Stjórnendur Icelandair kaupa bréf fyrir rúmar 5 milljónir eftir verðhrun

For­stjóri Icelandair og stjórn­ar­maður keyptu bréf í félag­inu fyrir rúmar 5 millj­ónir króna í dag. Hluta­bréf í félag­inu féllu um tæp 12% eftir að til­kynnt var um 2,7 millj­arða króna tap félags­ins á árs­fjórð­ungnum.

Stjórnendur Icelandair kaupa bréf fyrir rúmar 5 milljónir eftir verðhrun
Björgólfur Jóhanns­son For­stjóri Icelandair keypti 400 þús­und hluti í félag­inu í dag og á nú sam­tals 2,3 millj­ónir hluta. Mynd: Geirix

For­stjóri Icelandair, Björgólfur Jóhanns­son, keypti í dag 400 þús­und hluti í félag­inu á rúmar 3 millj­ónir króna sam­kvæmt til­kynn­ingu til kaup­hallar. Heiðrún Jóns­dóttir stjórn­ar­maður keypti yfir 300 þús­und hluti fyrir um 2,4 millj­ónir króna. Kaupin koma í kjöl­far verð­hruns á bréfum félags­ins, sem hafa lækkað um tæp 40% frá 9. júlí.

Í árs­fjórð­ungs­upp­gjöri félags­ins, sem kynnt var í fyrra­dag, kom fram að Icelandair hefði tapað 2,7 millj­örðum króna á fjórð­ungnum og alls 6,4 millj­örðum það sem af er ári. Tekjur félags­ins höfðu hækkað um 9% á milli ára, en kostn­aður aftur á móti um 18%.

Í kjöl­far til­kynn­ing­ar­innar lækk­uðu hluta­bréf í félag­inu skarpt og hafði verð þeirra fallið um tæp 12% á tveimur dögum. Verðhrun hafði þegar orðið á bréfum félag­ins í byrjun júlí, en þau lækk­uðu um tæp 25% í kjöl­far afkomu­við­vör­unar 9. júlí. Alls hafa bréf félags­ins því lækkað um tæp 40% frá því hún var gefin út, en um næstum helm­ing frá ára­mótum.

Lífeyrissjóðir stærstu eigendurnir

Í til­kynn­ingu til kaup­hall­ar­innar sagði Björgólfur að von væri á almennri hækkun flug­gjalda í kjöl­far hækk­andi verðs á flug­véla­elds­neyti. Aðstæður væru erf­iðar, en félagið væri í góðri stöðu til að takast á við áskor­an­irnar.

Líf­eyr­is­sjóðir eru stærstu eig­endur Icelandair og á Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna um 14% í félag­inu. Þar á eftir koma Gildi, Birta og Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins A-deild með á milli 7 og 8% hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár