Ásmundur segir alvarlegt að tölvupóstur hafi lekið í Stundina, „fjölmiðil sem ég hef ekki miklar mætur á“

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, segir trúnað milli þing­manna hafa verið rof­inn þegar tölvu­póstur sem hann sendi óvart á fjölda þing­manna hafi verið til umfjöll­unar í Stund­inni. Þá seg­ist hann ekki hafa miklar mætur á Stund­inni.

 Ásmundur segir alvarlegt að tölvupóstur hafi lekið í Stundina, „fjölmiðil sem ég hef ekki miklar mætur á“
Ásmundur Frið­riks­son Þing­maður seg­ist ekki hafa miklar mætur á Stund­inni. Mynd: Morgunblaðið/Eggert

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og 2. vara­for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis, segir það vera alvar­legt mál að tölvu­póstur sem hann sendi óvart á fjölda þing­manna hafi lekið í Stundina. Hann sagð­ist ekki hafa miklar mætur á Stund­innií ræðu sinni á Alþingi í dag.

Málið snýr að umfjöllun Stund­ar­innar um þrýst­ing sem Bragi Guð­brands­son, fram­bjóð­andi Íslands til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna, beitti barna­vernd Hafn­ar­fjarðar af samúð við fjöl­skyldu manns sem hafði skömmu áður verið til­kynntur til lög­reglu vegna gruns um kyn­ferð­is­brot auk þess sem til­vís­un­ar­bréf hafði verið sent Barna­húsi.

Ásmundur sendi óvart póst á vel­ferð­ar­nefnd, for­seta Alþingis, ráð­herra og þing­flokk Pírata með því að ýta á „reply all“, sam­kvæmt Mbl.is. Upp­haf­legi póst­ur­inn var frá Halldóru Mogensen, for­manni vel­ferð­ar­nefndar og þing­manni Pírata, þar sem til­kynnt var um fund vel­ferð­ar­nefndar Alþingis síð­ast­lið­inn mánu­dagi þar sem fjallað var um málið. Svar Ásmundar var „Sæl. Ég verð ekki á þessum fundi og ég les ekki Stundina, en er það fjöl­mið­ill sem fólk tekur mark á aðrir en Píratar. Bkv Ási Friðriks.“

Segir upplýsingar úr þinginu leka í Stundina

„Und­an­farna daga hefur trún­aður verið til umræðu hér í þing­inu,“ sagði Ásmundur undir liðnum „störf þings­ins“ á Alþingi í dag. „Trúnaður þing­manna, milli þing­manna. Trúnaður í störfum okkar. Það er mik­il­vægt að í starfi þing­manns­ins sé trún­aður hald­inn og þær reglur sem gilda, hvernig farið er með tölvu­pósta og annað slíkt á milli okkar hér í þing­sal, milli okkar í þing­nefndum. Það er alvar­legt mál að ég sendi tölvu­póst sem var eftir örfáar klukku­stundir kom­inn í fjöl­miðil sem ég hef ekki miklar mætur á. Það sýnir að ein­hver af þeim sem fengu þennan tölvu­póst hefur lekið honum í við­kom­andi fjöl­miðil.“

„Það er alvar­legt mál að ég sendi tölvu­póst sem var eftir örfáar klukku­stundir kom­inn í fjöl­miðil sem ég hef ekki miklar mætur á“

Þá sagði Ásmundur þing­menn hafa mis­mun­andi skoð­anir á hlut­unum, en verða að treysta því að það sem þeir segi og sendi sín á milli rati ekki beint í fjöl­miðla. „Það er með ólík­indum að við skulum ekki geta treyst því að skila­boð okkar á milli fari ein­göngu í þann far­veg sem þau eiga að fara,“ sagði Ásmundur. „Ég hef áður orðið var við að upp­lýs­ingar úr þing­inu fari í þennan fjöl­miðil. Við munum eftir leka í eft­ir­lits­nefnd­inni hér fyrir nokkrum miss­erum. Ég held að virð­ing þings­ins verði að aukast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár