Fylgi Samfylkingar dalar í borginni

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærstur í Reykja­vík í könnun Frétta­blaðs­ins, en meiri­hlut­inn heldur velli. Flestir eru á því að borg­ar­stjóri beri ábyrgð­ina í „bragga­mál­inu“.

Fylgi Samfylkingar dalar í borginni

Meiri­hlut­inn í borg­inni héldi velli ef gengið yrði til kosn­inga nú. Sam­fylk­ingin mundi missa tölu­vert fylgi og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn yrði langstærsti flokk­ur­inn í borg­inni. Þetta kemur fram í könnun sem Zenter gerði fyrir Frétta­blaðið.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fengi tæp­lega 30% atkvæða sam­kvæmt könn­un­inni, sem fram­kvæmd var 12.-15. októ­ber. Sam­fylk­ingin mundi tapa tveimur mönnum í borg­ar­stjórn, en meiri­hlut­inn héldi velli þar sem Vinstri græn og Píratar bættu við sig einum manni hvor.

Þá var spurt um afstöðu fólks til „bragga­máls­ins“ svo­kall­aða, fram­úr­keyrslu á kostn­aði við end­ur­bætur við­bygg­ingar bragg­ans í Naut­hóls­vík. Þriðj­ungur svar­enda taldi ábyrgð­ina liggja hjá Degi B. Egg­erts­syni borg­ar­stjóra. Rúmlega fjórð­ungur sagði að ábyrgði lægi hjá meiri­hlut­anum og álíka margir töldu að emb­ætt­is­menn ættu að axla ábyrgð.

Könnunin var síma- og net­könnun með tví­skiptu úrtaki 18 ára eldri úr könn­un­ar­hópi Zenter og til­vilj­un­ar­úr­taki úr þjóð­skrá. Svar­endur eru íbúar í Reykja­vík og voru gögnin vigtuð eftir kyni og aldri. Úrtakið var 1.450 og var svar­hlut­fallið 54 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár