Um 300 börn bíða enn eftir vist á frístundaheimili í Reykjavík

Lítið hefur þok­ast í ráðn­ing­ar­málum leik­skóla Reykja­vík­ur­borgar frá fyrri mán­uði. 139 börn á biðlista eftir leik­skóla­vist. Staða mönn­un­ar­mála í grunn­skólum borg­ar­innar versn­aði milli mán­aða.

Um 300 börn bíða enn eftir vist á frístundaheimili í Reykjavík
Enn vantar starfs­fólk 139 börn eru á biðlista eftir leik­skóla­plássi. Enn á eftir að ráða í 55 stöðu­gildi á leik­skóla Reykja­vík­ur­borgar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Í byrjun októ­ber­mán­aðar vant­aði enn starfs­fólk í ríf­lega 55 stöðu­gildi við leik­skóla Reykja­vík­ur­borgar. Á sama tíma voru 139 börn, sextán mán­aða og eldri, á biðlista eftir leik­skóla­plássi. Enn bíða um 300 börn eftir vist á frí­stunda­heim­ili þar eð enn hefur ekki tek­ist að ráða 79 starfs­menn stil starfa. Staða mönn­un­ar­mála í grunn­skólum borg­ar­innar versn­aði þá frá fyrri mán­uði. Tölurnar sem um ræðir eru fengnar dag­ana 3. til 5. októ­ber.

Þettta kemur fram í tölum sem Stundin óskaði eftir frá Reykja­vík­ur­borg. Lítið hefur þok­ast í ráðn­ing­ar­málum leik­skól­anna milli mán­aða, 13. sept­em­ber síð­ast­lið­inn vant­aði starfs­fólk í rúm­lega 62 stöðu­gildi og því hefur aðeins tek­ist að manna 7 stöðu­gildi milli mán­aða. Staðan er mis­mun­andi eftir borg­ar­hverfum, verst er hún í Mið­borg­inni, Hlíðum og Vesturbæ en þar á eftir að ráða í 23,5 stöðu­gildi. Í þeim hverfum bíða 36 börn eftir leik­skóla­vist. Athygli vekur að þó ekki vanti starfs­fólk í nema 12,5 stöðu­gildi í Laug­ar­dal og Háaleiti bíða engu að síður 39 börn eftir að fá pláss á leik­skóla þar. Búið er að ráða í tæp 98 pró­sent stöðu­gilda.

Staðan versnar í grunnskólunum

Þá á eftir að ráða í rúm 20 stöðu­gildi í grunn­skólum borg­ar­innar, þar af 8 kenn­ara­stöður og stöður 8 stuðn­ings­full­trúa. Staðan þar hefur versnað milli mán­aða en 17. sept­em­ber síð­ast­lið­inn vant­aði starfs­fólk í 16,5 stöðu­gildi í grunn­skól­unum. Staðan þar hefur því versnað um tæp fjögur stöðu­gildi frá fyrri mán­uði. Engu að síður eru 99 pró­sent stöðu­gilda grunn­skól­anna mönnuð.

Á biðlista eftir vist á frí­stunda­heim­ili eru nú 293 börn, borið saman við 532 börn á biðlista 12. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Enn á eftir að ráða í tæp 39 stöðu­gildi, alls 79 starfs­menn. Það þýðir að enn á eftir að manna 11 pró­sent allra stöðu­gilda á frí­stunda­heim­ilum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár