,,Hvernig er svo að vera gömul mamma?“ Þessa spurningu fékk ég í veislu hjá vinafólki mínu fyrir ekki svo löngu. Gömul mamma? Ég? Mig rak í rogastans og vissi ekki alveg hverju ég átti að svara. Eftir nokkurt hik svaraði ég: ,,Tjaa, ég er nú svo ung í anda,“ og hló svo hátt og innilega. Seinna um kvöldið lá ég svo andvaka uppi í rúmi. Gömul mamma, þessi setning bergmálaði í höfðinu á mér og hugsanirnar streymdu um á ljóshraða. Ég fór að hugsa um hversu gömul ég yrði þegar ég myndi ferma, hvort stelpurnar mínar myndu skammast sín fyrir mig þegar ég næði í þær í skólann, myndi ég ná að hitta barnabörnin mín? Ég rauk fram úr, vakti kærasta minn svo honum dauðbrá og reif hann fram til að ræða málin. Með stírur í augum gapti hann á mig skelfingu lostinn, hann vissi ekki af hverju ég var svona móð og taugaveikluð. Ég settist rólega í sófann og sagði honum að setjast. Hálfskælandi kjökraði ég því út úr mér: ,,Þegar stelpurnar okkar verða fertugar, þá verð ég áttræð, ég verð 80 ára! Hann vissi ekki alveg hvernig hann ætti að bregðast við en var þó hinn allra rólegasti, enda 8 árum yngri en ég. „Ekki vera að pæla í þessu núna, það hugsar enginn svona,“ sagði hann og bað um að fá að halda áfram að sofa. Af hverju gat ég ekki bara eignast börn þegar vinkonurnar komu með sín? Þær eru búnar að ferma núna. Dagarnir liðu og ég róaðist örlítið. Ég gæti kannski heyrt í Kára Stefánssyni og fengið hjá honum HGH-hormón sem á að hægja á öldrunarferlinu, best væri að taka út allan sykur og kaupa glútenlaust pasta. Kannski verður komin einhver pilla sem gefur mér auka tíu ár. Eitthvað yrði ég að gera. Það var ekki fyrr en ég hitti afa minn sem er 78 ára sem ég náði að breyta neikvæðum hugsunum mínum yfir í jákvæðar. Afi sagði mér að hann hefði sjaldan verið hressari. Hann er á leið í siglingu um Miðjarðarhafið þar sem hann ætlar að heimsækja Napólí, skoða Sagrada Familía í Barcelona, spóka sig um á Santorini og drekkja í sig söguna í Aþenu. Afi sagði nefnilega það sem ég þurfti að heyra: „Aldur er bara tala og það er hvernig þú lifir lífinu sem skiptir máli, ekki í framtíðinni eða fortíðinni, lífið er núna.“ Ég er staðráðin í því að njóta hvers augnabliks og reyna eftir fremsta megni að verða eldhress 80 ára gömul mamma.

Jæja, mamma gamla
Hvernig er að eignast börn um fertugt?
Mest lesið

1
Fimmtíu sagt upp hjá borginni í dag
Fækka á stöðugildum um 74 í miðlægri stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Fimmtíu verður sagt upp og ráðningar verða stöðvaðar.

2
Segir nýja bók Truss þá rugluðustu sem hann hafi lesið
Gagnrýnandi Telegraph fer hörðum orðum um nýja bók fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands. Hann segir Liz Truss kenna embættismönnum, fjölmiðlum og samflokksfólki sínu um fall ríkisstjórnar sinnar en gangast ekki við eigin ábyrgð.

3
Maðurinn sem getur fellt Netanjahú er enginn friðarsinni
Fyrrverandi hershöfðinginn Gadi Eisenkot sækist eftir stuðningi kjósenda sem vilja breytingar eftir valdatíma Benjamin Netanjahús.

4
Ræða uppsagnir og niðurskurð á aukafundi borgarstjórnar
Borgarfulltrúar sitja nú aukafund í ráðhúsi Reykjavíkur og ræða nýjar tillögur meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks um niðurskurð og uppsagnir.

5
Óvissa um tekjuforsendur samgöngusáttmálans
Óvissa virðist ríkja um marga lykilþætti í fjármögnun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir það áhyggjuefni að niðurskurður á fjárlögum muni auka lántökuþörf Betri samgangna á sama tíma. Hún segir ekki hægt að ráðast í framkvæmdir sem ekki hafi verið fjármagnaðar.

6
Trump stóreykur losun metans
Bandaríkjaforseti losar um reglur sem eiga að hindra að metan berist í andrúmsloftið við olíuvinnslu. Efnið veldur um þriðjungi hlýnunar frá því fyrir iðnbyltingu.
Mest lesið í vikunni

1
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragnarsdóttir nær dauða en lífi á skurðarborði Landspítalans eftir alvarlegt tilfelli meðgöngueitrunar. Íslenskur vísindamaður í Bandaríkjunum, Jóhann Elí Guðjónsson húðlæknir, leiðir brautryðjandi rannsóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúkdómurinn kemur fram. Hann telur mögulegt að þróa lyf við sjúkdómnum sem bjargað gæti mannslífum.

2
Ástleysið er sárt
Nánd er næring, nauðsynleg eins og matur. Tæpur helmingur fólks elst upp í óöruggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ástarsamböndum á fullorðinsárum, jafnvel ógnað heilsu, enda er „tengslamyndun ein af grunnforsendum farsældar“, að sögn klíníska sálfræðingsins Guðbrands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ástina í öllum sínum myndum.

3
Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala
Litli spítalinn verður opnaður í húsnæði í eigu stofnanda Samherja.

4
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitjandi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Kristjánsson, bóndi á bænum Garpsdal í Reykhólahreppi. Fyrirhugað er að reisa vindorkugarð ofan á Garpsdalsfjalli sem er fyrsti vindorkukosturinn sem er færður úr biðflokki yfir í orkunýtingarflokk af ráðherra. Heimildin fór á vettvang.

5
Obama segir „nóg komið“ af Trump
Barack Obama gagnrýndi Donald Trump á kosningafundi í Ohio. Spennan magnast fyrir afdrifaríkar þingkosningar.

6
Netanjahú „lokar“ Vesturbakkanum eftir árás tveggja manna
Tveir Palestínumenn réðust á ísraelska hermenn. Netanjahú segir „stóra árás“ hafa verið stöðvaða. Ben-Gvir vill leysa upp palestínsk stjórnvöld. Kosningar á þriðjudag.
Mest lesið í mánuðinum

1
Vilja að Katla fari á elliheimili
Heilbrigðisráðuneytið hefur þrýst á að Katla Guðnadóttir, 24 ára gömul, velji sér hjúkrunarheimili til að flytja á tímabundið. Formaður ÖBÍ segir slíkar innlagnir ungs fólks sjaldnast verða tímabundnar. Katla hefur verið ári lengur á Grensásdeild en heilbrigðisstarfsfólk taldi þurfa og vill flytja heim til sín.

2
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragnarsdóttir nær dauða en lífi á skurðarborði Landspítalans eftir alvarlegt tilfelli meðgöngueitrunar. Íslenskur vísindamaður í Bandaríkjunum, Jóhann Elí Guðjónsson húðlæknir, leiðir brautryðjandi rannsóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúkdómurinn kemur fram. Hann telur mögulegt að þróa lyf við sjúkdómnum sem bjargað gæti mannslífum.

3
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
Viðbragðsaðilar héldu að Björn Ólafur Haraldsson væri útúrdópaður þegar hann lá á gólfinu með blæðingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkrunarfræðinámi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leiðrétta mistök ófaglærðs starfsfólks á heilbrigðisstofnunum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterkari til baka.

4
Hjónadjöflar
Sigríður Jónsdóttir skrifar um Djöfla eftir Lars Norén, sem sýnt er í Borgarleikhúsinu.

5
Sjálfstæðismenn aftur á fund bandarískra íhaldsmanna ásamt Zachary
Forysta Sjálfstæðisflokksins og Birgir Þórarinsson, fyrrverandi þingmaður, funduðu með íhaldssömum hugveitum og mæltu fyrir fríverslunarsamningi.

6
Ástleysið er sárt
Nánd er næring, nauðsynleg eins og matur. Tæpur helmingur fólks elst upp í óöruggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ástarsamböndum á fullorðinsárum, jafnvel ógnað heilsu, enda er „tengslamyndun ein af grunnforsendum farsældar“, að sögn klíníska sálfræðingsins Guðbrands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ástina í öllum sínum myndum.

































Athugasemdir