Spyr hvort þingmenn hafi verið áminntir fyrir leka

Óli Björn Kárason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, spyr for­seta Alþingis um leka á trún­að­ar­gögnum úr þing­nefndum. Flokks­bróðir hans, Ásmundur Frið­riks­son, vakti athygli á lekum eftir að hafa gert „reply all“ við tölvu­póst.

Spyr hvort þingmenn hafi verið áminntir fyrir leka
Óli Björn Kárason Þing­maður spyr hvort þing­menn hafi verið áminntir fyrir leka á trún­að­ar­upp­lýs­ingum. Mynd: xd.is

Óli Björn Kárason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hefur óskað eftir svörum um leka á trún­að­ar­upp­lýs­ingum úr fasta­nefndum Alþingis. Fyr­ir­spurnin kemur í kjöl­far leka úr vel­ferð­ar­nefnd Alþingis þegar sam­flokks­maður hans, Ásmundur Frið­riks­son, sendi óvart tölvu­póst á fleiri en nefnd­ar­menn með „reply all“.

Óli Björn hefur lagt fram fyr­ir­spurn til for­seta Alþingis um hvernig reglum for­sætis­nefndar um með­ferð trún­að­ar­upp­lýs­inga sé fylgt eftir og hvort for­seti telji þörf á að end­ur­skoða þær. Þá spyr hann hvort for­sætis­nefnd hafi fengið kvörtun, kæru eða ábend­ingu vegna „leka“ á trún­að­ar­upp­lýs­ingum sem þing­nefndir eða þing­menn hafa fengið. Loks spyr Óli Björn hverjir hafi aðgang að trún­að­ar­upp­lýs­ingum sem fasta­nefndir fái afhentar, hvernig öryggi upp­lýs­ing­anna sé tryggt og hvort ein­hverjir þing­menn hafi verið áminntir fyrir brot á þagn­ar­skyldu eða með­ferð trún­að­ar­upp­lýs­inga.

Flokksbróðir gerði „reply all“

27. apríl síð­ast­lið­inn sendi Ásmundur óvart póst á vel­ferð­ar­nefnd, for­seta Alþingis, ráð­herra og þing­flokk Pírata með því að ýta á „reply all“. Í póst­inum stóð: „Sæl. Ég verð ekki á þessum fundi og ég les ekki Stundina, en er það fjöl­mið­ill sem fólk tekur mark á aðrir en Píratar. Bkv Ási Friðriks.“

Málið snéri að umfjöllun Stund­ar­innar um þrýst­ing sem Bragi Guð­brands­son, fram­bjóð­andi Íslands til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna, beitti barna­vernd Hafn­ar­fjarðar af samúð við fjöl­skyldu manns sem hafði skömmu áður verið til­kynntur til lög­reglu vegna gruns um kyn­ferð­is­brot.

Ásmundur virð­ist ekki hafa séð að fleiri en nefnd­ar­menn hafi fengið póst­inn. „Ég not­aði póst sem for­mað­ur­inn sendi nefnd­inni og svar­aði til baka,“ skrif­aði Ásmundur á Facebook. „Það er skemmst frá því að segja að það leið örskammur tími frá því að ég sendi svarið á nefnd­ina að tölvu­póst­ur­inn frá mér til nefnd­ar­manna birt­ist óbreyttur á vef Stund­ar­innar.“

Sagði formann velferðarnefndar rúinn trausti

Ásmundur sagði Halldóru Mogensen, for­mann nefnd­ar­innar, vera rúna trausti. „Þarna kom i ljós sem margir hafa talið rök­studdan grun um að Píratar séu í beinu sam­bandi við Stundina og ganga erinda mið­ils­ins á Alþingi og fyrir vini og vanda­menn. Í þeirri orra­hríð sem gengur yfir félags­mála­ráð­herra og Braga Guð­brands­son má vart á milli sjá hvor er fljót­ari með frétt­irnar, þing­menn Pírata eða Stundin og sam­starfið minnir á þá félaga Baldur og Konna sem töl­uðu einum rómi búk­talar­ans.“

Ásmundur Frið­riks­sonÞing­maður gerði „reply all“ við póst á fjölda þing­manna.

Í kjöl­far frétta­flutn­ings Stund­ar­innar og ann­arra fjöl­miðla um póst­inn ræddi Ásmundur um málið á Alþingi. „Það er alvar­legt mál að ég sendi tölvu­póst sem var eftir örfáar klukku­stundir kom­inn í fjöl­miðil sem ég hef ekki miklar mætur á,“ sagði Ásmundur. „Það sýnir að ein­hver af þeim sem fengu þennan tölvu­póst hefur lekið honum í við­kom­andi fjöl­miðil.“

Fyrirspurnin í heild sinni:

     1.      Hvernig er reglum for­sætis­nefndar um með­ferð trún­að­ar­upp­lýs­inga fylgt eftir? 
     2.      Hversu oft hafa fasta­nefndir þings­ins frá og með 143. lög­gjaf­ar­þingi bókað í trún­að­ar­mála­bók skv. 4. gr. reglna for­sætis­nefndar um með­ferð trún­að­ar­upp­lýs­inga? 
     3.      Hefur for­sætis­nefnd fengið kvörtun, kæru eða ábend­ingu vegna „leka“ á trún­að­ar­upp­lýs­ingum sem þing­nefndir eða þing­menn hafa fengið? Ef svo er, hversu oft frá og með 143. lög­gjaf­ar­þingi? Hefur for­sætis­nefnd gripið til ein­hverra ráð­staf­ana eða kannað rétt­mæti slíkra kvart­ana? 
     4.      Hverjir hafa aðgang að trún­að­ar­upp­lýs­ingum sem fasta­nefndir fá afhentar? Hvernig er sá aðgangur og hvernig er öryggi upp­lýs­ing­anna tryggt? 
     5.      Hafa þing­menn frá og með 143. lög­gjaf­ar­þingi verið áminntir vegna brota á 52. gr. þing­skapa um þagn­ar­skyldu, eða vegna brota á reglum um með­ferð trún­að­ar­upp­lýs­inga? 
     6.      Telur for­seti að ástæða sé til að end­ur­skoða reglur um með­ferð trún­að­ar­upp­lýs­inga? 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
5
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár