Inga Sæland segist ekki vera hugsjónalaus afæta

Skilur gagn­rýn­ina en minnir á að Flokkur fólks­ins er í stjórn­ar­and­stöðu. Þess vegna fái bar­áttu­mál hans ekki braut­ar­gengi.

Inga Sæland segist ekki vera hugsjónalaus afæta
Dapurleg tor­tryggni Inga Sæland segir dap­ur­legt hversu mik­illar tor­tryggni gæti í garð hennar og Flokks fólks­ins, af hálfu kjós­enda. Flokk­ur­inn sé í stjórn­ar­and­stöðu og fái því ekki málum sínum fram­gengt. Mynd: Pressphotos

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, segir dap­ur­legt en um leið skilj­an­legt að kjós­endur séu tor­tryggnir í sinn garð og flokks­ins. Hún minnir á að flokk­ur­inn sé í stjórn­ar­and­stöðu og því fái þeirra bar­áttu­mál og vilji ekki braut­ar­gengi hjá rík­is­stjórn­inni. Jafn­framt kvartar hún yfir því að kjós­endur hvetji ekki flokk­inn til dáða fremur en að láta ítrekað að því liggja að þing­menn flokks­ins séu ekk­ert annað en „hug­sjóna­lausar afætur sem gleymum til­gangi okkar þegar mark­mið­inu var náð að kom­ast á þing.“

Inga skrif­aði færslu á Facebook-síðu sína með þessu inn­taki nú í morgun. Rótin að skrifum Ingu eru fyr­ir­spurnir sem hún fékk á síð­unni þar sem hún var meðal ann­ars þinguð um hvort hún hefði lagt fram fyr­ir­spurnir um hvort rík­is­stjórnin hyggð­ist afnema skerð­ingar á eft­ir­launa­greiðslum vegna tekna og eins hvort hún eða Flokkur fólks­ins hefði lagt fram frum­varf til laga um hækkun per­sónu­af­sláttar þeirra sem væru með tekjur undir fram­færslu­við­miði. „Ef ekki, hvert er þá eig­in­lega hlut­verk [FF]?“ var þar spurt.

Gera meira en að leggja fram fyrirspurnir

Inga segir hins vegar að þing­menn flokks­ins hafi gert miklu meira en að leggja bara fram fyr­ir­spurnir. Þau hafi lagt fram frum­vörp. „Vonandi áttið þið ykkur þó á því að við erum í stjorn­ar­and­stöðu enn sem komið er þannig að það er ekki okkar vilji sem fær braut­ar­gengi hjá rík­is­stjórn­inni.“

Inga segir að Flokkur fólks­ins von­ist eftir að á næst­unni verði afgreidd út úr nefndum Alþingis tvo mál sem flokks­menn hafa lagt fram, ann­ars vegar um afnám skerð­inga vegna launa­tekna aldr­aðra og hins vegar um afnám skerð­inga vegna styrk­veit­inga til kaup á hjálp­ar­tækjum fyrir aldr­aða og öryrkja. „Þessir styrkir eru skatt­lagðir í botn sem hreinar tekjur og skerða auk þess alm­ana­trygg­ingar til öryrkja krónu á móti krónu. Við erum að vona að þetta rétt­læt­is­mál sé þess eðlis að jafn­vel kald­lynd­ustu stjórn­mála­menn geti ekki annað en séð það og sam­þykkt.“

Inga segir síðan að öll mál flokks­ins séu lögð fram fyrir örykja, aldr­aða og þá sem búa við fátækt. „Ég vildi óska þess að þið hvettuð okkur frekar til dáða en að láta ítrekað líta út fyrir að við séum ekk­ert annað en hug­sjóna­lausar afætur sem gleymum til­gangi okkar þegar mark­mið­inu var náð að kom­ast á þing.“

„Okkur vantar aflið“ 

Í sam­tali við Stundina segir Inga að henni þyki þessi gagn­rýni ekki ósann­gjörn þrátt fyrir allt. „Nei, hún er það ekki. Það er nefni­lega þannig að það er ekki ósann­gjarnt að sitja undir gagn­rýni þegar fólk er að brasa við það hver ein­ustu mán­að­ar­mót að hafa í sig og á og þegar stjórn­völd sem kosin voru til að hjálpa fólki eru ekki að gera það. Auðvitað sitjum við þá öll 63 undir gagn­rýn­inni, þing­menn. Fólk vill hins vegar kannski ekki alveg horfa á stað­reynd­irnar í stjórn­mál­unum, þá stað­reynd að við erum bara fjögur og við erum í stjórn­ar­and­stöðu. Við í Flokki fólks­ins getum ekki lagað þetta þó ég sé með grát­staf­inn í kverk­unum. Okkur vantar aflið til þess. Það breytir þó ekki þeirri stað­reynd að við erum komin að ræðupúlt­inu, við erum að gera hvað við getum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár