„Persónulegar ástæður“ sagðar vera fyrir brotthvarfi framkvæmdastjórans fjórum dögum eftir ráðningu

Orka nátt­úr­unnar hefur fengið þriðja fram­kvæmda­stjór­ann á þremur dögum. Bjarni Már Júl­í­us­son hætti vegna óvið­eig­andi hegð­unar, en Þórður Ásmunds­son hætti eftir fjóra daga af „per­sónu­legum ástæðum“.

„Persónulegar ástæður“ sagðar vera fyrir brotthvarfi framkvæmdastjórans fjórum dögum eftir ráðningu
Þórður Ásmunds­son Tilkynnt var um ráðn­ingu hans sem tíma­bund­inn fram­kvæmnda­stjóri Orku nátt­úr­unnar á föstu­dag. Í dag var til­kynnt um að hann viki úr stöð­unni. Mynd: Orkuveita Reykjavíkur

„Per­sónu­legar ástæður“ eru sagðar vera fyrir því að Orka nátt­úr­unnar skiptir um fram­kvæmda­stjóra í annað skiptið á fjórum dögum.

Tilkynnt var með frétta­til­kynn­ingu skömmu fyrir hádegi að Þórður Ásmunds­son myndi láta af starfi tíma­bunds­ins fram­kvæmda­stjóra, sem hann hafði verið ráð­inn til á föstu­dag. Hans í stað hefði Berglind Rán Ólafs­dóttir verið ráðin í stöð­una. 

Þórður var ráð­inn tíma­bund­inn fram­kvæmda­stjóri Orku nátt­úr­unnar eftir að Bjarni Már Júl­í­us­son var lát­inn víkja vegna fram­komu hans í garð starfs­fólks. Komið hefur fram að hann sendi meðal ann­ars tölvu­póst á sam­starfs­konur sínar um að hjól­reiðar bættu kyn­lífið, en einnig hefur fyrr­ver­andi starfs­maður, Áslaug Thelma Ein­ars­dóttir, greint frá fleiri til­fellum. Hún rekur upp­sögn sína síð­asta mánu­dag til umkvart­ana sinna vegna fram­göngu fram­kvæmda­stjór­ans.

„Per­sónu­legar ástæður er það að það teng­ist ekki vinnu­staðnum.“

Eiríkur Hjálm­ars­son, upp­lýs­inga­full­trúi Orku­veit­unnar, seg­ist í sam­tali við Stundina geta „ekk­ert um það sagt“ hvers vegna Þórður hættir nú, svona stuttu eftir að hann var ráð­inn. „Það voru per­sónu­legar ástæður þar að baki,“ svarar Eiríkur. „Það er það sem ég get sagt.“ 

Nánar spurður segir Eiríkur að ástæðan teng­ist ekki vinnu­staðnum. „Per­sónu­legar ástæður er það að það teng­ist ekki vinnu­staðnum. Það er voða­lega erfitt, nákvæm­lega eins og í öðrum starfs­manna­málum, að ræða per­sónu­leg mál­efni starfs­manna.“

Spurður hvort ákvörð­unin hafi verið að frum­kvæði Orku­veit­unnar eða Þórðar sjálfs segir Eiríkur: „Ég veit það ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár