Mæður heyra börn gráta í myrkri næturinnar

Elizabeth Warren, öld­ung­ar­deild­ar­þing­maður á banda­ríska þing­inu, lýsir upp­lifun sinni af því þegar hún fór og kynnti sér aðstæður inn­flytj­enda sem haldið er í búrum og örvænt­ingu mæðra sem skildar eru frá börnum sínum vegna stefnu rík­is­stjórnar Trump Banda­ríkja­for­seta.

Mæður heyra börn gráta í myrkri næturinnar
Haldið í búrum Hund­ruðir á hund­ruðir ofan af inn­flytj­endum hafa verið teknir höndum í Banda­ríkj­unum, þeim haldið án dóms og laga og aðskilin frá börnum sínum og fjöl­skyldum. Allt er þetta gert í nafni stefnu Donalds Trumps Banda­ríkja­for­seta um ekk­ert umburð­ar­lyndi gagn­vart ólög­legum inn­flytj­endum. Mynd: Youtube

Elizabeth Warren, öld­ung­ar­deild­ar­þing­maður á Banda­ríkja­þingi, fór síð­ast­lið­inn sunnu­dag til McAllen í Texas til að kynna sér afleið­ingar stefnu Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta í inn­flytj­enda­málum. Hún birti í gær Facebook-færslu um upp­lifun­ina. Skrif Warren fara hér á eftir í þýð­ingu og stað­færslu Stund­ar­innar. Milli­fyr­ir­sagnir eru Stund­ar­innar.

Síð­ast­lið­inn sunnu­dags­morgun flaug ég til McAllen í Texas til að kynna mér hvað hefur í raun og veru komið fyrir fjöl­skyldur inn­flytj­enda sem stíað hefur verið í sundur af rík­is­stjórn Trumps.

„Eitt er víst: Krísu­á­standið við landa­mæri okkar stendur enn.“

Ég hélt bein­ustu leið af flug­vell­inum til mið­stöðvar tolla- og landamæra­gæslu McAllen (CBP) sem er mið­punktur „zero-tolerance“ stefnu Donalds Trumps, ekk­ert umburð­ar­lyndi. Þangað færa landamæra­verðir inn­flytj­endur án papp­íra áður en þeim er ýmist sleppt aftur, þeir fluttir út landi, afhentir inn­flytj­enda­eft­ir­lit­inu eða, þegar um er að ræða fylgd­ar­laus börn eða börn sem hafa verið skilin frá for­eldrum sínum, þau sett í hendur barna­verndar.

Elizabeth WarrenÖld­ung­ar­deild­ar­þing­mað­ur­inn lýsti ferð sinni til McAllen í Texas þar sem hún kynnti sér hinar hörmu­legu afleið­ingar sem stefna Donalds Trumps í inn­flytj­enda­málum hefur haft.

Af göt­unni lítur mið­stöð CBP út eins og hvert annað vöru­hús í iðn­að­ar­hverfi. Það gefur engin fyr­ir­heit um hryll­ingin sem fer fram innan dyra. Áður en við gátum farið inn krafð­ist CBP þess að við horfðum á áróð­urs­mynd­band stjórn­valda. Það er engin önnur leið til að lýsa því, það var eins og kvik­myndastikla, upp­fullt að dramat­ískum leik­lestri um „hina ólög­legu“ sem kæmu yfir landa­mæri okkar, toppað með óhugn­an­legum myndum sem lýstu ógn­unum sem stöf­uðu af inn­flytj­endum í Banda­ríkj­unum, allt frá glæpaklíkum til húð­út­brota. Hetja mynd­bands­ins var CBP sem, eftir því sem sagt var í mynd­band­inu, hefðu unnið þrek­virki við að draga úr komu inn­flytj­enda.

Vöruhús fyllt af búrum

Að því loknu lýsti starfs­maður því sem við ættum í vændum. „Þau hafa aðskilda klefa. Ég kalla þetta klefa, ég veit raunar ekki hvað þeir kalla þá.“ Aug­ljós­lega hafði við­kom­andi fengið minn­is­blaðið þar sem lögð var áhersla á að kalla þetta ekki sínu rétta nafni: búr. Við hverri ein­ustu spurn­ingu sem ég spurði var flókið og rugl­ings­legt svar, sem leiddi af sér fleiri spurn­ingar. Jafnvel ein­föld­ustu spurn­ingar eins og hversu lengi fólki væri haldið. „Enginn er hér lengur en 24 tíma. Jæja, kannski 24 til 48 tíma. Hámark 72 tíma.“ Og einnig: „Engin börn eru skilin frá. Eða sko, nema eldri börn.“

Vöru­húsið er mik­ill geimur, með steyptu gólfi og hátt til lofts. Það er fullt af búrum. Búrum fyrir karl­menn. Búrum fyrir konur. Búrum fyrir mæður með unga­börn. Búrum fyrir stúlkur. Búrum fyrir drengi.

Lykt af svita og ótta

Ólyktin, lykt af svita og ótta, skellur á manni um leið og dyrnar eru opn­aðar. Fyrstu búrin eru full af karl­mönnum. Þau eru 3,5 til 4,5 metra há og það er þröngt. Ég efast um að allir menn­irnir gætu lagst niður í einu. Það er kló­sett aft­ast í búr­inu bak við smá­vegg en engin aðstaða til að þvo sér eða fara í sturtu. Einn mann­anna æpti aftur og aftur: „Sturtu, gerið þið það. Bara sturtu.“

Ég spurði menn­ina sem haldið var í búr­unum hvaðan þeir væru. Nálega allir voru frá El Salvador, Gvatemala eða Hondúras. Þá spurði ég þá hverstu lengi þeim hefði verið haldið þarna og svörin voru af öllu tagi, allt frá nokkrum dögum og allt að tveimur vikum (72 tímar hámark?). Full­trúar CBP flýttu sér að leið­rétta menn­ina sem þeir höfðu í haldi, og héldu því fram að svör þeirra gætu ekki verið rétt. Sér­fræð­ing­ur­inn minn í inn­flytj­enda­málum í þess­ari ferð talar full­komna spænsku og gekk úr skugga um að menn­irnir hefðu skilið spurn­ing­una. „Hversu lengi hafið þið verið í þess­ari bygg­ingu?“ Svör þeirra breytt­ust ekk­ert. Búr eftir búr. Sömu spurn­ing­arnar, sömu svörin.

„Þau höfðu ekk­ert, engar bækur, engin leik­föng, ekk­ert við að vera. Þau litu út eins og þau hefðu lent í sprengjuregni.“

Því næst komum við inn á svæðið þar sem börnin voru í haldi. Búrin þar voru stærrri en ennþá fleiri í þeim. Í miðju búr­anna er varð­turn, kannski fjög­urra metra hár, þaðan sem hægt er að fylgj­ast með börn­unum. Stúlkum er haldið saman í stóru búri. Börnin sögðu okkur að þau hefðu komið til Banda­ríkj­anna með fjöl­skyldum sínum og að þau vissu ekki hvert hefði verið farið með þær. Ellefu ára gömul, tólf ára. Lokuð inni í búrum með ókunn­ugum. Mörg þeirra höfðu ekki talað við for­eldra sína. Þau vissu ekki hvar þau væru eða hvað yrði um þau. Börnin voru þögul. Það var mið­degi og þau sátu bara. Sum sátu á þunnum mottum með álteppi dregin yfir höfuð sér. Þau höfðu ekk­ert, engar bækur, engin leik­föng, ekk­ert við að vera. Þau litu út eins og þau hefðu lent í sprengjuregni.

Konur með ungabörn í búrum

Síðan komum við að stórum búrum þar sem voru konur og smá­börn. Konur að gefa unga­börnum brjóst.

Þegar við komum til þeirra spurði ég hví þær hefðu yfir­gefið heima­lönd sín. Ung móðir með fjög­urra ára gam­alt barn sagði að sér hefði verið hótað og ógnað af glæpa­gengi í El Salvador. Hún hefði gefið lög­reglu­þjóni vatn að drekka og gengið hefði þar með sann­færst um að hún væri á bandi lög­regl­unnar. Eftir því sem hún sagði lengur frá, því óró­legri varð hún. Hún sagði að henni myndi aldrei detta í hug að hjálpa lög­regl­unni, hún skyldi áhætt­una en glæpa­gengið hefði verið sann­fært um að hún væri með lög­regl­unni í liði. Hún seldi allt sem hún átti og flúði með son sinn til Banda­ríkj­anna.

Eitt af því sem þú sérð ekki í CBP mið­stöð­inni eru feður með börnin sín. Eftir að hafa þrýst á full­trúa CBP útskýrðu þeir að karl­mönnum sem ferð­uð­ust með börnum væri sjálf­krafa sleppt úr mið­stöð­inni. Það væru ein­fald­lega ekki nægj­an­lega mörg búr þar til að halda þeim. Konur með unga­börn hins vegar, þeim mætti halda út í hið óend­an­lega. Ég þrýsti á full­trú­ana hvað þetta varð­aði ítrekað. Eina svarið sem ég fékk var að með því væri verið að verja „öryggi mæðra og barna“.

Flúði til að forða syni sínum frá glæpagengi

CBP sagði að feður með börn, ólettar konur, mæður barna með sér­þarfir og aðrir „heppnir“ sem sleppt væri úr mið­stöð­inni væru sendir til hjálp­ar­stofn­unar kaþ­ólsku kirkj­unnar. Þangað fór ég næst. Systir Norma, starfs­lið hennnar og sjálf­boða­liðar eru sann­ar­lega að vinna guðs verk. Hjálp­ar­stofn­unin útvegar mat, sturtu­að­stöðu, hrein föt og lyf handa þeim sem á þurfa að halda. Þar er reynt að útskýra hið flókna ferli fyrir fólk­inu og sjálf­boða­liðar hjálpa því að kom­ast í rútu til ætt­ingja í Banda­ríkj­unum.

Systir Norma kynnti mig fyrir föður og ung­lings­syni hans frá Hondúras. Faðirinn sagði að glæpa­gengi hefði verið á hælum sonar hans, heimt­andi að hann gengi til liðs við þá. Eina leiðin fyrir dreng­inn til að sleppa var að leggja á flótta. Maðurinn yfir­gaf eig­in­konu sína og fjórar dætur í Hondúras til að koma syni sínum til Banda­ríkj­anna. Eina áætl­unin sem hann hafði var að finna sér vinnu til að geta sent pen­inga heim til fjöl­skyld­unnar. Frændi hanns býr í New Jersey og því sendu CBP papp­íra til inn­flytj­enda­skrif­stof­unnar í New Jersey. Fljót­lega myndu feðgarnir leggja upp í hina löngu rútu­ferð þangað.

Hjálp­ar­stofnun Kaþólsku kirkj­unnar í Rio Grande dalnum veitir neyð­ar­að­stoð til handa fólki af öllum trú­ar­brögðum og bak­grunni en vegna neyð­ar­á­stands­ins á svæð­inu er hjálp­ar­stofn­unin komin út á ystu nöf. Fengi hún meira fjár­magn og fleiri sjálf­boða­liða, myndu hún með gleði hjálpa fleiru fólki.

Ég spurði systur Normu um kon­urnar og börnin sem væru í ótíma­bundnu haldi. Hún sagði að þau myndu með gleði taka á móti þeim, fæða þau og klæða og koma þeim upp í rútu á leið til ætt­ingja sinna, ef þeim væri aðeins sleppt. „Þetta er sið­ferð­is­leg skylda okkar, við erum öll hluti af fjöl­skyldu manna.“

Skilgreiningin aðeins foreldri og barn

Að þessu loknu hitti ég lög­fræð­inga sem eru í auga storms­ins hvað varðar aðskiln­að­inn. Ég lýsti fyrir þeim því sem ég hefði séð fram til þessa í McAllen og ræddi fram­kvæmd sam­ein­ingu for­eldra og barna. Lög­fræð­ing­arnir stað­festu hins vegar það sem ég ótt­að­ist mest. Trump-stjórnin er kannski að „sam­eina“ fjöl­skyldur en skil­grein­ing þeirra á fjöl­skyldu er ein­göngu for­eldri og barn. Sem dæmi, ef 9 ára gam­alt barn kemur yfir landa­mærin með 18 ára gam­alli systur sinni, eða frænku, frænda, afa eða ömmu, eða nokkrum þeim sem ekki er for­ráða­maður barns­ins sam­kvæmt papp­írum, þá eru við­kom­andi ekki talin vera fjöl­skylda og þau aðskilin.

Mæður og börn eru talin vera „sam­einuð“ ef þeim er haldið í sömu gríð­ar­stóru bygg­ing­unni, jafn­vel þó þau sé læst inni í mis­mun­andi búrum og hafi engan aðgang að hverju öðru. Í ver­öld CBP og inn­flytj­enda­eft­ir­lits­ins eru það sem sagt þannig sem 10 ára gamlar stúlkur, læstar inni í stórum búrum, eru „ekki aðskildar“ frá mæðrum sínum sem eru læstar inni í búrum ann­ars staðar í bygg­ing­unni.

Þegar kemur að því að „sam­eina“ fjöl­skyldur líta stjórn­völd hugs­an­lega á það sem fjöl­skyldu­sam­ein­ingu þegar barn er sent til fjar­skyldra ætt­ingja sem það hefur aldrei hitt, en ekki til for­eldra sinna. Dæmi eru um að sumir ætt­ingjar séu óvilj­ugir að krefj­ast þess að fá börnin til sín, því það byði heim þeirri hættu að inn­flytj­enda­eft­ir­litið færi að kanna þeirra eigin fjöl­skyldur. For­eldrar eru svo örvænt­ing­ar­fullir að þeir gefa jafn­vel upp á bát­inn rétt sinn á hæli til að fá börn sín til sín á nýjan leik.

Kerfi til að hafa uppi á fjöl­skyldu­með­limum sundraðra fjöl­skyldna er óþekkt, ef það er yfir­höfuð til staðar. Sér­fræð­ingur sem ég ræddi við ótt­ast að í til­fellum sumra fjöl­skyldna sé ein ein­asta ljós­mynd hugs­an­lega einu gögnin sem yfir­völd hafi í hönd­unum til að sam­eina þær á ný. Ég vona inni­lega að þetta sé rangt.

Fólki haldið í fangelsi

Eftir því sem á dag­inn leið kvikn­uðu enn fleiri spurn­ingar hjá mér um það hvernig stjórn Trumps hyggst leysa krís­una sem hún hefur skapað við landa­mærin. Svo síð­asti áfanga­staður minn þennan dag var Port Isabel fang­elsið, sem er um það bil í klukku­tíma fjar­lægð austur af McAllen. Það er eitt stærsta fang­elsið í Texas.

Þjóðar­ör­ygg­is­stofn­unin hefur kynnt hluta af áætlun sinni um sam­ein­ingu fjöl­skyldna, meðal ann­ars að Port Isabel verði „mið­stöð fjöl­skyldu­sam­ein­ingar og flutn­inga fyrir full­orðna sem eru í þeirra haldi.“

„Höfum eitt á hreinu: Port Isabel er ekki sam­ein­ingar mið­stöð. Það er fang­elsi. Fangelsi.“

Það er ekk­ert óskýrt í þessu. Ég hitti yfir­mann fang­els­is­ins. Hann sagði ítrekað að hann hefði ekki pláss fyrir börn, að hann hefði engin úrræði til að sjá fyrir þeim og hefði engar áætl­anir um að börn kæmu inn fyrir veggi fang­els­is­ins. Þegar ég krafð­ist svara um hver áætl­unin um sam­ein­ingu fjöl­skyldna eig­in­lega væri, giskaði hann á að yfir­völd myndu flytja börnin eitt­hvað, enn sann­ar­lega ekki í sitt fang­elsi. Þegar ég spurði hversu langan tíma það myndi taka giskaði hann á vikur, en sagði að það væri yfir­valda að ákveða. Hann sagð­ist hafa starfi að sinna: Að halda mæðrum og feðrum í haldi þangað til að hann fengi skip­anir um að senda þau eitt­hvert annað. Annað ekki.

Aftur: Þetta er fang­elsi, ekki mið­stöð sam­ein­ingar.

Við fórum um fang­elsið. Það er gríð­ar­stórt, fjöldi bygg­inga ein­angr­aðar fjarri manna­byggð. Við fórum ekki í þann hluta sem karl­mönn­unum er haldið í en kon­unum er haldið í stórri bygg­ingu fullri af kojum, með stein­steyptu úti­svæði. Það er læst, tví-, þrí­læst. Háar girð­ingar girða allt af, með gadda­vír efst og við taka aðrar girð­ingar, einnig með gadda­vír efst.

Skelfilegar sögur

Níu mæður voru færðar inn til okkar, konur sem höfðu sam­þykkt að ræða við okkur. Ég trúi ekki að þær hafi verið sér­valdar fyrir þennan fund því allt sem þær höfðu að segja var skelfi­legt. Hver og ein lýsti því hvernig þær hefðu komið yfir landa­mærin, verið teknar og fluttar í mið­stöð þar sem þær voru aðskildar frá börnum sínum. Í öllum til­vikum lugu yfir­völd að þeim um hvert ætti að flytja börnin þeirra. Engin þeirra, utan ein, hafði fengið að ræða við börnin sín eftir að þau voru aðskilin. Og engin þeirra vissi hvar þau voru núna.

„Ég fékk ekki að kveðja, ég fékk aldrei að kveðja hann“

Þegar þau voru aðskilin var flestum mæðr­anna sagt að börnin myndu koma aftur til þeirra. Einni kvenn­anna hafði verið haldið í „ísskápnum“, mið­stöð sem er kölluð svo því þar er afar kalt. Þegar full­trúar yfir­valda komu og tóku barnið af henni var henni sagt að það væri ein­fald­lega of kalt fyrir það og það ætti bara að halda hita á barn­inu hennar þar til hún yrði flutt annað. Þetta var um miðjan júní. Hún hefur ekki séð barnið sitt síðan.

Ein mæðr­anna var í haldi með barni sínu. Þau voru sof­andi saman á gólf­inu í einu búr­inu þegar hún var rifin í burtu klukkan þrjú að nóttu. Síðast sá hún sjö ára gamlan son sinn sof­andi á stein­steyptu gólf­inu. Hún grét og sagði ítrekað: „Ég fékk ekki að kveðja, ég fékk aldrei að kveðja hann.“ Þetta var í byrjun júní og hún hefur ekki séð son sinn síðan.

Jafnvel þó að starfs­menn CBP í mið­stöð­inni hafi sagt mér að mæður barna með sér­þarfir yrðu leystar úr haldi ásamt börnum sínum, hafði ein mæðr­anna sem ég ræddi við í fang­els­inu verið skilin frá barni sínu sem hafði sér­þarfir. Hún lýsti barn­inu sínu, sem hefur van­þroskaða fætur og á afar erfitt með gang. Önnur mæðr­anna lýsti því að í fang­els­inu væri móðir sem hefði afar miklar áhyggjur af barni sínu, sem hefði verið skilið frá henni, sökum þess að barnið væri heyrn­ar­laust og gæti ekki talað.

Konurnar sem ég hitti voru í áfalli, kjökrandi og sár­bændu mig um hjálp. Þær skilja ekki hvað hefur komið fyrir þær og þær grát­báðu um að fá að sam­ein­ast börnum sínum.

Þau sem eru í haldi geta hringt sím­töl gegn gjaldi en allar eigur þeirra eru gerðar upp­tækar þegar þau eru hneppt í varð­hald. Eina leiðin til þess að verða sér út um pen­inga er ef ein­hver getur fært pen­inga inn á reikn­inga þeirra. Ég spurði hvort fólk eða líkn­ar­fé­lög gætu lagt fram pen­inga til að þau gætu hringt í fjöl­skyldur sínar eða lög­fræð­inga, en þær neit­uðu því. Sá sem vildi láta pen­inga af hendi rakna þyrfti að hafa undir höndum kenni­tölu hvers eins og ein­asta sem haldið væri í fang­els­inu og yfir­völd væru aug­ljós­lega ekki til­búin til að láta þær upp­lýs­ingar af hendi.

Baráttunni fjarri lokið

Þrír ungir lög­fræð­ingar voru í Port Isabel á sama tíma og við. Lög­fræð­ing­arnir sögðu okkur að mál umbjóð­enda þeirra, fólks­ins sem þeir hefðu rætt við í fang­els­inu, væru sterk og miklar líkur á að það ætti rétt á hæli í Banda­ríkj­unum. Hins vegar væri ferlið þannig að mögu­leik­inn á hæli fælist í frammi­stöðu fólks í einu ein­asta sím­tali við inn­flytj­enda­yf­ir­völd, þar sem fólk þyrfti að færa rök fyrir því af hverju það ætti rétt á fá hæli. Ein fyrsta spurn­ingin sem allar mæður fengju væri: „Hefur þú verið skilin frá barni þínu?“ Fyrir sumar mæð­urnar þarf ekki meira til en þessa spurn­ingu svo að þær brotni saman. Lög­fræð­ing­arnir ótt­ast að þessar konur séu í svo við­kvæmu ástandi að þær séu alls ekki í standi til að færa fram sann­fær­andi rök fyrir máli sínu. Þær séu bjarg­ar­lausar því þær hafi misst börn sín og vilji ekk­ert annað en að fá þau til sín á nýjan leik.

Heim­sóknin í Port Isabel tók meira en tvo tíma, umtals­vert lengur en þau þrjú korter sem búið var að lofa okkur. Þegar við loks fórum í hátt­inn þetta kvöld hugs­aði ég um nokkuð sem mæð­urnar höfðu sagt mér, nokkuð sem á eftir að ásækja mig lengi.

Mæðurnar sögðu að þær heyrðu börn gráta í nótt­inni.

Þetta snýst ekki um stjórn­mál. Þetta snýst ekki um Demókrata eða Repúblik­ana. Þetta snýst um mann­eskjur. Börnum er haldið í búrum, á þess­ari stundu. Börn eru dreifð um landið allt. Og mæður heyra börnin gráta í myrkri næt­ur­innar.

Ég er enn að melta allt sem ég sá og varð vitni að en ég ég vildi að þið heyrðuð alla sög­una. Bar­átt­unni fyrir þessi börn og fjöl­skyldur þeirra er ekki lokið, því fer fjarri.

 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár