Vigdís uggandi yfir gratíníbúðum í Reykjavík

Ekki í fyrsta sinn sem mynd­ræn mis­mæli Vigdísar Hauks­dóttur vekja kátínu.

Vigdís uggandi yfir gratíníbúðum í Reykjavík

„Rándýrar íbúðir eru að rísa í mið­borg Reykja­víkur þar sem gratín og marmari leika aðal­hlut­verk.“ Þannig kemst Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, að orði í bókun sem hún lagði fram á borg­ar­stjórn­ar­fundi í gær. Gagn­rýndi hún borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ann harð­lega vegna hinna rán­dýru end­ur­bóta á göml­um bragga við Naut­hóls­vík í Reykja­vík og benti á að útlit væri fyrir 350 millj­óna fram­úr­keyrslu. „Þetta eru for­kast­an­leg vinnu­brögð og enn einn áfell­is­dóm­ur­inn yfir stjórn­sýslu Reykja­víkur.“

Ummæli Vigdísar um gratín­í­búðir vöktu nokkra kátínu, en hún not­aði orðið gratín tví­vegis í umræðum á borg­ar­stjórn­ar­fund­inum. Verður að ætla að þar hafi hún verið að vísa til stein­teg­und­ar­innar graníts fremur en til kart­öflu- eða brokkolígratíns. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem orða­val Vigdísar vekur athygli, en frægt varð þegar hún gagn­rýndi þáver­andi fjár­mála­ráð­herra fyrir að „stinga höfð­inu í stein­inn“ árið 2011 og sagði: „Það mega sumir kasta grjóti úr stein­húsi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Reykjavíkurborg

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár