Pia segir Pírata illa upp alda og ummæli þingmanna fáránleg og til skammar

Pia Kjærs­gaard, for­seti danska þings­ins, segir Pírata vera illa upp alda í sam­tali við TV 2 í Danmörku. Þá segir hún ummæli þing­manna á borð við Helgu Völu Helga­dóttur vera fárán­leg og til skammar.

Pia segir Pírata illa upp alda og ummæli þingmanna fáránleg og til skammar
Pia Kjærs­gaard, for­seti danska þings­ins. Mynd: AFP

Í sam­tali við frétta­stofu TV 2 í Danmörku segir Pia Kjærs­gaard, for­seti danska þings­ins og fyrr­ver­andi for­maður Danska þjóð­ar­flokks­ins, ummæli þing­manna á borð við Helgu Völu Helga­dóttur, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, vera fárán­leg og til skammar. Hún segir Pírata jafn­framt vera illa upp alda.

Pia er einnig til við­tals á danska fjöl­miðl­inum Politi­ken. Þar segir hún Pírata vera flokk sem skipti engu máli en hún hafi orðið fyrir von­brigðum með íslenska sós­í­alde­mókrata.

TV 2 og aðrir danskir fjöl­miðlar hafa vakið athygli á mót­mælum íslenskra þing­manna við ávarpi og veru Piu á hátíð­ar­fundi Alþingis á Þing­völlum. 

Þegar greint var frá því að Pia myndi halda hátíð­ar­ræðu á fund­inum brást almenn­ingur og hluti þing­manna harka­lega við. Þannig ákvað þing­flokkur Pírata að snið­ganga fund­inn, Helga Vala Helga­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, gekk af þing­pall­inum er Pia steig í pontu og margir þing­menn úr mis­mun­andi stjórn­mála­flokkum sýndu óánægju sína í verki með því að bera lím­miða til höf­uðs ras­isma. Á mið­unum var áletrað „Nej til racisme“ eða “Nei við kyn­þátta­hyggju“.

„Það hljóta að vera kyn­þroska­vanda­mál hjá Pírötum og íslenskir sós­í­alde­mókratar geta aug­ljós­lega ekki staðið í eigin fætur,“ segir Pia við Politi­ken. Hún seg­ist jafn­framt aldrei í starfi sínu hafa sem þing­for­seti Dan­merkur mætt snið­göngu frá lýð­ræðis­kjörnum full­trúum.

Pia seg­ist ekki hafa tekið eftir mót­mælum alþing­is­mann­anna í sam­tali við TV 2. „Það er rétt að Píratar vildu ekki taka þátt í fund­inum, en ég get ekk­ert gert í því að þeir sem eru illa upp aldir og skilja ekki að þegar maður býður for­seta danska þings­ins en ekki mér per­sónu­lega, að þá felst í því engin nið­ur­læg­ing gagn­vart mér.

„Það voru engin vand­ræði þegar ég hélt ræð­una. Þá ríkti góð ró og regla. Það var góð stemn­ing. Þá fann ég ekki fyrir neinum mót­mælum þegar ég kom né neinu þegar ég fór. Það hefur eitt­hvað farið fram á sam­fé­lags­miðlum án þess að ég hafi orðið vör við það,“ segir Pia.

Helga Vala Helga­sóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Helga Vala var einnig til sam­tals á TV 2. Þar sagði hún að mót­mæl­unum hefði ekki verið beint að danska þing­inu, þjóð­inni eða stjórn­völdum þar, heldur Piu sér­stak­lega, og stefnu henni og skoð­unum í mál­efnum inn­flytj­enda.

„Að mínu mati, breytir núver­andi staða hennar engu um hvað hún hefur sagt eða gert gagn­vart hópi fólks sem ekki getur varið sig,“ segir Helga jafn­framt.

Pia segir þennan mál­flutn­ing Helgu vera fárán­legan. „Þau hafa það auð­velt hér á Íslandi, en þau eru aug­ljós­lega alger­lega ómeð­vituð um hvað er að eiga sér stað í heim­inum og hvernig þeirra flokkur hagar sér í Danmörku [inn­skot blaða­manns: hér vísar Pia lík­lega til Sós­í­alde­mókra­ta­flokks­ins í Danmörku] . Mál­flutn­ingur þeirra er fárán­legur og til skammar. Ekki gagn­vart mér per­sónu­lega heldur gagn­vart Danmörku,“ segir Pia.

 
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár