Björn Ingi Hrafnsson ógjaldfær

Björn Ingi Hrafns­son, sem hefur verið umsvifa­mik­ill und­an­farin ár og yfir­tekið fjölda fjöl­miðla, er ógjald­fær eftir þrjú árang­urs­laus fjár­nám. Hann er enn skráður for­ráða­maður rekstr­ar­fé­lags Argent­ínu steik­húss hjá fyr­ir­tækja­skrá, en seg­ist ekki tengdur félag­inu. Fjöldi starfs­manna fékk ekki greidd laun og leit­aði til stétt­ar­fé­laga.

Björn Ingi Hrafnsson ógjaldfær
Björn Ingi Hrafns­son Fjöl­miðla­veldi hans tók yfir á þriðja tug fjöl­miðla. Mynd: Skjáskot af ÍNN

Björn Ingi Hrafns­son athafna­maður og fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins er ógjald­fær eftir þrjú árang­urs­laus fjár­nám Sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Kröfu­höfum er nú heim­ilt að krefj­ast gjald­þrota­skipta í per­sónu­legu búi Björns Inga.

Fyrir ára­mót var Pressan ehf., hluti af fjöl­miðla­veldi Björns Inga, tekin til gjald­þrota­skipta. Líf­eyr­is­sjóður Vest­manna­eyja lagði fram gjald­þrota­beiðni vegna ógreiddra iðgjalda starfs­manns upp á rúm­lega 2,8 millj­ónir króna. Miklar deilur stóðu yfir vegna félags­ins á síð­asta ári. Félag tengt Róberti Wessmann, Dalurinn ehf., setti tug­millj­óna króna hlutafé inn í Pressuna ehf. fyrr á árinu en stjórn Pressunnar ehf. ákvað eftir það að selja allar helstu eignir félags­ins út úr því og til fyr­ir­tæk­is­ins Frjálsrar fjöl­miðl­unar ehf. sem lög­mað­ur­inn Sigurður G. Guð­jóns­son fer fyrir. Þetta var gert án vit­neskju Dalsins ehf. og þýddi í reynd að Pressan ehf. var búin að selja þær eignir sem Dalurinn ehf. var nýbú­inn að kaupa í.

Árni Harð­ar­son, for­svars­maður Dalsins ehf., sagði í til­kynn­ingu 20. febr­úar að Björn Ingi hefði hótað sér og boð­ist til að greiða sex millj­óna króna skuldir með úttekt­ar­heim­ildum á steikum á Argent­ínu steik­húsi, sem hann eign­að­ist í haust. Aðstand­endur Dalsins hafa kært Björn Inga fyrir fjár­drátt. Hann lýsti því yfir í febr­úar að hann hefði kært þá á móti fyrir fjár­svik.

Er enn skráður fyrir Argentínu

Björn Ingi er enn pró­kúru­hafi og stjórn­ar­maður BOS ehf. sem rekur Argent­ínu steik­hús, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá fyr­ir­tækja­skrá. Í við­tali við Frétta­blaðið fyrir helgi á fimmtu­dag sagð­ist Björn Ingi ekki vera með félagið lengur. Árang­urs­laust fjár­nám var gert í félag­inu í febr­úar, en líf­eyr­is­sjóðir höfðu sent greiðslu­á­skor­anir vegna ógreiddra iðgjalda tveimur mán­uðum eftir að BOS tók við rekstr­inum í haust.

Ómar Freyr Birg­is­son, fyrrum yfir­þjónn á Argent­ínu, segir félagið hafa almennt greitt laun of seint og að hann eigi enn inni ógreidd laun síðan hann hætti um ára­mótin. Hefur hann vísað mál­inu til Matvæla- og veit­inga­fé­lags Íslands (MATVÍS).

Óskar Hafn­fjörð Gunn­ars­son, for­maður MATVÍS, stað­festir að félag­inu hafi borist erindi vegna van­greiddra launa starfs­manna Argent­ínu og unnið sé að mál­inu í sam­starfi við Eflingu stétt­ar­fé­lag. „Það voru ekki greidd út laun í lokin og við erum að skoða hvort það sé eitt­hvað fleira sem hangir á spít­unni,“ segir Óskar.

Samkvæmt til­kynn­ingu frá Argent­ínu á Facebook síðu steik­húss­ins frá 5. apríl sprakk hita­vatns­lögn í hús­næð­inu og þurfa allar lagnir húss­ins að vera yfir­farnar og end­ur­nýj­aðar. Tilkynnt verði hvenær fram­kvæmdum lýkur og stað­ur­inn opnar aftur. Jafn­framt er tekið fram að gjafa­bréf sem renni út á þeim tíma verði fram­lengd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár