Einn öflugasti þjóðfélagsrýnir Íslands er fallinn frá

Jónas Krist­jáns­son rit­stjóri hélt áfram skrifum inn á líkn­ar­deild Land­spít­al­ans, þar sem hann lést í gær­morgun.

Einn öflugasti þjóðfélagsrýnir Íslands er fallinn frá

Jónas Krist­jáns­son, sem varð frétta­stjóri aðeins 21 árs gam­all og rit­stjóri 26 ára, lést í gær­morgun, eftir að hafa haft mót­andi áhrif á íslenska blaða­mennsku í hálfa öld. 

Jónas var ára­tugum saman einn helsti þjóð­fé­lags­rýnir og -gagn­rýn­andi lands­ins. Í skrifum sínum var­aði hann við spill­ingu og skrif­aði gegn fátækt og ras­isma. 

Allt fram á síð­asta mánuð lífs síns hélt hann áfram skrifum, sem birt­ust með tíðu og reglu­legu milli­bili í staðl­aðri lengd á Jónas.is. Í síð­ustu færslu sinni, sem hann birti á þjóð­há­tíð­ar­deg­inum 17. júní síð­ast­liðnum, lýsti hann aðstæðum á líkn­ar­deild Land­spít­al­ans.

„Í annað sinn á síð­ustu hef ég haft þá ánægju að rúlla sem við­skipta­vinur gegnum bráða­deildir og líkn­ar­deildir Land­spít­al­ans. Þar er þröng á þingi, sjúk­lingar í ofsetnum her­bergjum, á göngum og lag­erum. Kringum þá stendur þyrp­ing ætt­ingja og koma þá oft ekki bara sjúk­dómar við sögu. Klið­ur­inn berst til ann­arra hópa og frá einum hópi til ann­ars. Heims­leik­arnir eru fólki ofar­lega í huga, brauð og leikir fátæka manns­ins. Næst kemur lífs­bar­átta sumra ætt­ingja. Fólk, sem skrapar á 250 þús kr stríp­uðum taxta­launum, atvinnu­leys­is­bótum, örorku, eða elli­launum, er mán­að­ar­lega í óvið­ráð­an­legum lífskrísum.“

Jónas starf­aði í fjöl­miðlum í rúm­lega hálfa öld, lengst af sem rit­stjóri. Margir af starf­andi blaða- og fjöl­miðla­mönnum Íslands hafa unnið með Jónasi Krist­jáns­syni sem rit­stjóra. Jónas hélt meðal ann­ars úti kennslu­vef í blaða­mennsku. Hann var for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands og Íslands­nefndar International Press Institute. Jónas skrif­aði fjölda bóka, einkum ferða­bækur og hesta­rit.

For­eldrar Jónasar voru Anna Pét­urs­dóttir bók­ari og Kristján Jónasson læknir. Jónas var fæddur í Reykja­vík 5. febr­úar 1940. Hann lauk stúd­ents­prófi frá MR 1959 og var ráð­inn frétta­stjóri dag­blaðs­ins Tímans strax tveimur árum síðar. Jónas lauk BA-prófi í sagn­fræði frá Háskóla Íslands 1966. 

Jónas missti eig­in­konu sína, Kristínu Hall­dórs­dóttur, fyrr­ver­andi alþing­is­manns, 14. júlí 2016. Börn þeirra eru Kristján jarð­fræð­ingur, Pálmi frétta­maður og sagn­fræð­ingur, Pétur kerf­is­fræð­ingur og Halldóra flug­maður.

Halldóra minn­ist föður síns á Facebook í dag: „Eins og mamma lagði hann sitt að mörkum til að bæta heim­inn, 4. valdið var hans leið, fjöl­miðlun og skrif. Pabbi var bráðskarpur og beittur penni, frum­kvöð­ull og braut­ryðj­andi í frjálsri fjöl­miðlun á Íslandi, stefnu­fastur, bein­skeyttur og hrein­skil­inn sam­fé­lags­gagn­rýnir, ég er ákaf­lega stolt af honum og öllu því sem hann hefur áorkað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár