Ármann Kr. leggur til að laun sín verði lækkuð

Ármann Kr. Ólafsson, bæj­ar­stjóri Kópavogs, lagði í gær til að laun hans og kjör­inna full­trúa bæj­ar­ins yrðu lækkuð um 15 pró­sent. Ármann yrði enn launa­hærri en for­sæt­is­ráð­herra ef til­lagan næði fram að ganga.

Vill lækka launin sín
Vill lækka launin sín Ármann Kr. Ólafsson, bæj­ar­stjóri Kópavogs, lagði í gær til að laun hans og kjör­inna full­trúa yrðu lækkuð um 15 pró­sent. Mynd: Kristinn Ingvarsson

Ármann Kr. Ólafsson, bæjast­stjóri Kópavogs, lagði til á fundi bæj­ar­stjórnar í gær að laun kjör­inna full­trúa, og þar með talin hans eigin laun, yrðu lækkuð um 15 pró­sent. Til­lög­unni var vísað til for­sætis­nefndar Kópa­vogs­bæjar.

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni segir að í kjöl­far úrskurðar kjara­ráðs um kjöt þing­manna í lok árs 2016 hafi bæj­ar­stjórn Kópavogs sam­þykkt að hækka laun kjör­inna full­trúa og bæj­ar­stjóra. Hækkunin hafi þó ekki tekið mið af úrskurði ráðs­ins heldur hafi tekið mið af þróun launa­vísi­tölu og hún því verið lægri en ella. „Engu að síður hefur komið fram gagn­rýni á launa­þróun þess­ara aðila sem og kjör ann­arra kjör­inna full­trúa í land­inu m.a. af hálfu for­ystu­fólks á vinnu­mark­aði. Því er lagt til að launin lækki í upp­hafi kjör­tíma­bils um 15% frá því sem þau eru nú.“

Laun Ármanns eru nú 2.159.670 krónur og hafa hækkað um tæp 58 pró­sent frá upp­hafi síð­asta kjör­tíma­bils. Þá voru laun hans 1.368.783 krónur. Þar fyrir utan fær Ármann bíla­styrk upp á 137.500 krónur á mán­uði. Þá situr Ármann einnig í stjórn Slökkvi­liðs höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og fær fyrir það greiddar 130.604 krónur á mán­uði. Alls hefur Ármann því 2.427.774 krónur í laun mán­að­ar­lega.

Yrði til­laga Ármanns sam­þykkt má gera ráð fyrir að hún lúti ein­ungis að föstum launum hans, það er launum hans sem bæj­ar­stjóri. Verði þau lækkuð um 15 pró­sent fengi Ármann greiddar 1.835.720 krónur í mán­að­ar­laun og fengi því sam­tals 2.103.824 krónur í launa­greiðslur á mán­uði.

Til sam­an­burðar eru laun Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, ákvörðuð af kjara­ráði, 2.021.825 krónur á mán­uði.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár