Kolbeinn segir Grænlandsferð ekki tilgangslaust bruðl

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður VG, er ósam­mála Guðmundi Inga Krist­ins­syni, þing­manni Flokks fólks­ins, um gagns­leysi þess að senda hóp fólks á fund Norð­ur­landa­ráðs á Græn­landi.

Kolbeinn segir Grænlandsferð ekki tilgangslaust bruðl
Ósammála um bruðl Kolbeinn er ekki sam­mála Guðmundi Inga um að Græn­lands­ferðin hafi verið til­gangs­laust bruðl.

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, er ósam­mála því að fundur Norð­ur­landa­ráðs á Græn­landi hafi verið til­gangs­laust bruðl líkt og Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, þing­maður Flokks fólks­ins, lýsti henni. Í ferð­inni hafi Kolbeinn aflað sér þekk­ingar sem hann muni nýta sér og sömu­leiðis haft áhrif á ákvarð­anir Norð­ur­landa­ráðs.

Guð­mundur Ingi lýsti því í gær í umræðum um störf þings­ins á Alþingi að hann skildi ekki til­gang þess að senda tíu manns á fund Norð­ur­landa­ráðs í Nuuk á Græn­landi, fund sem hefði ein­ungis haft þann til­gang að „sam­þykkja ein­hverjar áður gerðar álykt­anir eða reyna að gera ein­hverjar orða­lags­breyt­ingar.“ Raunar munu full­trú­arnir þó aðeins hafa verið átta en ekki tíu, eins og Guð­mundur hélt fram.

Þá lýsti Guð­mundur Ingi einnig undrun sinni á því að gestir fund­ar­ins hefðu gist á því dýrasta hót­eli sem hann hefði stigið fæti sínum inn á. Spurði hann í fram­hald­inu hvort ekki þyrfti að fara að kafa ofan í utan­lands­ferðir á vegum þings­ins og þann kostnað sem af þeim hlyt­ist með það að mark­miði að kom­ast að því hvort þær væru nauð­syn­legar.

Segir starfsfólk Alþingis standa sig vel í ráðdeild

Kolbeinn aftur á móti er þeirrar skoð­unar að ferðin á fund­inn hafi verið bæði merki­leg og gagn­leg. Hann hafi þannig fundað með borg­ar­full­trúum í Nuuk og borg­ar­stjóra um ýmis mál sem teng­ist Íslandi og Græn­landi, setið fyr­ir­lestra um lofts­lags­breyt­ingar og áhirf þeirra á sigl­inga­leiðir um norð­ur­slóðir auk ann­ars. Þá hafi fjöl­margt komið fram í nefnda­vinnu Norð­ur­landa­ráðs sem snerti Ísland og Íslend­inga og þar hafi skipt máli að fylgja eftir til­lögum og álitum, og gera jafn­vel á þeim breyt­ingar. „Þannig gaf þessi ferð mér fjöl­margt sem mun nýt­ast í þing­stör­f­unum, um leið og ég tel að ég hafi lagt mitt fram, af mínum veika mætti.“

Kolbeinn segir jafn­fram að hann sé sam­mála Guðmundi hvað varðar að sýna þurfi ráð­deild þegar kemur að kostn­aði og gist­ingu. Kolbeinn bendir þó á að vart sé um ótal kosti að ræða í þeim efnum í Nuuk þegar um 150 manna ráð­stefnu sé að ræða. Honum hafi raunar sýnst starfs­fólk Alþingis standa sig vel þegar komi að því að finna hag­kvæma kosti varð­andi ferða­lög og gist­ingu.

Ummæli Guð­mundar Inga vöktu veru­lega athygli í gær. Bent var á í sam­heng­inu nýjar upp­lýs­ingar um kostnað við hátíð­ar­fund Alþingis á Þing­völlum á liðnu sumri. Fund­ur­inn sá kost­aði 87 millj­ónir króna og fór kostn­aður um helm­ing fram úr áætlun. Sér­stak­lega vakti undrun að lýs­ing, um bjartan dag í júlí, hefði kostað 22 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár