„Hvað sérð þú?“

Vegg­lista­verk Söru Riel, Til sjávar, blasir nú við veg­far­endum á gafli Sjáv­ar­út­vegs­húss­ins. Hún seg­ist hafa farið í gegnum rús­sí­bana á þeim fimm vikum sem það tók hana að vinna verkið sem geri þær kröfur til áhorf­and­ans að hann leyfi sér að sjá eitt­hvað nýtt.

„Hvað sérð þú?“
Sara og loft­steinn­inn Veggverk Söru eru ein­hvers konar póesía í borg­ar­um­hverf­inu. Hún seg­ist hafa kom­ist að því að margir þeir sem ekki hafa sér­stakan áhuga á list hafi samt gaman af því að fylgj­ast með vegg­verkum verða til. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Íslend­ingar eru svo fyndnir. Við erum alltaf að tala um veðrið en samt munum við ekki neitt!“ svarar Sara Riel mynd­list­ar­kona eftir að hafa fengið spurn­ingu tengda mál­efn­inu sem er öllum ofar­lega í huga þetta sum­arið: „Var ekki ömur­legt veður á meðan þú varst að þessu?“ Það er þó kannski ekki nema von að fólk spyrji, þar sem hún varði fimm vikum af ein­stak­legu blautu vori og sumri í að vinna stærð­ar­innar úti­lista­verk á gafl Sjáv­ar­út­vegs­húss­ins. Verkið prýða meðal ann­ars fjöldi smárra spegla sem grípa lit­brigði him­ins­ins og breyt­ingar í veðri. Ásamt þeim not­aði Sara akrýl­máln­ingu og gat því ekki unnið í rign­ingu, svo hún átti tals­vert undir því að það stytti upp inn á milli. „Jú, jú, það var fullt af rign­ingu á þessum tíma en það var líka bara mjög oft lág­skýjað. Ég var líka heppin með að vind­áttin var yfir­leitt hag­stæð svo ég var oft í skjóli. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár