Aftur skipt um framkvæmdastjóra hjá Orku náttúrunnar

Fjórum dögum eftir að for­stöðu­maður tækni­þró­unar var settur sem tíma­bund­inn fram­kvæmda­stjóri Orku nátt­úr­unnar, hefur verið ákveðið að annar starfs­maður taki stöð­una hans í stað.

Aftur skipt um framkvæmdastjóra hjá Orku náttúrunnar
Berglind Rán Ólafs­dóttir Nýr tíma­bund­inn fram­kvæmda­stjóri Orku nátt­úr­unnar.

Orka nátt­úr­unnar, dótt­ur­fyr­ir­tæki Orku­veitu Reykja­víkur, er komin með þriðja fram­kvæmda­stjór­ann á fjórum dögum. 

Síðasta föstu­dag var til­kynnt um upp­sögn Bjarna Más Júl­í­us­sonar, fram­kvæmda­stjóra ON, vegna óvið­eig­andi hegð­unar í garð und­ir­manna. Síðar hefur fyrr­ver­andi for­stöðu­kona ein­stak­lings­þjón­ustu, sem sagt var upp fyrir viku, greint frá fleiri til­fellum og gagn­rýnt for­stjóra Orku­veitu Reykja­víkur fyrir að gera lítið úr hegðun fram­kvæmda­stjór­ans og bregð­ast ekki við henni.

Við upp­sögn Bjarna Más var til­kynnt form­lega að Þórður Ásmunds­son hefði verið ráð­inn í stöðu fram­kvæmda­stjóra Orku nátt­úr­unnar tíma­bundið í stað Bjarna Más, en hann hefur gegnt stöðu for­söðu­manns tækni­þró­unar.

Tilkynnt var með frétta­til­kynn­ingu rétt í þessu að Berglind Rán Ólafs­dóttir, for­stöðu­kona fyr­ir­tækja­mark­aða Orku nátt­úr­unnar, hefði verið ráðin sem tíma­bund­inn fram­kvæmda­stjóri í stað Þórðar. Ekki er útskýrt hvers vegna skipt var um fram­kvæmda­stjóra í þriðja sinn. „Ákveðið hefur verið að for­stöðu­maður fyr­ir­tækja­mark­aða ON, Berglind Rán Ólafs­dóttir, taki tíma­bundið við starfi fram­kvæmda­stjóra ON en ekki for­stöðu­maður tækni­þró­unar, eins og áður var til­kynnt,“ segir í frétta­til­kynn­ing­unni.

Upp­lýs­inga­full­trúi Orku­veitu Reykja­víkur hefur ekki svarað fyr­ir­spurn um ástæðu þess að skipt er aftur um fram­kvæmda­stjóra Orku nátt­úr­unnar.

Forstjóri Orkuveitunnar þagnar

Bjarni Bjarna­son, for­stjóri Orku­veitu Reykja­víkur, sem er móð­ur­fyr­ir­tæki Orku nátt­úr­unnar, sendi einnig frá sér yfir­lýs­ingu í dag. Hún snýr að gagn­rýni Áslaugar Thelmu Ein­ars­dóttur á við­brögð hans og opin­bera yfir­lýs­ingu vegna hegð­unar fram­kvæmda­stjór­ans.

„Í til­efni af opin­berri umræðu um starfs­lok starfs­fólks hjá Orku nátt­úr­unnar hef ég ákveðið að ræða þau ekki frekar opin­ber­lega að svo stöddu. Mér bar skylda til að skýra frá ástæðu starfs­loka fram­kvæmda­stjóra Orku nátt­úr­unnar. Um opin­berar umræður um mál­efni ann­ars starfs­fólks en æðsta stjórn­anda gildir öðru máli. Óski starfs­maður að fara betur yfir skýr­ingar á ástæðum starfs­loka, stendur slíkt að sjálf­sögðu til boða,“ segir í yfir­lýs­ingu for­stjóra Orku­veit­unnar.

Áslaug Thelma, sem sagt var upp á mánu­dag­inn í síð­ustu viku, greindi frá því í morgun að Bjarni Bjarna­son hafi ekki tekið umkvart­anir hennar um hegðun Bjarna Más alvar­lega. Hún rekur upp­sögn sína til umkvart­an­anna, en meðal ann­ars kemur fram í lýs­ingum hennar að Bjarni Már hafi sagt við kven­kyns starfs­mann að hún væri „ekki nógu gröð“ og lýst því yfir að hann skyldi „lækna hana af því meini að vera ein­hleypa“.

Segir forstjóra OR hafa vitað af hegðuninni

„Um þessa atburði og aðdrag­anda skrif­uðum við mað­ur­inn minn bréf sem við sendum for­stjóra OR og starfs­manna­stjóra OR á þriðju­dags­morgun. Í fram­haldi boð­aði for­stjóri OR okkur á fundi hjá lög­fræð­ingi félags­ins þangað sem við mættum klukkan 10:00 á mið­viku­dag­inn. Á fund­inum sagði starfs­manna­stjór­inn að hún hefði tekið öll sam­tölin okkar „alla leið“ eins og hún orð­aði það. Þetta er gríð­ar­lega mik­il­væg stað­fest­ing sem sýnir að yfir­lýs­ingar for­stjóra OR stand­ast enga skoðun þegar hann heldur því fram að hann hafi ekk­ert vitað um fram­komu fram­kvæmda­stjór­ans og að honum hefði verið „illa brugðið“ við bréfið frá mér. Þá sögð­ust þau bæði hafa vitað af þessum „galla“ fram­kvæmda­stjór­ans eins og þau köll­uðu það, en ráðið hann engu að síður og með fyr­ir­vara um að hann inni í þessum „göllum“ og héldu því fram að þau hefðu veitt honum „aðstoð“ til að vinna með þetta „vanda­mál“. Allt und­ir­strikar þetta enn frekar að for­stjóri OR vissi allt sem máli skipti um fram­kvæmda­stjóra ON og hans fram­göngu. Samt fer hann fram í fjöl­miðlum og segir rang­lega málið tengj­ast einum tölvu­pósti. Það er frá­leit stað­hæf­ing, enda ætti maður sem verður upp­vís af því að senda einn óvið­eig­andi tölvu­póst sann­ar­lega skilið annað ferli en þann taf­ar­lausa brott­rekstur sem stjórn ON ákvað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár