Tekur afsökunarbeiðni Björns Braga gilda

Stúlkunni sem Björn Bragi Arn­ars­son áreitti var brugðið og atvikið olli henni óþæg­indum, sam­kvæmt til­kynn­ingu. Hún tekur afsök­un­ar­beiðni hans gilda og vill að atburða­rásin taki enda. Önnur kona steig fram og sagði hann hafa áreitt sig.

Tekur afsökunarbeiðni Björns Braga gilda
Óskar þess að umræð­unni linni Stúlkan sem Björn Bragi Arn­ars­son áreitti hefur tekið afsök­un­ar­beiðni hans. Mynd: RÚV

Stúlkan sem sjón­varps­mað­ur­inn Björn Bragi Arn­ars­son áreitti um helg­ina segir að sér hafi verið brugðið og að atvikið hafi valdið henni óþæg­indu. Hún hafi ekki viljað að mynd­band af atvik­inu færi í dreif­ingu og vill að sú atburða­rás sem fór af stað með dreif­ingu á því taki enda.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem stúlkan sendi fjöl­miðlum í gær­kvöldi. Hún og for­eldrar hennar taki afsök­un­ar­beiðni Björns Braga og seg­ist stúlkan hafa upp­lifað mikil óþæg­indi frá fjöl­miðlum vegna máls­ins. Hún biður því um að nafn hennar og per­sóna verði ekki til umfjöll­unar.

„Ég óska ein­læg­lega að þessu linni og að það sé hér með leið­rétt að þetta atvik var ekki með þeim hætti sem reynt er að setja í bún­ing alvar­legrar kyn­ferð­is­legrar áreitni,“ segir í yfir­lýs­ing­unni. „Ég vil taka það fram að ég er 17 ára og fær um að meta sjálf sam­skipti við aðra ein­stak­linga og mín mörk.“

Stundin ræddi í gær við móður stúlkunnar. Hún sagði að svo komnu máli hyggð­ust hvorki stúlkan né fjöl­skylda hennar ræða málið frekar. 

Björn Bragi ját­aði í færslu á Facebook aðfar­arnótt þriðju­dags að hafa snert stúlk­una „á ósæmi­legan hátt“ og baðst afsök­unar. Atvikið átti sér stað á veit­inga­stað Hlölla­báta á Akureyri og fór mynd­band af því í dreif­ingu á sam­fé­lags­miðlum á mánu­dags­kvöld. Brot Björns Braga gætu varðað við allt að tveggja ára frang­elsi sam­kvæmt almennum hegn­ing­ar­lögum. Hefur hann ákveðið að hætta sem spyrill í spurn­inga­keppn­inni Gettu betur vegna máls­ins.

Önnur kona steig fram

Þór­hildur Gyða Arn­ars­dóttir birti færslu á Twitter síð­degis í gær þar sem hún sagði Björn Braga hafa áreitt sig og fleiri vin­konur hennar. „Ég velti því fyrir mér hvort þessi unga stelpa hefði fengið afsök­un­ar­beiðni frá honum ef hún hefði EKKI tekið þetta upp en bara ákveðið að segja frá? Hefði sam­fé­lagið trúað henni?“ skrifar Þór­hildur.

Í færsl­unni seg­ist hún vona að Björn Bragi læri af hegðun sinni og taki afleið­ing­unum. „Það minnsta sem ein­stak­lingur getur gert er að biðj­ast afsök­unar á brotum sínum gagn­vart öðrum og það á einnig að vera sjálf­sagt mál að taka ábyrgð á gjörðum sínum,“ skrifar hún.

Yfirlýsingin stúlkunnar í heild sinni

Ég sendi þessa yfir­lýs­ingu til fjöl­miðla, vegna frétta af atviki á veit­inga­stað Hlölla­báta á Akureyri aðfara­nótt sl., sunnu­dags, þar sem lands­þekktur skemmti­kraftur og fjöl­miðla­maður er sak­aður um hátt­semi sem sé kyn­ferð­is­leg áreitni við stúlku.

Ég er sú stúlka sem um ræðir.

Ég tók mynd af þessum þekkta manni þegar hann snerti mig, mér var brugðið og þetta olli mér óþæg­indum. Ég sendi þetta mynd­skeið til nokk­urra vina minna sem var hugs­un­ar­leysi. Í fram­haldi var það komið mjög víða og ég fékk fljót­lega við­brögð frá fólki sem var með mjög sterkar mein­ingar um kyn­ferð­is­legt athæfi og áreitni. Það var þá sem það rann upp fyrir mér að það var komin af stað atburða­rás sem ég ræð ekk­ert við og var aldrei ætl­unin. Ég hef haft af þessu mikil óþæg­indi einkum frá fjöl­miðlum þar sem verið er að gera úr þessu eitt­hvað sem ég upp­lifði ekki.

Ég óska ein­læg­lega að þessu linni og að það sé hér með leið­rétt að þetta atvik var ekki með þeim hætti sem reynt er að setja í bún­ing alvar­legrar kyn­ferð­is­legrar áreitni. Ég vil taka það fram að ég er 17 ára og fær um að meta sjálf sam­skipti við aðra ein­stak­linga og mín mörk.

Ég vil taka fram að mjög fljót­lega í því ferli sem fór af stað eftir að mynd­irnar fóru út, hefur þessi ein­stak­lingur sem í hlut átti, nokkrum sinnum haft sam­band við mig og for­eldra mína og beðist fyr­ir­gefn­ingar á fram­komu sinni.

Fyr­ir­gefn­ingin er tekin góð og gild af minni hálfu og for­eldra minna.

Ég bið einnig um að nafn mitt og per­sóna verði ekki  umfjöll­un­ar­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár