Forstjóri Icelandair segir af sér og hlutabréf falla

Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelandair, sagði af sér í gær í kjöl­far til­kynn­ingar um lækkun afkomu­spár á árinu. Hluta­bréf í félag­inu hríð­féllu við opnun mark­aða en hafa tekið við sér.

Forstjóri Icelandair segir af sér og hlutabréf falla
Björgólfur Jóhanns­son Björgólfur hafði verið for­stjóri Icelandair í rúman ára­tug. Mynd: Geirix

Gengi bréfa í Icelandair Group hríð­féll í morgun eftir að til­kynnt var um verri afkomu­spá í gær­kvöldi og afsögn for­stjóra félags­ins. Bréfin féllu um 22 pró­sent við opnun mark­aða, en hækk­uðu nokkuð eftir því sem leið á morgun. Um klukkan 11 stóð verðið í um 7 krónum á hlut og höfðu þau lækkað um helm­ing í verði frá ára­mótum.

Björgólfur Jóhanns­son, frá­far­andi for­stjóri, hafði sinnt starf­inu síðan 2007. Hann á 2,3 millj­ónir hluta í félag­inu, sem eru nú virði um 16,1 milljón króna. Bogi Nils Bogason fjár­mála­stjóri tekur við for­stjóra­starf­inu tíma­bundið.

Icelandair Group til­kynnti um lækk­aða afkomu­spá sína í gær. Er gert ráð fyrir 5-8% lægri tekjum á árinu en í fyrra, sem nemur á milli 5 til 8,6 millj­arða króna. Í árs­fjórð­ungs­upp­gjöri félags­ins, sem kynnt var í lok júlí, kom fram að Icelandair hefði tapað 2,7 millj­örðum króna á fjórð­ungnum og alls 6,4 millj­örðum það sem af var ári.

Líf­eyr­is­sjóðir eru stærstu eig­endur Icelandair og á Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna um 14% í félag­inu. Þar á eftir koma Gildi, Birta og Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins A-deild með á milli 7 og 8% hlut.

Icelandair er ekki eina félagið í flug­rekstri sem glímir við rekstur undir vænt­ingum. Komið hefur fram að tak­ist WOW Air ekki að afla veru­legra fjár­muna á næstu vikum sé hætta á að félagið fari í þrot. Stefnt er að því að hluta­bréfa­út­boð skili á bil­inu sex til tólf millj­örðum íslenskra króna og seg­ist Skúli Mogensen, eig­andi og for­stjóri WOW, full­viss um að það tak­ist. Ráð­herrar hafa fundað um málið og eru flug­fé­lögin sögð kerf­is­lega mik­il­væg fyrir hag­kerfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár