„Er einhver hér í salnum sammála mér um að þetta sé komið út í tóma þvælu?“

Oddný Harð­ar­dóttir hefur beðið í þrjá mán­uði eftir að Bjarni svari fyr­ir­spurn hennar um úrvinnslu upp­lýs­inga í Panama-skjöl­unum. Þor­gerður Katrín segir tafir á svörum muni hafa áhrif á sam­komu­lag um þing­lok. Bjarni svarar með því að gagn­rýna Björn Leví Gunn­ars­son vegna fjölda tíma­frekra fyr­ir­spurna.

„Er einhver hér í salnum sammála mér um að þetta sé komið út í tóma þvælu?“
Tóm þvæla Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir fyr­ir­spurnir þing­manna til ráð­herra komnar út í tóma þvælu, sökum fjölda, nákvæmni og þess hve viða­miklar þær séu. Mynd: Pressphotos.biz

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir að fyr­ir­spurnir þing­manna til ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar séu komnar út í tóma þvælu. Fyr­ir­spurnir hafi lík­lega aldrei aldrei verið jafn margar á einu lög­gjaf­ar­þingi og auk þess séu þær svo viða­miklar að það sé tóm þvæla.

Þessi orð lét Bjarni falla í umræðum um fund­ar­stjórn for­seta á Alþingi í dag. Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar gagn­rýndu þá ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar harð­lega fyrir seina­gang þegar kæmi að svörum við fyr­ir­spurnum þing­manna. Þannig benti Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Mið­flokks­ins, á það að fyrst á fimmtu­dag hefði borist svar við fyr­ir­spurn sem hann lagði fram 20. febr­úar síð­ast­lið­inn.

Oddný Harð­ar­dóttir, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar benti jafn­framt á að í þrjá mán­uði hefði hún beðið eftir svörum varð­andi úrvinnslu á þeim gögnum sem finna mátti í Panama-skjöl­unum og vörð­uðu Íslend­inga. Enn biði hún eftir þeim svörum. „Hvers vegna í ósköp­unum stendur á þessu svari? Hvað tefur?“ spurði Oddný í for­undran.

Veikir eftirlitshlutverk þingsins

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, benti á að for­seti Alþingis hefði í upp­hafi þing­fundar lesið upp óskir frá fjölda ráð­herra þar sem óskað var eftir fresti til að svara hátt í tug fyr­ir­spurna þing­manna. Ekki gæti gegnið að þing­menn fengju ekki svör við fyr­ir­spurnum sínum fyrr en um mitt sumar eða jafn­vel ekki fyrr en í haust. Þannig væri verið að veikja eft­ir­lits­hlut­verk þing­manna með fram­kvæmda­vald­inu. „Þetta hlýtur óhjá­kvæmi­lega að hafa áhrif á sam­komu­lag okkar í stjórn­ar­and­stöð­unni varð­andi þing­lok núna í sumar,“ sagði Þor­gerður.

Fleiri þing­menn stjórn­ar­and­stöðu tóku undir þennan mál­flutn­ing. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra kom þá í ræðu­stól og sagði mik­il­vægt að þessi staða yrði rædd í for­sætis­nefnd þings­ins en vildi þó minna á að lagðar hefðu verið fram 316 fyr­ir­spurnir til skirf­legs svars á yfir­stand­andi þingi. Væri það vafa­laust meiri fjöldi en sést hefði á fyrri þingum.

Ekki metfjöldi fyrirspurna

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kom því næst í pontu og tók undir með Katrínu auk þess sem hann lýsti þeirri skoðun að lík­lega hefðu aldrei komið fram jafn margar, viða­miklar og nákvæmar fyr­ir­spurnir og nú. Nefndi hann sem dæmi fyr­ir­spurn frá Birni Leví Gunn­ars­syni, þing­manni Pírata, um störf þing­manna á vegum fram­kvæmda­valds­ins. „Spurt er tíu ár aftur í tím­ann um alla þing­menn sem setið hafa á Alþingi, um allar nefndir sem þeir hafa setið í, hvaða afurð hafi komið út úr öllum þeim nefndum allra þing­manna sl. tíu ár. Hvernig greiðslum til þeirra hafa verið háttað, hvað ætla megi að þing­menn hafi lagt mikla vinnu í tímum talið fyrir hverja ein­ustu nefnd tíu ár aftur í tím­ann. Er ein­hver hér í salnum sam­mála mér um að þetta sé komið út í tóma þvælu?“

Björn Leví benti á að það væri rangt að aldrei hefðu komið fram jafn margar fyr­ir­spurnir og á þessu þingi og að þar í ofaná­lag væru margar þeirra fyr­ir­spurna sem lagðar hefðu verið fram sam­hljóða en væri beint að mörgum ráð­herrum. Oddný Harð­ar­dóttir kom síðan á nýjan leik upp í ræðu­stól og ítrek­aði að hún hefði nú beðið í þrjá mán­uði eftir svörum varð­andi Panama-skjölin og álíka lengi eftir svörum við fyr­ir­spurn um laun for­stjóra og yfir­manna í rík­is­stofn­unum og fyr­ir­tækjum í eigu rík­is­ins. „Varla getur það verið, herra for­seti, að það standi á þessum svörum út af spurn­ingum frá hátt­virtum þing­manni Birni Leví Gunn­ars­syni. Er það út af því? Er það skýr­ingin á því að ég fæ ekki svör við þessum tveimur spurn­ingum sem eru búnar að liggja í rúma og tæpa þrjá mán­uði hjá hæst­virtum fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár