Ráðuneytið dró upp villandi mynd af fjárhagsvanda Íslandspósts

Fjár­mála­ráðu­neytið rétt­lætti 500 millj­óna lán­veit­ingu með mis­vísandi hætti og rakti fjár­hags­vanda Íslands­pósts til bréfa­pósts og alþjón­ustu þrátt fyrir að slík þjón­usta hafi skilað umtals­verðum hagn­aði und­an­farin ár.

Ráðuneytið dró upp villandi mynd af fjárhagsvanda Íslandspósts
Aðstoð­ar­maður í stjórn Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra skip­aði Svan­hildi Hólm Vals­dóttur aðstoð­ar­konu sína í stjórn Íslands­pósts sem nú fær neyð­ar­lán frá rík­inu. Dregin er upp vill­andi mynd af for­sendum láns­ins í frétta­til­kynn­ingu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. Mynd: Pressphotos.biz / Geiri

Fjár­mála­ráðu­neytið dró upp vill­andi mynd af fjár­hags­mál­efnum Íslands­pósts í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs­ins þann 14. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Í til­kynn­ing­unni er lausa­fjár­vandi fyr­ir­tæk­is­ins rak­inn til þess að tekjur af bréfa­send­ingum vegna alþjón­ustu hafi dreg­ist saman. Raunin er hins vegar sú að bréfa­send­ingar innan einka­réttar hafa skilað Íslands­pósti við­var­andi hagn­aði und­an­farin ár auk þess sem Póst- og fjar­skipta­stofnun stað­festi fyrr á árinu að rekstr­ar­vandi Íslands­pósts væri ekki til­kom­inn vegna alþjón­ustu­skyldna. 

Tekjur af einka­rétt­ar­þjón­ustu pósts­ins juk­ust úr 2,8 millj­örðum í 3,2 millj­arða milli áranna 2015 og 2016 og námu 3,3 millj­örðum í fyrra um leið og rekstr­ar­gjöld stóðu nokkurn veg­inn í stað.

Eins og Stundin fjall­aði um í gær virð­ist Íslands­póstur hafa oftekið gjöld innan einka­rétt­ar­ins upp á hund­ruð millj­óna und­an­farin tvö ár. Póst- og fjar­skipta­stofnun hefur áður gefið þau svör að sá við­snún­ingur frá rekstr­ar­ár­inu 2015 stafi meðal ann­ars af tekju­aukn­ingu umfram áætlun og hag­ræð­ing­ar­að­gerðum.

Til­kynn­ing fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins birt­ist um miðjan sept­em­ber eftir að Stundin hafði greint frá því að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra ætl­aði að veita Íslands­pósti lán upp á 500 millj­ónir króna.

Aðstoð­ar­maður Bjarna, Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, er vara­for­maður stjórnar Íslands­pósts og hefur setið í stjórn­inni frá því í mars 2014. Stjórn­inni ber, sam­kvæmt sam­þykktum Íslands­pósts, að hafa stöðugt og ítar­legt eft­ir­lit með öllum rekstri félags­ins og setja gjald­skrá í sam­ræmi við ákvæði laga um póst­þjón­ustu. Stjórn­ar­for­maður Íslands­pósts er Bjarni Jónsson, fyrr­ver­andi vara­þing­maður Vinstri grænna, og for­stjóri er Ingi­mundur Sig­ur­páls­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Garða­bæjar sem einnig er stjórn­ar­for­maður og full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í stjórn Isavia. 

„Neikvæð áhrif á efnahag og lausafjárstöðu“

„Tekjur af bréfa­send­ingum vegna alþjón­ustu hafa dreg­ist saman á sama tíma og dreifi­kerfið hefur stækkað með fjölgun íbúða og fyr­ir­tækja, en auknar tekjur af pakka­send­ingum hafa ekki dugað til að vega upp á móti sam­drætti í bréfa­send­ingum,“ segir í til­kynn­ingu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins. „Þessi þróun hefur haft nei­kvæð áhrif á efna­hag og lausa­fjár­stöðu félags­ins.“

Full­yrð­ing­arnar ganga t.d. í ber­högg við upp­lýs­ingar sem koma fram í ákvörðun Póst- og fjar­skipta­stofn­unar frá 23. jan­úar síð­ast­liðnum um fækkun dreif­ing­ar­daga á pósti. Þar tekur stofn­unin fram að Íslands­póstur hafi fengið magn­minnkun innan einka­réttar að fullu bætta í gegnum gjald­skrár­breyt­ingar und­an­farin ár. Rekstr­ar­af­koma einka­rétt­ar­ins hafi verið „vel við­un­andi“ og einka­rétt­inum sé ætlað að standa undir alþjón­ustu­skyld­unum sem hvíla á fyr­ir­tæk­inu. „Að mati PFS eru því mögu­leg vanda­mál í tengslum við afkomu fyr­ir­tæk­is­ins ekki til­komin vegna þeirra skyldna sem hvílt hafa á fyr­ir­tæk­inu vegna alþjón­ustu á und­an­förnum árum.“ 

Þá vekur athygli að í til­kynn­ingu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins vegna lán­veit­ing­ar­innar til Íslands­pósts er ein­ungis sagt frá þróun tekna án þess að sam­hliða sé gerð grein fyrir þróun gjalda. Í þessu til­viki hefur einmitt mis­munur tekna og gjalda falið í sér veru­legan hagnað und­an­farin ár. Eru þannig upp­lýs­ing­arnar mis­vísandi.

Lög gera ráð fyrir að gjaldskrár-
breytingar fyrirbyggi tap af alþjónustu

Samkvæmt 16. gr. laga um póst­þjón­ustu eiga gjald­skrár fyrir alþjón­ustu Íslands­pósts að taka mið af raun­kostn­aði við að veita þjón­ust­una að við­bættum hæfi­legum hagn­aði. Ef rétt væri að alþjón­usta Íslands­pósts væri að valda fyr­ir­tæk­inu rekstr­ar­vanda þá væri það til marks um að þróun gjald­skrár hefði ekki sam­ræmst þessu laga­á­kvæði. Raunin er hins vegar sú að gjald­skrá fyrir bréfa­póst í einka­rétti hefur hækkað umtals­vert und­an­farin ár, langt umfram þróun vísi­tölu neyslu­verðs.

Þegar Íslands­póstur skil­aði Póst- og fjar­skipta­stofnun sund­ur­lið­uðum bóhalds- og fjár­mála­upp­lýs­ingum vegna rekstr­ar­ár­anna 2013, 2014 og 2015 stað­festi stofn­unin að verð­grund­völlur einka­réttar væri í sam­ræmi við 16. gr. laga um póst­þjón­ustu. Í yfir­liti Póst- og fjar­skipta­stofn­unar vegna bók­halds­legs aðskiln­aðar Íslands­pósts árið 2016 var hins vegar brugðið frá venj­unni og ekki vikið einu orði að því hvort verð­grund­völlur einka­rétt­ar­ins og gjald­skrá Íslands­pósts sam­ræm­ist umræddu laga­á­kvæði. Það var þó ekki vegna slakrar afkomu, heldur vegna hund­ruða millj­óna hagn­aðar – og vart þarf að taka fram að mik­ill og við­var­andi hagn­aður getur seint haft nei­kvæð áhrif á efna­hag og lausa­fjár­stöðu fyr­ir­tækis, slík áhrif má yfir­leitt rekja til tap­rekst­urs.

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar hefur fjár­mála­ráðu­neyt­inu þegar verið bent á að sú mynd sem dregin er upp í til­kynn­ing­unni stang­ist á við fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar um bók­hald og rekstur Íslands­pósts. Til­kynn­ingin hefur engu að síður verið látin standa óbreytt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár