Selfoss-leiðin æ oftar notuð í heimilisofbeldismálum

Sak­born­ingi er gef­inn kostur á að und­ir­rita yfir­lýs­ingu sem er samin af lög­regl­unni. Slík yfir­lýs­ing kemur þá í veg fyrir nálg­un­ar­bann eða brott­vísun af heim­ili, en hefur gildi fyrir dómi.

Selfoss-leiðin æ oftar notuð í heimilisofbeldismálum
Vægara úrræði Selfoss-leiðin er væg­ara úrræði heldur en nálg­un­ar­bann. Mynd: Shutterstock

Selfoss-leiðin svo­kall­aða hefur verið notuð af lög­reglu­emb­ættum víða um land í málum er varða heim­il­is­of­beldi. Leiðin felur í sér sam­komu­lag á milli lög­reglu og sak­born­ings og er notuð í þeim til­vikum þar sem lög­regla telur að frið­helgi brota­þola megi vernda með væg­ari hætti en nálg­un­ar­banni eða brott­vísun af heim­ili.

Þessi leið hefur verið notuð og í þróun hjá Lög­regl­unni á Suð­ur­landi allt frá árinu 2014, sam­kvæmt svari lög­reglu­emb­ætt­is­ins við spurn­ingum Stund­ar­innar um til­urð úrræð­is­ins. Þar segir að að jafn­aði sé sak­born­ingi gef­inn kostur á að und­ir­rita yfir­lýs­ingu við lok skýrslu­töku af honum, þegar sak­ar­efni hefur verið borið undir hann og honum gef­inn kostur á að taka afstöðu til þess. Yfir­lýs­ingin feli efn­is­lega það sama í sér og nálg­un­ar­bann eða brott­vísun af heim­ili. Hún sé hins vegar sett fram á öðrum grunni í þeirri við­leitni að gefa sak­born­ingi færi á að aðhaf­ast eitt­hvað eða láta af til­tek­inni hegðun með yfir­lýs­ingu. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár