega. Þá hefur Rauði kross­inn á Íslandi ítrekað lagst gegn þeim vegna óná­kvæmni og sið­ferð­is­legra álita­mála.

Auður seg­ist hafa orðið vör við það að und­an­förnu að and­staða við tann­grein­ingar fari vax­andi innan veggja skól­ans, hvort sem er á meðal nem­enda eða starfs­manna, eins og birst hefur í fyrr­nefndum yfir­lýs­ingum. Hún telur sig hafa skynjað ákveðna þögn vegna máls­ins sem sé mögu­lega að bresta nú þegar bæði nem­endur og starfs­menn skól­ans eru farnir að tjá sig með svo gagn­rýnum hætti.

„Okkur fannst, sem fag­fólki í mennta­vís­indum að það væri ein­hvern­veg­inn ótrú­lega mik­il­vægt að benda á þetta sam­fé­lags­lega hlut­verk háskól­ans, sem stúd­ent­arnir gerðu líka í sinni yfir­lýs­ingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár