Íslenski fáninn og misgjörðir gegn Geir í brennidepli

Þingmenn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins end­ur­flytja þing­mál frá síð­asta þingi, meðal ann­ars um notkun þjóð­fán­ans og afsök­un­ar­beiðni til Geirs Haarde. Vilja „árétta að dóms­valdi megi aldrei beita í póli­tískum til­gangi“ þótt Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu telji það ekki hafa verið gert í Lands­dóms­mál­inu.

Íslenski fáninn og misgjörðir gegn Geir í brennidepli
Þingmenn Mið­flokks­ins Birgir Þór­ar­ins­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Mynd: Alþingi

Þingmenn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins áttu frum­kvæði að fyrstu þing­manna­mál­unum sem lögð voru fram og birt á Alþing­isvefnum þegar þing­fundur hófst í morgun. 

Málin varða ann­ars vegar íslenska fán­ann og notkun hans á bygg­ingum og hins vegar meintar mis­gjörðir Alþingis í garð Geirs Hilmars Haarde. Um er að ræða til­lögur sem lagðar voru fram á síð­asta þingi og eru end­ur­fluttar óbreyttar.

Sex þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru með­flutn­ings­menn að þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um órétt­mæti máls­höfð­unar Alþingis gegn ráð­herrum og afsök­un­ar­beiðni Alþingis til handa fyrr­ver­andi for­manns flokks­ins sem nú er sendi­herra Íslands í Washington.

Vilja að fáninn sé lýstur upp í skammdeginu

Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, er fyrsti flutn­ings­maður fána­frum­varps­ins, en þar er lagt til að lög­fest verði að flagga skuli alla daga árs­ins frá kl. 8 að morgni til kl. 21 að kvöldi á bygg­ingum hinna þriggja arma rík­is­valds­ins auk bygg­inga emb­ættis for­seta Íslands, þ.e. við for­seta­setrið á Bessa­stöðum og skrif­stofu for­seta á Sól­eyj­ar­götu. Þá verði fán­inn verði lýstur upp í skamm­deg­inu. Með Birgi á frum­varp­inu eru aðrir þing­menn Mið­flokks­ins og tveir úr Flokki fólks­ins; Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Anna Kolbrún Árna­dóttir, Bergþór Ólason, Gunnar Bragi Sveins­son, Sigurður Páll Jónsson, Þor­steinn Sæmunds­son, Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son.

Sig­mundur Davíð er fyrsti flutn­ings­maður þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar um Lands­dóms­málið. Þar er lagt til að Alþingi álykti að rangt hafi verið að leggja til máls­höfðun á hendur ráð­herrum eftir hrun vegna póli­tískra aðgerða eða aðgerða­leysis, rang­lega hafi verið staðið að atkvæða­greiðslu um til­lög­una og rangt hafi verið að sam­þykkja hana. „Alþingi álykti enn fremur að þeir fyrr­ver­andi ráð­herrar sem upp­haf­lega þings­á­lykt­un­ar­til­lagan beind­ist gegn, og sá ráð­herra sem loks var ákveðið að höfða mál gegn, sbr. þings­á­lyktun nr. 30/138, verð­s­kuldi afsök­un­ar­beiðni frá hlut­að­eig­andi aðilum,“ segir í grein­ar­gerð til­lög­unnar. Með þing­mönnum Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins eru þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, þau Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, Brynjar Níelsson, Óli Björn Kárason, Haraldur Bene­dikts­son, Páll Magn­ús­son og Vil­hjálmur Árnason.  

Þingmenn senda dómurum pillu

Athygli vekur að í grein­ar­gerð kemur fram að flutn­ings­menn telji mik­il­vægt að „árétta að dóms­valdi megi aldrei beita í póli­tískum til­gangi“.

Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu komst að þeirri nið­ur­stöðu í fyrra að ekk­ert benti til þess að dóm­arar við Landsdóm hefðu verið hlut­drægir í störfum sínum, sætt óeðli­legum þrýst­ingi eða haft óeðli­leg tengsl við stjórn­mála­menn. Þá hefði skipun dóm­stóls­ins ekki verið á skjön við kröfur Mann­rétt­inda­sátt­mála Evrópu um sjálf­stæðan og óvil­hallan dóm­stól. Eins og Stundin benti á var nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins þannig á skjön við þungar ásak­anir Geirs H. Haarde á hendur dóm­urum í Lands­dómi, en í þeim hópi eru t.d. hér­aðs­dóm­arar, dóm­arar og dóms­for­seti Hæsta­réttar Íslands, núver­andi lands­rétt­ar­dóm­ari og dós­ent við laga­deild Háskóla Íslands. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár