Meðgöngu- og sængurlegudeild Landspítala lokað vegna ljósmæðradeilu

Meðgöngu- og sæng­ur­legu­deild Land­spít­ala verður lokað á morgun vegna kjara­deilu ljós­mæðra. Þá falla fyrstu reglu­bundnu ómskoð­anir þung­aðra kvenna niður frá og með mánu­degi. Fundi samn­inga­nefnda lauk í dag án nið­ur­stöðu.

Meðgöngu- og sængurlegudeild Landspítala lokað vegna ljósmæðradeilu
Land­spít­al­inn Kjara­deila ljós­mæðra heldur áfram eftir að fundi samn­inga­nefnda lauk í dag. Mynd: Kristinn Magnússon

Meðgöngu- og sæng­ur­legu­deild Land­spít­ala verður lokað á morgun vegna kjara­deilu ljós­mæðra. Starf­semi hennar verður sam­einuð kven­lækn­inga­deild 21A. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Land­spít­al­anum.

Þá falla fyrstu reglu­bundnu ómskoð­anir þung­aðra kvenna niður frá og með mánu­deg­inum 23. júlí.

„Ljós­mæður sem sinnt hafa þeirri þjón­ustu munu hverfa til ann­arra starfa í fæð­ing­ar­þjón­ustu,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Um er að ræða ómskoðun sem fer yfir­leitt fram milli 11. og 14. viku með­göngu og er í raun fyrsta fóst­ur­grein­ing. Önnur fóst­ur­grein­ing stendur verð­andi for­eldrum til boða eftir sem áður, ásamt til­fallandi bráða­skoð­unum.“

Fundi samn­inga­nefnda rík­is­ins og ljós­mæðra lauk í dag án nið­ur­stöðu, en yfir­vinnu­bann ljós­mæðra hófst í gær.

Tilkynningin Landspítalans

„Vegna þeirrar stöðu sem upp er komin í fæð­ing­ar­þjón­ustu á Land­spít­ala og öðrum fæð­ing­ar­stöðum, í kjöl­far upp­sagna ljós­mæðra og yfir­stand­andi yfir­vinnu­verk­falls, hafa stjórn­endur Land­spít­ala ákveðið eft­ir­far­andi.

1. Meðgöngu- og sæng­ur­legu­deild Land­spít­ala verður nú lokað og verður starf­semi hennar sam­einuð kven­lækn­inga­deild 21A föstu­dag­inn 20. júlí.

2. Frá og með mánu­deg­inum 23. júlí falla fyrstu reglu­bundnu ómskoð­anir þung­aðra kvenna niður. Ljós­mæður sem sinnt hafa þeirri þjón­ustu munu hverfa til ann­arra starfa í fæð­ing­ar­þjón­ustu. Um er að ræða ómskoðun sem fer yfir­leitt fram milli 11. og 14. viku með­göngu og er í raun fyrsta fóst­ur­grein­ing. Önnur fóst­ur­grein­ing stendur verð­andi for­eldrum til boða eftir sem áður, ásamt til­fallandi bráða­skoð­unum.

Gert er ráð fyrir að þessar ráð­staf­anir standi meðan kjara­deila ljós­mæðra stendur yfir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Fréttir

Stefán Ólafsson um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sext­ánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs konar veð­mál, þar sem vonir væru bundnar við hjöðnun verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­legum kjara­bótum.
FréttirKjaramál

Samtök atvinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á félags­menn VR

Stjórn Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur sam­þykkt ein­róma að halda atkvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á félags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins sem birt­ist fyrir skömmu segir að verði verk­bannið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með aðild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerðum sem VR hefur boðað meðal starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelandair
FréttirKjaramál

Ókeypis skóla­mál­tíðir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt umfangs­mesta verk­efnið sem fólgið er í aðgerða­pakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyrir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjálsar skóla­mál­tíðir í grunn­skólum. Tals­maður Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga segir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyrir breyt­ing­arnar muni fá fríar skóla­mál­tíðir. Ekki liggur fyrir hvernig verk­efnið verður útfært í skólum sem hafa útvi­stað mat­ar­þjón­ustu sinni.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár