Sérfræðilæknar lýsa yfir stuðningi við ljósmæður

Sér­fræði­læknar við Kvenna­deild Land­spít­ala segj­ast ekki geta unnið vinnu sína án ljós­mæðra. Því verði að semja við þær og það verði að ger­ast strax.

Semja verður strax
Semja verður strax Sér­fræði­læknar á Kvenna­deild Land­spít­ala segj­ast ekki sætta sig við annað en að haldið verði áfram á þeirri góðu braut sem fetuð hefur verið varð­andi þjón­ustu við nýbura og mæður. Því verði að meta störf og sér­þekk­ingu ljós­mæðra að verð­leikum og semja við þær strax. Mynd: Shutterstock

Kominn er tími til að meta störf ljós­mæðra og sér­þekk­ingu að verð­leikum og ekki er nema sann­gjarnt að menntun þeirra og ábyrgð end­ur­speglist í launum þeirra. Þetta segir í yfir­lýs­ingu sér­fræði­lækna Kvenna­deildar Land­spít­ala Íslands þar sem stuðn­ingi er lýst við ljós­mæður.

Í yfir­lýs­ing­unni, sem fer hér að neðan, segir einnig að fæð­inga- og kven­sjúk­dóma­læknar á Land­spít­ala hafi af því miklar áhyggjur hvað nú taki við þegar veru­lega sé farið að kvarn­ast út hópi ljós­mæðra, þeirra helstu sam­starfs­manna. „ Við lækn­arnir getum nefni­lega ekki unnið vinn­una okkar án ljós­mæðra, svo ein­falt er það. Samstarf okkar er mjög mikið og náið og við treystum á þær og þær á okkur.“

Með auk­inni þekk­ingu á með­göngu og fæð­ingu lifa nú miklu fleiri börn en áður og eiga ljós­mæður sinn hlut í því að mæðra og ung­barna­dauði hér á landi er með því lægsta sem þekk­ist í heim­inum. „Við sættum okkur ekki við annað en að halda áfram á þeirri braut. […] Því segjum við: það verður að semja og það verður að ger­ast strax.“

 Yfirlýsing sérfræðilækna Kvennadeildar Landspítala Íslands.

Fæðinga- og kven­sjúk­dóma­læknar á Land­spít­al­anum hafa af því miklar áhyggjur hvað taki við nú þegar veru­lega er byrjað að kvarn­ast úr hópi þeirra helstu sam­starfs­manna, ljós­mæðra. Engin lausn virð­ist í sjón­máli í deilu þeirra við fjár­mála­ráðu­neytið um kaup og kjör. Næstu vikur verða erf­iðar og fækk­unin mun segja strax til sín í minni þjón­ustu við sæng­ur­konur. Við lækn­arnir getum nefni­lega ekki unnið vinn­una okkar án ljós­mæðra, svo ein­falt er það. Samstarf okkar er mjög mikið og náið og við treystum á þær og þær á okkur.

Þó að við reynum að láta öryggi fæð­andi kvenna ganga fyrir með þeim mann­afla sem við höfum vitum við að störf ljós­mæðra snú­ast um svo miklu meira en að taka á móti börnum. Umönnun þung­aðra kvenna og sæng­ur­kvenna, að sinna brjósta­gjöf og fylgj­ast með nýburum er fyrst og fremst í þeirra höndum. Þessi störf geta stundum beðið en alls ekki alltaf. Við verðum að geta treyst á að þessir mik­il­vægu sam­starfs­menn okkar séu til staðar. Annars mun starf­semin smám saman lam­ast.

Ljós­mæður eru lang­elsta kvenna­stétt lands­ins og hafa þurft að vinna erfið störf af fórn­fýsi og hug­sjón öldum saman. Laun þeirra hafa oft ekki verið mikil á ver­ald­legan mæli­kvarða en þær eiga sér­stakt sæti í hjörtum flestra kvenna sem fætt hafa barn og þakk­læti maka þeirra og fjöl­skyldn­anna allra.

Þekking á með­göngu og fæð­ingu hefur auk­ist á und­an­geng­inni öld og nú lifa miklu fleiri börn en áður og eiga ljós­mæður sinn hlut í því að mæðra- og ung­barna­dauði er hér með því lægsta sem ger­ist í heim­inum. Við sættum okkur ekki við annað en að halda áfram á þeirri braut. Til þess að stuðla að þess­ari góðu útkomu hafa mennt­un­ar­kröfur ljós­mæðra auk­ist og það er ekki nema sann­gjarnt að mennt­unin og ábyrgðin sem þær bera end­ur­speglist í laun­unum. Við getum líka öll spurt okkur hvort þær hefðu fengið sömu laun á öldum áður ef þær hefðu verið karlar. Menntun þeirra var heil­mikil á þeirra tíma mæli­kvarða og þær þurftu oft að yfir­gefa börn og bú vikum saman vegna þess ábyrgð­ar­hlut­verks sem þær gegndu. Nú er kom­inn tími til að meta störf þeirra og sér­þekk­ingu að verð­leikum. Við sem þekkjum til fæð­inga og starfa ljós­mæðra efumst ekki um að þær standi við orð sín. Það er nefni­lega ekki nóg að sýna mildi og kær­leik til að hjálpa konu að fæða barn. Til þess þarf líka oft mikla þraut­seigju og ákveðni og upp­gjöf er ekki til í þeirra orða­bók. Því segjum við: það verður að semja og það verður að ger­ast strax.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár