Forstjóri Landspítala fær 42 þúsund krónur fyrir yfirvinnu hvern dag

47 rík­is­for­stjórar fá yfir eina milljón á mán­uði eftir síð­ustu ákvörðun Kjara­ráðs. Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­ala, fær jafn­mikið greitt í yfir­vinnu og dag­vinnu.

Forstjóri Landspítala fær 42 þúsund krónur fyrir yfirvinnu hvern dag
Fær 31 milljón í árs­laun For­stjóri Land­spít­al­ans, Páll Matth­í­as­son, fær jafn mikið greitt í dag­vinnu og yfir­vinnu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Allir 48 for­stöðu­menn rík­is­stofn­ana utan einn sem Kjararáð úrskurð­aði um launa­hækk­anir til 14. Júní síð­ast­lið­inn fá yfir eina millj­óni króna í mán­að­ar­laun sé tekið til­lit til fastra greiðslna vegna yfir­vinnu. Aðeins for­stöðu­maður Nátt­úru­minja­safns Íslands fær undir milljón á mán­uði en heild­ar­laun hans eru 980.992 krónur þegar allt er til­tekið.

Kjararáð fund­aði í síð­asta sinn 14. júní síð­ast­lið­inn en ráðið var lagt niður með lögum nú um mán­að­ar­mótin. Á fund­inum voru laun til handa 48 for­stöðu­mönnum rík­is­stofn­ana ákvörðuð. Um var að ræða erindi frá for­stöðu­mönnum sem bár­ust ráð­inu á árunum 2016 og 2017, utan tvö sem voru eldri. Umfjöllun um erindin hófust, eftir því sem segir í úrskurð­inum, fyrir 1. jan­úar síð­ast­lið­inn og var ráð­inu því skylt að ljúka umfjöllun um þau með úrskurði fyrir þann tíma sem ráðið var lagt niður.

Með­al­tals­hækkun umræddra 48 for­stöðu­manna nemur um 10,8 pró­sentum að því er kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þrettán þeirra fá, eftir hækk­un­ina, yfir eina milljón á mán­uði í grunna­laun. Hækkunin er aftu­virk og gildir frá 1. des­em­ber á sið­asta ári.

Forstjóri Landspítala með 31 milljón á ári

For­stjóri Land­spít­al­ans fær hæst laun af for­stöðu­mönn­unum 48,  1.294.693 krónur í grunn­laun. Þar að auki fær hann við­líka upp­hæð, 1.292.220 krónur í greidda í fasta yfir­vinnu á mán­uði en sam­kvæmt úrskurði Kjara­ráðs skal greiða honum 135 ein­ingar á mán­uði fyrir alla yfir­vinnu er starf­inu fylgi. Það jafn­gildir því að Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­al­ans, fái greiddar um 60.000 krónur í yfir­vinnu fyrir hvern virkan dag mán­að­ar­ins og 42 þús­und krónur á hverjum degi. Heild­ar­laun Páls nema 2.586.913 krónum á mán­uði þegar grunn­laun og yfir­vinna er saman tekin. Árslaun Páls nema því alls ríf­lega 31 milljón króna.

Enginn for­stöðu­maður fær við­líka fjölda ein­inga ákvarð­aða í fastar yfir­vinnu­greiðslur eins og for­stjóri Land­spít­ala. Einingar eru 1 pró­sent af launa­flokki 136 í launa­töflu kjara­ráðs nr. 502 og jafn­gilda nú 9.572 krónum. Næstur Páli Matth­í­assyni í þeim efnum kemur Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, en honum skal greiða 50 ein­ingar á mán­uði í fasta yfir­vinnu. Það jafn­gildir 478.600 krónum á mán­uði og heild­ar­laun Páls Gunnars eru því 1.649.043 krónur.

Meiri yfirvinna hjá forstjóra Samkeppniseftirlitsins en ríkislögreglustjóra

Rektor Háskóla Íslands, Jón Atli Bene­dikts­son, fær eftir úrskurð­inn næst hæstu grunn­launin, 1.251.843 krónur. Að auki fær hann greiddar 40 ein­ingar í yfir­vinnu mán­að­ar­lega, jafn­gildi 382.880 króna. Sam­an­lagt fær því Jón Atli greiddar 1.634.723 krónur á mán­uði.

Þriðju hæstu grunn­mán­að­ar­launin fær for­stjóri Vega­gerð­ar­innar en þau eru eftir ákvörðun kjara­ráðs nú 1.210.442 krónur. Að auki fær for­stjóri Vega­gerð­ar­innar greiddar 40 ein­ingar á mán­uði í yfir­vinnu, 382.880 krónur og hefur því sam­tals í laun 1.593.322 krónur á mán­uði.

Athygli vekur að rík­is­slög­reglu­stjóri, Haraldur Johann­es­sen, hefur sömu grunn­laun og Páll Gunnar Pálsson, for­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, en fær hins vegar færri ein­ingar í yfir­vinnu. Haraldur fær úrskurð­aðar 45 ein­ingar í fasta yfir­vinnu, jafn­gildi 430.740 króna, sem eru 47.860 krónum lægri yfir­vinnu­greiðslur en Páll Gunnar.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár