Litlar breytingar á fylgi á landsvísu

Fylgi við rík­is­stjórn­ina er komið undir 50 pró­sent. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærstur en dalar lít­il­lega milli kann­ana. Breyt­ingar á fylgi eru allar innan vik­marka.

Litlar breytingar á fylgi á landsvísu
Rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina heldur áfram að dala og er nú kom­inn undir 50 pró­sent. Mynd: Stjórnarráðið

Sjálf­stæð­is­flokkur mælist með mestan stuðn­ing flokka á lands­vísu sam­kvæmt könnun MMR en tæp­lega 24 pró­sent aðspurðra sögð­ust myndu styðja flokk­inn ef gengið yrði til Alþing­is­kosn­inga nú. Sam­fylk­ingin mælist næst stærsti flokkur lands­ins en sára­litlar breyt­ingar eru á fylgi flokka milli kann­ana.

Könnunin var gerð dag­ana 16. til 22. maí. Alls sögð­ust 23,7 pró­sent aðspurðra styðja Sjálf­stæð­is­flokk­inn, sem er tæpu pró­sentu­stigi lægra en í síð­ustu könnun sem birt var 2. maí síð­ast­lið­inn og 1,5 pró­sentu­stigum lægra en í síð­ustu þing­kosn­ingum. Sam­fylk­ingin mælist með stuðn­ing 14,6 pró­sent aðspurðra, sem er nálega sami stuðn­ingur og í síð­ustu könnun. Flokk­ur­inn fékk 12,1 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum. Píratar eru síðan þriðji stærsti flokkur lands­ins, mæl­ast með stuðn­ing 14,1 pró­sents aðspurðra. Það er rúmu pró­sentu­stigi hærra en í síð­ustu könnun og veru­lega mikið meira en í kosn­ing­unum síð­ustu þar sem flokk­ur­inn fékk 9,2 pró­sent atkvæða.

Vinstri græn tapa fylgi milli kann­ana og mæl­ast nú með 12 pró­senta stuðn­ing en mæld­ust með 13,7 pró­sent í síð­ustu könnun. Flokk­ur­inn heldur því áfram að tapa fylgi frá kosn­ingum en þá hlaut hann 16,9 pró­sent atkvæða. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir hins vegar við sig frá síð­ustu könnun og mælist nú með 10,1 pró­sentu fylgi. Það er lít­il­lega minna en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum, þá hlaut flokk­ur­inn 10,7 pró­sent atkvæða, en í síð­ustu könnun sögð­ust 8,2 pró­sent aðspurðra styðja flokk­inn.

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír mæl­ast því sam­an­lagt með 45,8 pró­senta fylgi en fengu sam­an­lagt 52,8 pró­sent í kosn­ing­unum. Fylgis­tap Vinstri grænna vegur þar þyngst. Einnig var spurt hvort fólk styddi ríks­stjórn­ina og dalar stuðn­ingur við hana milli mæl­inga. Stuðn­ing­ur­inn er nú kom­inn undir 50 pró­sent en 49,8 pró­sent sögð­ust styðja stjórn­ina borið saman við 52,8 pró­sent í könn­un­inni 2. maí.

Fylgi Mið­flokks­ins mælist nú 9,8 pró­sent borið saman við 10,3 pró­sent í síð­ustu könnun. Flokk­ur­inn hlaut 10,9 pró­sent í kosn­ing­unum. Viðreisn mælist nú með 7,1 pró­senta fylgi en mæld­ist síð­ast með 7,6 pró­sent. Flokk­ur­inn fékk 6,7 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum. Fylgi við Flokk fólks­ins mælist nú 5,6 pró­sent en mæld­ist síð­ast 5,8 pró­sent. Í kosn­ing­unum hlaut flokk­ur­inn 6,9 pró­sent atkvæða. Aðrir flokkar mæl­ast sam­an­lagt með stuðn­ing 3 pró­senta aðspurðra.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár