Hent út af heimili sínu eftir að hún steig fram

Kiana Sif steig nýverið fram í fjöl­miðlum og lýsti kyn­ferð­is­of­beldi sem hún varð fyrir af hendi stjúp­föður síns. Henni var í kjöl­farið hent út af móður sinni.

Hent út af heimili sínu eftir að hún steig fram
Ekki vel­komin Móðir Kiönu Sifjar sagði henni að hún væri ekki lengur vel­komin heima hjá sér eftir að hún sagði sögu sína. Mynd: Mannlíf

Kiana Sif Limehouse er ein þriggja kvenna sem stigið hafa fram og sagt frá meintu kyn­ferð­is­of­beldi sem þær urðu fyrir af hendi Aðal­bergs Sveins­sonar, en hann var stjúp­faðir Kiönu. Viðtal við Kiönu birt­ist í Mannlífi fyrr í mán­uð­inum og í fram­hald­inu sagði hún sögu sína í við­tali við DV og í sjón­varps­við­tali við RÚV. Eftir að hún steig fram í fjöl­miðlum var henni hent út af heim­ili sínu.

Fannst tilgangslaust að stíga fram

Kiana Sif flutti til ömmu sinnar árið 2008 eftir að upp komst um ofbeldið en hefur síð­ast­liðið ár fengið að vera á sóf­anum heima hjá móður sinni. Hún lét móður sína vita þegar hún hafði ákveðið að veita fyrsta við­talið. „Ég hef alltaf viljað að sam­skiptin séu í lagi, svo ég sett­ist niður með mömmu minni dag­inn sem ég átti að fara í við­talið hjá Mannlífi og sagði henni frá því.“ Móðir hennar hafi ekki …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár