Sérfræðiþekking ekki metin hjá Vegagerðinni

Umsækj­andi um starf for­stjóra Vega­gerð­ar­innar segir að sér­fræði­þekk­ing sé ekki metin á Íslandi og sér­fræð­ingar flytji úr landi. Mennt­aður dýra­læknir var skip­aður, en ekki var gerð sér­stök krafa um menntun í aug­lýs­ingu.

Sérfræðiþekking ekki metin hjá Vegagerðinni
Bergþóra Þor­kels­dóttir Nýr for­stjóri Vega­gerð­ar­innar hefur mikla reynslu úr atvinnu­líf­inu. Mynd: Samtök iðnaðarins

Umsækj­andi um stöðu for­stjóra Vega­gerð­ar­innar segir sér­fræði­þekk­ingu ekki metna á Íslandi sem valdi því að íslenskir sér­fræð­ingar setj­ist að erlendis. Í aug­lýs­ingu um starfið var ekki kraf­ist mennt­unar sér­stak­lega.

Bergþóra Þor­kels­dóttir, mennt­aður dýra­læknir með víð­tæka stjórn­enda­reynslu úr atvinnu­líf­inu, verður skipuð í emb­ætti for­stjóra Vega­gerð­ar­innar frá og með 1. ágúst næst­kom­andi. Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, sagði sig frá mál­inu vegna tengsla við umsækj­anda og var veit­ing­ar­valdið fært til Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og flokks­systur Sigurðar.

Lilja G. Karls­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur var einn af umsækj­endum um for­stjóra­stöð­una. Í færslu á Facebook í gær segir hún að ekki hafi verið kraf­ist þekk­ingar á sam­göngu­málum. „Eitt við­miðið er þekk­ing á sam­göngu­málum EÐA atvinnu­lífi!“ skrifar Lilja. „10 umsækj­endur fá fullt hús stiga fyrir það við­mið, fimm af þeim lenda í neðstu sætum mats­list­ans (ég vænt­an­lega ein af þeim) og ástæðan fyrir því er að hæfn­is­nefndin metur þetta við­mið ein­göngu sem 15% …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár