Menningin gerir árás á sjálfsmynd stúlkna

Það ætti að inn­leiða kynja­fræði á öll stig skóla­kerf­is­ins og byrja að tala mark­visst við börn um klám í skóla­stof­unni þegar þau eru 11 ára. Það er mat Hönnu Bjargar Vil­hjálms­dóttur sem segir að kynja­fræðin sé skjöldur sem stelpur og konur geti varið sig með í sam­fé­lagi sem er þeim fjand­sam­legt.

Menningin gerir árás á sjálfsmynd stúlkna
Tekur orðið Hanna Björg lítur á það sem skyldu sína að grípa míkra­fón­inn og tjá sig um jafn­rétt­is­mál í hvert sinn sem færi gefst. Mynd: Heiða Helgadóttir

Merki kvenna er tattú­verað á háls­inn á Hönnu Björgu Vil­hjálms­dóttur, kynja­fræði­kenn­ara við Borg­ar­holts­skóla til 21 árs. Það er kannski skýrasta merkið um það að hún skilur ekki vinn­una sína eftir að vinnu­degi loknum, heldur tekur hana með sér hvert sem hún fer. Hún er alltaf með hug­ann við jafn­rétt­is­málin.

Síðan Hanna Björg fór að kenna kynja­fræði hefur hún þurft að berj­ast fyrir því að virð­ing sé borin fyrir hennar fræðum. Enn er langt í land hvað virð­ing­una varðar en Hanna Björg lætur það ekki hafa nokkur áhrif á sig. Hún þreyt­ist ekki á því að halda uppi vörnum fyrir femín­is­mann og er reyndar með skila­boð til þeirra sem segj­ast vera orðnir dálítið þreyttir á þessu jafn­réttist­ali, finnst að nú megi aðeins fara að slaka á og huga að ein­hverju öðru. „Svona talar hóp­ur­inn sem nýtur for­rétt­inda og þeir – og þær – sem eru með­virk. For­rétt­indi eru ósýni­leg þeim …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár