Áhyggjur af íslenskum drengjum

87% þeirra sem fremja sjálfs­víg á aldr­inum 15–35 ára eru karlar.

Áhyggjur af íslenskum drengjum

Karl Gauti Hjalta­son, þing­maður Flokks fólks­ins, vakti athygli á bágri stöðu drengja í ræðu sinni á Alþingi í gær, fimmtu­dag. „Sann­ar­lega virð­ist svo vera að hið unga karl­kyn eigi í mik­illi til­vist­ar­kreppu hér í okkar ágæta landi,“ sagði Karl Gauti, sem vís­aði orðum sínum til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra. Velti þing­mað­ur­inn því meðal ann­ars upp hvort klám­væð­ing eða tölvu­leikja­notkun væri orsaka­valdur þegar kæmi að slæmri líðan ungra manna á Íslandi. 

Karl Gauti vís­aði í tölur máli sínu til stuðn­ings og benti til að mynda á að 87% þeirra sem fremja sjálfs­víg á aldr­inum 15–35 ára séu karlar. Þá vakti hann jafn­framt athygli á því að ungir menn væru ein­ungis 30% þeirra sem ljúka meistara­gráðu úr háskól­anum og að brott­fall drengja úr fram­halds­skólum væri mun meira en hjá stúlkum. Hann benti á að nýgengi í örorku hefði á und­an­förnum árum verið miklu örari meðal yngri karla en kvenna.

„Hver eru áhrif þeirrar umræðu á sjálfs­mynd hins unga karl­kyns?“

„Á þess­ari upp­taln­ingu, sem þó er ein­ungis sýn­is­horn af þeim stað­reyndum sem blasa við okkur, um ástandið meðal hins unga karl­kyns, sést vel að við svo búið verður ekki unað. Við getum ekki sætt okkur við að ungir drengir og ungir menn finni sig ekki og líði illa og að við missum þá í aðgerða­leysi, afbrot, vímu­efna­neyslu, örorku og því miður jafn­vel sjálfs­víg. — Hvað er að?“ spurði þing­mað­ur­inn sem varp­aði í kjöl­farið fram sínum eigin hug­leið­ingum og spurn­ingum. 

„Skortir drengi föð­urí­mynd, heima við og í skól­unum? Margir vilja halda því fram. Feðurnir eða karl­arnir séu ekki til staðar, vinni of mikið, séu fjar­ver­andi.“ Þá spurði hann hvort hin nei­kvæða umræða gegn karl­kyn­inu í heild gæti haft þessi áhrif. „Hver eru áhrif þeirrar umræðu á sjálfs­mynd hins unga karl­kyns? Það er verð­ugt rann­sókn­ar­efni.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár